Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 24
Heilsurækt ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 20152 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Bryndís Hauksdóttir, s. 512-5434, bryndis@365.is, Gunnhild- ur Geira, s. 512-5036, geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson, s. 5125429, jonivar@365.is Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson. Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900 Ertu með verki í hnjám eða ökkla? Flexor býður mikið úrval af stuðningshlífum fyrir flest stoðkerfisvandamál. Það er mikil aukning hjá okkur núna, við finnum það mjög sterkt. Það gæti orsakast að hluta af veðri og vindum því auð- vitað er hægt að tengja veðurfar- ið og andlega líðan okkar að ein- hverju leyti. Þegar erfitt er að kom- ast á milli staða, eins og hefur verið í allan vetur, spilar það einnig inn í líðan fólks. Það þarf seiglu til að halda þetta út. Það eru allir farnir að bíða eftir vorinu,“ segir Auður Ax- elsdóttir, forstöðumaður Hugarafls, Geðheilsu – eftirfylgdar, hjá Heilsu- gæslunni. Hún segir janúarmánuð hafa farið tiltölulega rólega af stað hjá Hugarafli en mikla sveiflu hafa orðið strax í febrúar sem standi enn. „Það mæta um tuttugu manns á hverja nýliðakynningu hjá okkur, flest fólk sem er að leita sér úrræða og vill komast í gang. Þá leita að- standendur mikið til okkar núna því áhyggjur þeirra aukast einnig. Við leggjum áherslu á að fólk haldi sig við rútínuna þó að veðrið sé vont, taki bætiefni og stundi hreyfingu en við notum til dæmis mikið jóga og slökun sem hjálpar mjög mörgum sem glíma við þunglyndi og kvíða,“ útskýrir Auður og hvetur fólk til að leita sér aðstoðar finnist því það vera að missa móðinn. „Ef fólk er til dæmis farið að finna fyrir svefnleysi, kvíða eða treystir sér jafnvel ekki í vinnuna er mik- ilvægt að leita sér hjálpar áður en vandamálið vex og endar í óefni,“ segir Auður. „Það þarf ekki tilvísun til að koma hingað inn og til okkar leitar bæði fólk með grun um geðheilsu- vanda og einnig fólk sem búið er að fá greiningu. Við erum aðgengi- legt úrræði meðan það geta verið þyngri skref að leita inn á spítala. Hjá okkur getur fólk einnig stopp- að í töluverðan tíma í endurhæf- ingu en ég hef trú á því að fólk sem hefur verið að kljást við geðrænan vanda þurfi langan tíma. Við erum með prógramm alla daga, umræðu- hópa, jóga, viðtöl og heimavitjanir.“ Auður segir mikið forvarnarstarf unnið hjá Hugarafli og að það sé já- kvætt að fólk leiti fyrr aðstoðar. „Veðrið í vetur hefur kannski orðið til þess að ýta við fólki að leita sér fyrr hjálpar. Það gæti verið þessi aukning sem við finnum fyrir núna og kannski jákvæði punktur- inn í þessu.” Vont veður hefur áhrif á andlega líðan Hver lægðin á fætur annarri hefur dunið yfir og landsmenn orðnir langeygir eftir vorinu. Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Hugarafls, segir vont veðurfar geta haft áhrif á andlega líðan fólks og að mikil ásókn sé í þjónsutu Hugarafls, geðheilbrigðisþjónustu Heilsugæslunnar, þessar vikurnar. Auður Axelsdóttir, forstöðumaður Hugarafls, geðheilsumiðstöðvar, segir vont veðurfar hafa áhrif á andlega líðan okkar að einhverju leyti. Mikil ásókn er í þjónustu Hugarafls þessar vikurnar. MYND/GVA Auðvitað er hægt að tengja veðurfarið og andlega líðan okkar að einhverju leyti. Þegar erfitt er að komast á milli staða, eins og hefur verið í allan vetur, spilar það einnig inn í líðan fólks. Það þarf seiglu til að halda þetta út. Það eru allir farnir að bíða eftir vorinu.“ Lélegt líkamlegt þrek getur þýtt styttra æviskeið en ella. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem eru með lélegt líkamlegt þrek eru líklegri til að deyja um aldur fram en þeir sem eru í betra formi, en á síðunni Dokt- or.is segir að bandarískir vísindamenn hafi komist að þeirri niður- stöðu að 20% þeirra með þrektölu lægri en 25 séu tvisvar sinnum lík- legri til að deyja um aldur fram miðað við átta ára tímabil. Þeir sem stunda ekki reglulega hreyfingu eiga með tímanum á hættu að enda með þrektölu lægri en 25. Vísindamenn hafa einnig komist að því að rösk ganga eða sund í 30 mínútur á dag, fimm eða fleiri daga vikunnar, tryggir að fólk lendi ekki í áhættuhópi. Með reglulegri hreyfingu má einnig minnka líkur á margvíslegum kvillum og sjúkdómum og draga þannig úr lyfjanoktun. Ef hreyfingin er orðin mjög áköf áreynsla í meira en klukkutíma á dag alla daga vikunnar og viðkomandi orðinn var við álagsmeiðsli og vakn- ar þreyttur og aumur á hverjum morgni, þá er ástæða til að staldra við. www.doktor.is Aukið þrek skilar okkur betri heilsu og lengra lífi 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 5 -F F F 8 1 4 2 5 -F E B C 1 4 2 5 -F D 8 0 1 4 2 5 -F C 4 4 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.