Fréttablaðið - 17.03.2015, Side 6

Fréttablaðið - 17.03.2015, Side 6
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvaða íslenska leikkona talar fyrir Elsu í Frozen? 2. Hversu stór hluti Íslendinga er and- vígur sölu áfengis í búðum samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins? 3. Eftir hvern er leikritið Segulsvið? SVÖR: 1. Ágústa Eva Erlendsdóttir. 2. 55 prósent. 3. Sigurð Pálsson. 70 dómar í Hæstarétti – er enn verið að bíða dómafordæma? STAÐA ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA VEGNA GENGISLÁNA Sjö ár eru nú liðin frá efnahagshruninu en við það gjörbreyttist rekstrar- grundvöllur fjölda fyrirtækja þegar lán þeirra tvöfölduðust. Dæmt hefur verið í 70 málum vegna gengislána fyrir Hæstarétti þar sem hundruð milljarða eru undir en fjöldi fyrirtækja bíður enn afgreiðslu sinna mála. Hópur sérfræðinga hefur unnið að því að taka saman helstu stærðir og staðreyndir varðandi stöðu íslenskra fyrirtækja og niðurstöðu dóma vegna gengislána. Niðurstöður þeirrar vinnu verða kynntar á fundinum. Dagskrá opins félagsfundar FA: Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda Bera allir sömu byrðar? Umfang gengislánanna og þróun dóma um þau Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innness Biðin langa – Reynslusaga fyrirtækis með gengislán Morgunverðarfundur föstudaginn 20. mars kl. 8.30 Skráning á vef FA, atvinnurekendur.isPIP A R\ TB W A Fundurinn verður haldinn í fundarsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, og hefst kl. 8:30. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Léttur morgunverður í boði. SAMFÉLAG Ekki hefur verið gefin út ákæra í svikamáli þar sem aðstand- endur látinnar konu þáðu ellilíf- eyri hennar frá Tryggingastofn- un eftir andlát hennar. Stofnunin kærði bótasvikin til lögreglu árið 2011 en enn hefur ekki verið gefin út ákæra. Konan bjó í Bandaríkjunum og aðstandendur hennar létu hjá líðast að tilkynna andlát hennar til Þjóð- skrár. Þess í stað þáðu þeir ellilíf- eyri hennar í tíu ár. Svikin nema tugum milljóna, að minnsta kosti tuttugu og fjórum milljónum króna, eða sem nemur upphæð ellilífeyris konunnar í tíu ár. Hafliði Þórðarson hjá auðgun- arbrotadeild lögreglunnar segir annir í öðrum verkefnum og mann- eklu valda því að ekki hafi tekist að ljúka rannsókn málsins á styttri tíma en fjórum árum. „Loksins er að ljúka því máli. Það er komið í meðferð saksóknara. Það er ekki búið að gefa út ákæru en ég veit til þess að það er í forgangi að klára það. Málið er auðvitað orðið alltof gamalt, það gerist hér vegna mik- illar starfsmannaveltu í þessum geira rannsókna. Það var stofnað heilt embætti til að rannsaka efna- hagsbrot og það hefur haft áhrif á gang mála hjá okkur. Þá hafa annir í öðrum verkefnum tafið málið.“ En er ekki hætta á að einhver hluti brotanna sé fyrndur? Hafliði segist ekki halda það. „Fyrning- arfrestur er tíu ár og því er ekki hætta á að málið fyrnist.“ Tryggingastofnun hefur kært fimm mál til lögreglu á árunum 2011-2014 þar sem rökstuddur grunur lék á að um alvarleg bótas- vik væri að ræða. Kæra stofnunar- innar vegna rangra upplýsinga frá aðstandendum greiðsluþega barst lögreglu eins og áður segir árið 2011. Þá kærði stofnunin eitt mál á árinu 2013, vegna gruns um að greiðsluþegi hefði ekki gefið réttar upplýsingar um heimilisaðstæður. TR kærði tvö mál á árinu 2014. Annað vegna gruns um að greiðslu- þegi hefði ekki gefið réttar upplýs- ingar um tekjur. Hitt vegna gruns um að aðili hefði ekki gefið réttar upplýsingar um feðrun barns og haft af því ávinning. Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Trygginga- stofnunar, vill ekki tjá sig um neitt framangreindra mála. Nýverið úrskurðaði Persónuvernd að stofn- uninni væri óheimilt að þiggja nafn- lausar ábendingar um bótasvik. Ríkisendurskoðun hefur ítrekað bent á að tryggja þurfi nauðsynlegt fjármagn til Tryggingastofnun- ar til að sinna öflugu eftirliti með bótagreiðslum og beita fyrirbyggj- andi aðgerðum til að lágmarka hættu á bótamistökum og öðrum mistökum. Þá hefur Tryggingastofnun verið bent á lögbundið eftirlit með bóta- greiðslum. Á móti hefur forstjóri bent á að styrkja þurfi lögbundnar heimildir stofnunarinnar