Fréttablaðið - 17.03.2015, Blaðsíða 54
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 34
Óskar Þór Axelsson, sem er hvað þekktastur fyrir leik-
stjórn sína á myndinni Svartur á leik, mun leikstýra
mynd sem unnin er upp úr sögu Yrsu Sigurðardóttur,
Ég man þig, sem naut mikilla vinsælda hérlendis og
erlendis þegar hún kom út. „Ef ég ætti að lýsa myndinni
þá myndi ég segja að hún verði draugaþriller,“ útskýrir
leikstjórinn sem er farinn að huga að tökum. Myndin
verður framleidd af Sigurjóni Sighvatssyni og Zik Zak.
Í síðustu viku hlaut hún 90 milljóna króna styrk frá
Kvikmyndamiðstöð Íslands og segir Óskar styrkinn
vera gríðarlega mikilvægan. „Við hefðum aldrei getað
gert myndina ef það væri ekki fyrir þennan styrk.
Vissulega er heilmikill áhugi að utan, ekki síst vegna
vinsælda sögunnar. En þegar maður gerir svona mynd
þarf maður alltaf ákveðna viðurkenningu frá heima-
markaðinum. Þetta er mikilvægt til að geta ýtt verk-
efninu af stað,“ útskýrir h.
Brosir nú hringinn
Óskar segir mikla pressu fylgja því að gera handrit
byggt á áður útgefinni sögu, eins og í þessari mynd.
„Þetta er auðvitað öðruvísi en að gera frumsamið
handrit. Þessu fylgir meiri pressa,
því fólk sér fyrir sér karakterana
þegar það les bókina. En að sama
skapi er gott að hafa söguna til að
styðjast við þegar maður skrifar
handritið, sem hjálpar mikið til.
Svo er yfirleitt beðið eftir kvik-
myndum sem byggðar eru á svona
vinsælum sögum með mikilli eft-
irvæntingu,“ segir Óskar og bætir
við að hann hafi verið afar sáttur
við viðbrögð Yrsu, þegar hún las
handritið.
„Eftir að hafa kviðið því ógur-
lega að lesa kvikmyndahandrit-
ið að Ég man þig, brosi ég núna
hringinn. Í stuttu máli þá er
handritið sannkölluð meistara-
smíð,“ segir Yrsa um handrit-
ið sem Óskar samdi ásamt Ottó
Borg. „Sérstaklega þótti mér
skemmtilegt sem höfundi sög-
unnar að sjá hvernig handrits-
höfundarnir tækla mikilvæg
atriði sem koma til dæmis fram
í hugsunum persónanna í frum-
textanum,“ bætir Yrsa við.
Tvær sögur
fléttaðar saman
„Þetta eru í raun tvær sögur
sem fléttast saman í eina,“
segir Óskar um Ég man þig og
bætir við: „Þessar sögur lúta
ólíkum lögmálum. Önnur er alveg ekta draugasaga,
en hin meiri sakamálasaga. Þær hafa ólíkan takt og
það þarf að vanda vel til verka við að koma þeim til
skila, hvorri á sinn hátt.“ Hann segir að þegar hann las
söguna í fyrsta sinn hafi það aldrei vafist fyrir honum
að hægt væri að gera sögunni góð skil á hvíta tjald-
inu. „Þegar maður fer í svona verkefni er nauðsynlegt
að lesa söguna nokkrum sinnum. Þegar ég las hana í
fyrsta sinn var aldrei vafi á að þetta yrði að kvikmynd.
Við fyrsta lestur reynir maður bara að ná tilfinning-
unni í sögunni. Maður sér fyrir sér nokkrar senur hér
og þar, hvað virkar í kvikmynd og hvað ekki,“ segir
Óskar. Myndin verður fyrsta kvikmyndin byggð á sögu
eftir Yrsu. „Það er auðvitað ákveðinn skandall að það
sé ekki búið að mynda neina af sögum Yrsu. Þetta er
algjört draumaverkefni.“
Líklegast tekið upp fyrir vestan
Sögusvið bókar Yrsu er Ísafjörður og Hesteyri. Óskar
segist nokkuð kunnugur aðstæðum á Vestfjörðum og
að allar líkur séu á að tökur fari að mestu fram þar.
