Fréttablaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 24
Heilsurækt ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 20152
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Bryndís Hauksdóttir, s. 512-5434, bryndis@365.is, Gunnhild-
ur Geira, s. 512-5036, geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson, s. 5125429, jonivar@365.is
Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Ertu með
verki í
hnjám eða
ökkla?
Flexor býður mikið úrval af
stuðningshlífum fyrir flest
stoðkerfisvandamál.
Það er mikil aukning hjá okkur núna, við finnum það mjög sterkt. Það gæti orsakast að
hluta af veðri og vindum því auð-
vitað er hægt að tengja veðurfar-
ið og andlega líðan okkar að ein-
hverju leyti. Þegar erfitt er að kom-
ast á milli staða, eins og hefur verið
í allan vetur, spilar það einnig inn
í líðan fólks. Það þarf seiglu til að
halda þetta út. Það eru allir farnir að
bíða eftir vorinu,“ segir Auður Ax-
elsdóttir, forstöðumaður Hugarafls,
Geðheilsu – eftirfylgdar, hjá Heilsu-
gæslunni.
Hún segir janúarmánuð hafa
farið tiltölulega rólega af stað hjá
Hugarafli en mikla sveiflu hafa
orðið strax í febrúar sem standi enn.
„Það mæta um tuttugu manns á
hverja nýliðakynningu hjá okkur,
flest fólk sem er að leita sér úrræða
og vill komast í gang. Þá leita að-
standendur mikið til okkar núna því
áhyggjur þeirra aukast einnig. Við
leggjum áherslu á að fólk haldi sig
við rútínuna þó að veðrið sé vont,
taki bætiefni og stundi hreyfingu en
við notum til dæmis mikið jóga og
slökun sem hjálpar mjög mörgum
sem glíma við þunglyndi og kvíða,“
útskýrir Auður og hvetur fólk til að
leita sér aðstoðar finnist því það
vera að missa móðinn.
„Ef fólk er til dæmis farið að finna
fyrir svefnleysi, kvíða eða treystir
sér jafnvel ekki í vinnuna er mik-
ilvægt að leita sér hjálpar áður en
vandamálið vex og endar í óefni,“
segir Auður.
„Það þarf ekki tilvísun til að
koma hingað inn og til okkar leitar
bæði fólk með grun um geðheilsu-
vanda og einnig fólk sem búið er
að fá greiningu. Við erum aðgengi-
legt úrræði meðan það geta verið
þyngri skref að leita inn á spítala.
Hjá okkur getur fólk einnig stopp-
að í töluverðan tíma í endurhæf-
ingu en ég hef trú á því að fólk sem
hefur verið að kljást við geðrænan
vanda þurfi langan tíma. Við erum
með prógramm alla daga, umræðu-
hópa, jóga, viðtöl og heimavitjanir.“
Auður segir mikið forvarnarstarf
unnið hjá Hugarafli og að það sé já-
kvætt að fólk leiti fyrr aðstoðar.
„Veðrið í vetur hefur kannski
orðið til þess að ýta við fólki að
leita sér fyrr hjálpar. Það gæti verið
þessi aukning sem við finnum fyrir
núna og kannski jákvæði punktur-
inn í þessu.”
Vont veður hefur
áhrif á andlega líðan
Hver lægðin á fætur annarri hefur dunið yfir og landsmenn orðnir langeygir
eftir vorinu. Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Hugarafls, segir vont veðurfar
geta haft áhrif á andlega líðan fólks og að mikil ásókn sé í þjónsutu Hugarafls,
geðheilbrigðisþjónustu Heilsugæslunnar, þessar vikurnar.
Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Hugarafls, geðheilsumiðstöðvar, segir vont veðurfar
hafa áhrif á andlega líðan okkar að einhverju leyti. Mikil ásókn er í þjónustu Hugarafls
þessar vikurnar. MYND/GVA
Auðvitað er hægt
að tengja
veðurfarið og andlega
líðan okkar að einhverju
leyti. Þegar erfitt er að
komast á milli staða, eins
og hefur verið í allan
vetur, spilar það einnig
inn í líðan fólks. Það þarf
seiglu til að halda þetta
út. Það eru allir farnir að
bíða eftir vorinu.“
Lélegt líkamlegt þrek getur þýtt styttra æviskeið en ella. Rannsóknir
hafa sýnt að þeir sem eru með lélegt líkamlegt þrek eru líklegri til að
deyja um aldur fram en þeir sem eru í betra formi, en á síðunni Dokt-
or.is segir að bandarískir vísindamenn hafi komist að þeirri niður-
stöðu að 20% þeirra með þrektölu lægri en 25 séu tvisvar sinnum lík-
legri til að deyja um aldur fram miðað við átta ára tímabil. Þeir sem
stunda ekki reglulega hreyfingu eiga með tímanum á hættu að enda
með þrektölu lægri en 25.
Vísindamenn hafa einnig komist að því að rösk ganga eða sund í
30 mínútur á dag, fimm eða fleiri daga vikunnar, tryggir að fólk lendi
ekki í áhættuhópi. Með reglulegri hreyfingu má einnig minnka líkur á
margvíslegum kvillum og sjúkdómum og draga þannig úr lyfjanoktun.
Ef hreyfingin er orðin mjög áköf áreynsla í meira en klukkutíma á dag
alla daga vikunnar og viðkomandi orðinn var við álagsmeiðsli og vakn-
ar þreyttur og aumur á hverjum morgni, þá er ástæða til að staldra við.
www.doktor.is
Aukið þrek skilar okkur
betri heilsu og lengra lífi
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
2
5
-F
F
F
8
1
4
2
5
-F
E
B
C
1
4
2
5
-F
D
8
0
1
4
2
5
-F
C
4
4
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K