sem hafi lítið svigrúm til rannsókna á bóta- svikum. kristjanabjorg@frettabladid Tugmilljóna bótasvik fjögur ár í rannsókn Aðstandendur konu hirtu um það bil tuttugu og fjórar milljóna króna í líf- eyrisgreiðslur til hennar frá Tryggingastofnun eftir andlát hennar. Svikin voru kærð til lögreglu árið 2011. Enn hefur ekki verið gefin út ákæra vegna málsins. VIÐ LAUGAVEG Rannsókn lögreglu er sögð hafa tafist vegna manneklu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FIMM MÁL Í RANNSÓKN Tryggingastofnun vísar alvarlegustu bótasvikum til lögreglu með litlum árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Það var stofnað heilt embætti til að rannsaka efnahagsbrot og það hefur haft áhrif á gang mála hjá okkur. Þá hafa annir í öðrum verkefnum tafið málið. Hafliði Þórðarson, auðgunarbrotadeild lögreglunnar STJÓRNMÁL Hanna Birna Krist- jánsdóttir, fyrrverandi innanrík- isráðherra, hefur tjáð stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd Alþingis að hún hyggist ekki mæta á fund nefndarinnar til að greina frá sinni hlið lekamálsins og svara spurningum um það. Nefndin bauð Hönnu Birnu á sinn fund í janúar, í kjölfar þess að umboðsmaður Alþingis sagði sam- skipti hennar við lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins „ósamrým- anleg“ stöðu hennar, en svar henn- ar barst ekki fyrr en í dag. Í bréfi Hönnu Birnu, sem frétta- stofa RÚV birti í gær, kemur einn- ig fram að hún hyggst snúa aftur á Alþingi seinni hluta næsta mán- aðar. Hún vísar til þess að hún hafi þegar svarað skriflegum fyrir- spurnum umboðsmanns og að hún gegni ekki lengur embætti ráð- herra. Hún vísar til þeirra upp- lýsinga og gagna sem þegar liggja fyrir í málinu og segist ekki óska eftir að koma frekari upplýsingum á framfæri. „Rannsókn og saksókn umrædds máls lauk með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fyrrverandi aðstoðarmanni mínum í nóvember síðastliðnum,“ segir Hanna Birna í bréfi sínu. Hanna Birna hefur ítrekað haldið því fram að hún hafi ekki vitað af broti Gísla Freys Valdórssonar aðstoðarmanns síns fyrr en hann játaði það. -bá, vh Búin að svara fyrir lekamálið og sest aftur á þing: Segist ekki mæta á fund nefndarinnar SNÝR TIL BAKA Í bréfi Hönnu Birnu kemur fram að hún snúi til baka á þing seinni hluta næsta mánaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL UMHVERFISMÁL Óbreytt ástand í sorpmálum Vestmannaeyinga eða kaup á sorpbrennslustöð eru sagðir þeir kostir sem nú koma til greina sem framtíðarlausn fyrir sveitar- félagið. „Í dag er almennt sorp flutt upp á land til eyðingar, ýmist í urðun eða brennslu. Slíkt hefur í för með sér mikinn kostnað að ógleymd- um vandamálum sem fylgja því að flytja sorp í farþegaskipi,“ segir starfshópur sem skoðar sorpmál Eyjamanna. Þróun í sorpbrennslu hafi hins vegar verið mikil frá því síðasta sorpbrennsla var reist í Eyjum. Stöð sem hentaði myndi kosta 320 til 350 milljónir króna og gæti rúmast í núverandi húsnæði. „Nú er svo komið að hægt er að kaupa tilbúnar stöðvar sem uppfylla alla staðla Evrópusambandsins um mengun í nánast öllum stærðum og gerðum,“ segir starfshópurinn sem einnig hefur athugað þá aðferð að framleiða metangas úr sorpinu í samvinnu við Sorpu bs. „Ekki hafa hins vegar fengist nægjanlegar upp- lýsingar enn þá til að meta hvort þetta sé eitthvað sem hentar í Vest- mannaeyjum.“ Meðal kosta sem skoðaðir voru var að flytja sorp til brennslu í Fær- eyjum. „Í ljós kom að kostnaður var svipaður og við að flytja almenna sorpið upp á land en í desember kom erindi frá stjórnendum brennslu- stöðvarinnar um að þeir sæju sér ekki fært að taka við almenna sorp- inu úr Vestmannaeyjum vegna mik- illar aukningar á sorpmagni í Fær- eyjum,“ segir starfshópurinn. - gar Starfshópur um framtíðarskipan sorpmála í Vestmannaeyjum segir tvo kosti á borðinu í augnablikinu: Eyjamenn skoða kaup á sorpbrennslustöð Í EYJUM Sorp er nú flutt upp á fasta- landið, ýmist til urðunar eða brennslu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VEISTU SVARIÐ? 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 5 -F 1 2 8 1 4 2 5 -E F E C 1 4 2 5 -E E B 0 1 4 2 5 -E D 7 4 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.