Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 9
Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000 J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Reitir fasteignafélag hf. birtir lýsingu hlutabréfa í tengslum við almennt hlutafjárútboð og umsókn um að öll útgefin hlutabréf í félaginu verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Heildarfjöldi útgefinna hluta í Reitum fasteignafélagi hf. er 754.713.861 og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Allir útgefnir hlutir í félaginu eru í sama flokki og jafn réttháir. Félagið á enga eigin hluti. Hlutir í félaginu eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands. Auðkenni hlutanna hjá Verðbréfaskráningu Íslands er REITIR og er óskað eftir sama auðkenni í kerfum Nasdaq Iceland. ISIN númer þeirra er IS0000020352. Arion banki hyggst selja 13,25% hlutafjár í félaginu með almennu útboði 25.–27. mars Bankinn hyggst selja þegar útgefna hluti í Reitum fasteignafélagi hf. með almennu útboði sem fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með. Markmið útboðsins er annars vegar að gera félaginu kleift að uppfylla skilyrði Nasdaq Iceland um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði en hins vegar horfir seljandi til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði. Stærð útboðsins nemur 100.000.000 hlutum eða um 13,25% hlut í félaginu og nemur söluandvirði þeirra að lágmarki 5.550 milljónum króna. Á vef umsjónaraðila útboðsins, arionbanki.is verður tekið við áskriftum frá 25. mars 2015 klukkan 16.00 til 27. mars 2015 klukkan 16.00. Tvær áskriftarleiðir eða tilboðsbækur eru í boði en ákvörðun um stærð tilboðsbóka mun taka mið af eftirspurn í útboðinu, bæði hvað varðar verð og magn. Meginregla við úthlutun verður að taka þeim áskriftum sem berast á hæsta gengi. Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðs verða birtar opinberlega 30. mars 2015. Útboðið er með fyrirvara um að hlutir í félaginu verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Slíkt samþykki birtir Nasdaq Iceland opinberlega ásamt tilkynningu um fyrsta mögulega viðskiptadag með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Eindagi kaupverðs er áætlaður 7. apríl 2015 og stefnt að því að viðskipti geti hafist á Aðalmarkaði 9.apríl 2015. Tilboðsbók A > Hver áskrift að andvirði 100.000–10.000.000 kr. > Verðbil 55,5–63,5 kr./hlut > Eitt endanlegt verð, jafnt eða lægra en í B Tilboðsbók B > Áskrift að andvirði yfir 10.000.000 kr. > Lágmarksverð 55,5 kr./hlut > Eitt endanlegt verð, jafnt eða hærra en í A Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um félagið og skilmála útboðsins í lýsingu hlutabréfa og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá fyrirtækjaráðgjöf og markaðsviðskiptum fjárfestinga- bankasviðs Arion banka eða verðbréfa- og lífeyrisþjónustu í síma 444-7000 og tölvupóstfangi reitirutbod@arionbanki.is. Reitir fasteignafélag hf. birtir lýsingu skuldabréfa í tengslum við umsókn um að öll útgefin skuldabréf í flokknum REITIR151244 verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland Höfuðstólsfjárhæð bréfanna er 25.550.200.000 kr. og hafa þau öll verið seld. Útgáfudagur bréfanna var 11. desember 2014 og var sala þeirra liður í endurfjármögnun félagsins. Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og bera fasta 3,75% vexti. Höfuðstóll og vextir greiðast með 360 jöfnum mánaðarlegum greiðslum 15. janúar 2015 til 15. desember 2044. Skuldabréfin njóta trygginga til jafns við aðrar ákveðnar skuldbindingar útgefanda samkvæmt sérstöku tryggingafyrirkomulagi. Skuldbindingar sem njóta trygginganna námu 52,7 milljörðum króna í árslok 2014 en á sama tíma nam bókfært virði eigna sem settar eru til tryggingar 97,5 milljörðum króna. Útgefanda er heimilt að láta nýjar skuldbindingar njóta trygginganna og/eða gera breytingar á veðandlaginu án þess að leita samþykkis hjá lánardrottnum, að því gefnu að lánaþekja fari ekki undir 70%. Skuldabréfaflokkurinn var gefinn út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands, í einingum sem hver var 1 kr. að nafnverði. Auðkenni skuldabréfanna hjá Verðbréfaskráningu Íslands er REITIR151244 og er óskað eftir sama auðkenni í kerfum Nasdaq Iceland. ISIN númer þeirra er IS0000025344. Flokkurinn er stækkanlegur í allt að 50.000.000.000 kr. Nánari upplýsingar Útgefandi lýsinga, hlutabréfa og skuldabréfa er Reitir fasteignafélag hf., kennitala 711208-0700, Kringlunni 4-12, Reykjavík. Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með útboðinu og því ferli að fá hlutabréf og skuldabréf félagsins tekin til viðskipta. Nánari upplýsingar um félagið, hlutabréf þess, skilmála hlutafjárútboðsins og skilmála skuldabréfanna má finna í framangreindum lýsingum. Þær eru dagsettar 17. mars 2015 og birtar á vef félagsins, reitir.is/fjarfestar. Þar má nálgast lýsingarnar næstu 12 mánuði. Lýsingarnar má einnig nálgast á vef Arion banka, arionbanki.is. Hægt er að óska eftir innbundnum eintökum af lýsingu skuldabréfa hjá Reitum í síma 575-9000. Frá 18. mars 2015 má nálgast innbundin eintök af lýsingu hlutabréfa hjá Reitum á skrifstofu félagsins í Kringlunni 4-12, Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19, Reykjavík. Reykjavík, 17. mars 2015 Stjórn Reita fasteignafélags hf. 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 2 5 -D D 6 8 1 4 2 5 -D C 2 C 1 4 2 5 -D A F 0 1 4 2 5 -D 9 B 4 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.