„Sagan gerist að vetri til. Við þurfum að huga að ýmsu
þegar kemur að tökum. Við erum ekki búin að fullgera
planið yfir tökur. En við viljum
algjörlega taka upp á Ísa-
firði og Hesteyri. Það ættu
að verða einhverjar svaðil-
farir þarna fyrir vestan.“
Ekki er búið að ráða í
hlutverk í myndinni. Yrsa
segist sjálf hlakka mikið til
þess að sjá hvaða leikkonur
verði í aðalhlutverkum. Hún
segist vera hvað ánægðust
með að Katrín og Líf haldi
sessi sínum sem burðar-
persónur sögunnar í þeim
hluta sem gerist á Hesteyri
og vísar þar til umræðunnar
um skort á spennandi kven-
hlutverkum í kvikmyndum.
„Ég er mjög spennt að sjá
hvaða leikkonur verða valdar
í hlutverk þeirra, sem og auð-
vitað önnur hlutverk. Það
gleður mig líka að myndin
skuli verða íslensk í húð og
hár. Ég hlakka mikið til að sjá
afraksturinn, ekki síst til að
geta dáðst að fögru umhverfi
Vestfjarða á hvíta tjaldinu,“
bætir hún við.
Kjartanatli@365.is
Mynd byggð á bók Yrsu
verður „draugaþriller“
Óskar Þór Axelsson leikstýrir kvikmynd sem verður unnin úr sögu Yrsu Sigurðardótt-
ur sem ber titilinn Ég man þig. Yrsa segist hafa brosað hringinn er hún las handritið.
ALGJÖRT DRAUMAVERKEFNI Óskar Þór Axelsson leikstjóri segir það algjöran draum að fá að leikstýra kvikmynd byggðri á bók
Yrsu. Yrsa Sigurðardóttir segist hafa brosað hringinn þegar hún las handritið sem Óskar gerði í samvinnu við Ottó Borg.
VINSÆL BÓK Ég man þig eftir Yrsu
var vinsæl hérlendis og erlendis.
„Ég er mjög mikil morgunmatarmann-
eskja og ég fæ mér eiginlega alltaf
linsoðið egg, súrdeigsbrauðsneið með
smjöri, osti og spægipylsu. Eitt glas
af appelsínusafa og sterkt svart kaffi.
Á tyllidögum er brownie úr Passion-
bakarínu bætt við.“
Katla Rut Pétursdóttir, leikkona og veitinga- og
viðburðastjóri Tjarnarbarsins í Tjarnarbíói.
MORGUNMATURINN
Hljómsveitin Of Monsters and Men mun
koma fram í Hörpu í ágúst. Sveitin send-
ir frá sér sína aðra breiðskífu í sumar og
leggur sveitin af stað í tónleikaferðalag
víða um heim í maímánuði.
„Við hlökkum mikið til að spila í Hörpu
í ágúst. Það verður gott að koma aðeins
heim, halda tónleika og fá skammt af
íslensku sumri í leiðinni,“ segir Ragnar
Þórhallsson um fyrirhugaða tónleika hér
á landi.
Hin nýja plata sveitarinnar mun bera
titilinn Beneath the Skin og verður gefin
út hér á landi á vegum Record Records.
Sveitin sendi frá sér lagið Crystals í gær,
sem er fyrsta smáskífan af plötunni. Með-
limir OMAM hafa dvalið ýmist hér á landi
eða í Los Angeles undanfarið ár og unnið
með upptökustjóranum Rich Costey. Hann
hefur unnið með sveitum á borð við Muse,
Death Cab for Cutie og Interpol.
Sveitin hefur notið mikilla vinsælda um
allan heim og komið fram á hátíðum á borð
við Lollapalooza, Bonnaroo, Coa chella,
Glastonbury og spilað um allan heim á
tónleikum. Fyrsta stopp sveitarinnar á
tónleikaferðalaginu í ár verður í Toronto í
Kanada þann 4. maí. - kak
Of Monsters and Men heldur tónleika á Íslandi
„Það verður gott að koma aðeins heim og fá skammt af íslensku sumri í leiðinni,“ segir Ragnar Þórhallsson.
KOM HEIM
Sveitin
ferðast víða
um heim en
kemur svo
til landsins í
ágúst.
MYND/MEREDITH
TRUAX
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
5
-D
8
7
8
1
4
2
5
-D
7
3
C
1
4
2
5
-D
6
0
0
1
4
2
5
-D
4
C
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K