Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 17. mars 2015 | SKOÐUN | 15
HYUNDAI i20
Nýskr. 05/14, ekinn 31 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.490 þús.
Rnr. 120626.
TOYOTA AVENSIS SOL
Nýskr. 02/13, ekinn 45 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.990 þús.
Rnr. 131488.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
MERCEDES BENZ ML
Nýskr. 12/11, ekinn 64 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 102467.
NISSAN PATROL SE
Nýskr. 11/09, ekinn 114 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.360 þús.
Rnr. 142572.
SUZUKI GRAND VITARA
Nýskr. 06/11, ekinn 56 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.690 þús.
Rnr. 102377.
BMW X5 30d
Nýskr. 09/11, ekinn 55 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 8.980 þús.
Rnr. 102498.
HONDA ACCORD ELEGANCE
Nýskr. 07/13, ekinn 37 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 4.090 þús.
Rnr. 282432.
Frábært verð!
9.380 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 90%
FJÁRMÖGNUN
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
Í nýlegum tillögum að
millidómstigi er gert ráð
fyrir grundvallarbreyt-
ingu við skipan dóm-
ara. Samkvæmt núgild-
andi reglum tekur fimm
manna dómnefnd afstöðu
til þess hvaða umsækj-
andi um dómarastöðu sé
hæfastur. Er óheimilt að
skipa mann sem nefndin
hefur ekki talið hæfast-
an, nema ráðherra afli
samþykkis Alþingis og
verður þá viðkomandi samt sem
áður að fullnægja hæfisskilyrð-
um að mati nefndarinnar (t.d.
um að teljast hæfur til að gegna
embætti í ljósi starfsferils og
lögfræðilegrar þekkingar). Með
þessu fyrirkomulagi eru nefnd-
inni, sem í sitja tveir menn til-
nefndir af Hæstarétti, annar sem
formaður, en hinir frá dómstóla-
ráði, Lögmannafélagi Íslands og
Alþingi, fengin veruleg áhrif um
það hverjir fara með dómsvald
í landinu, sumir myndu segja
úrslitavald. Í öllu falli hefur ráð-
herra án undantekninga farið að
tillögu nefndarinnar frá því regl-
urnar tóku gildi árið 2010.
Hlutverk dómnefndar takmarkað
Samkvæmt hinum nýju tillög-
um verður hlutverk nýrrar dóm-
nefndar takmarkað við að fjalla
um hæfi dómaraefna án þess að
tekin sé afstaða til þess hver telj-
ist hæfastur. Þegar um er að ræða
hæstaréttardómara ber ráðherra
hins vegar að afla samþykkis
Alþingis fyrir þeim manni sem
hann hyggst leggja til við for-
seta Íslands að verði skipaður.
Á mannamáli þýðir þetta að við
skipun héraðsdómara og lands-
réttardómara (sbr. hið nýja milli-
dómstig) mun ráðherra njóta stór-
aukins svigrúms til að velja á milli
hæfra umsækjenda.
Við skipun hæstaréttardómara
mun hið sama eiga við, þó þann-
ig að ráðherra þarf að afla stuðn-
ings þingsins. Með hliðsjón af því
að hér á landi hefur stjórnmála-
menning mótast í kring-
um meirihlutastjórnir og
þingræði (ólíkt t.d. Banda-
ríkjunum hvaðan fyrir-
myndin er líklegast sótt),
verður að teljast alls óljóst
hversu virkt eftirlit þings-
ins yrði við þessa ákvörð-
unartöku ráðherra. Dóm-
stólar gætu endurskoðað
lögmæti ákvörðunar ráð-
herra en aldrei fellt hana
úr gildi.
Tilhögun við skipun
dómara, ekki síst hæstaréttar-
dómara, er í eðli sínu viðkvæmt og
flókið mál. Dómstólar og þar með
dómarar eiga að vera (og eiga að
sýnast vera) sjálfstæðir og óháð-
ir öðrum þáttum valdsins, þ. á m.
ríkisstjórn og ráðherrum. Skip-
un dómara er hins vegar stjórn-
valdsákvörðun sem ráðherrar
bera ábyrgð á, bæði pólitíska og
lagalega, gagnvart Alþingi, jafn-
vel þegar skipun er formlega á
hendi forseta Íslands (sbr. hæsta-
réttardómara). Samkvæmt grunn-
reglum íslenskrar stjórnskipunar
hlýtur eftirlit og aðhald með ráð-
herra fyrst og fremst að vera hjá
Alþingi sem aftur sækir umboð
sitt til þjóðarinnar á grundvelli
kosninga. Öflugt aðhald frá fag-
legri stjórnsýslu, t.d. dómnefnd,
svo og ýmissa eftirlitsstofnana er
óaðskiljanlegur þáttur lýðræðis-
legs samfélags, svo ekki sé minnst
á umfjöllun fjölmiðla og fræði-
manna. Að þessu leyti fela milli-
dómstigstillögurnar í sér hreina
afturför sem auk þess samræmist
illa alþjóðlegum tilmælum.
Ráðherra án aðhalds
Það kerfi við skipun dómara sem
tíðkaðist fram til ársins 2010 bauð
upp á aðhalds- og eftirlitsleysi
Alþingis með ráðherra sem gat
farið sínu fram, hvað sem taut-
aði og raulaði. Það segir e.t.v. sína
sögu um vandræðaganginn að ferl-
ið við skipun dómara var eitt af
þeim atriðum sem Framkvæmda-
stjórn ESB lýsti áhyggjum yfir á
sínum tíma. Með breytingunni árið
2010 var bætt úr þessum göllum
með því að taka raunverulegt skip-
unarvald af ráðherra og fela það
að verulegu leyti faglegri stjórn-
sýslunefnd. Sú leið er ekki hafin
yfir gagnrýni með hliðsjón af
grunnreglum um reikningsskap og
ábyrgð við meðferð framkvæmda-
valds. Sú leið að áskilja einfalt
meirihluta samþykki þingsins er
heldur ekki hafin yfir gagnrýni.
Hugsa mætti sér ýmsar aðrar leið-
ir, t.d. samþykki 2/3 Alþingis (eða
eftirlits- og stjórnskipunarnefnd-
ar þingsins) við tillögu ráðherra,
þó þannig að niðurstaða dómefnd-
ar um hvaða umsækjandi teldist
hæfastur réði ef ráðherra og þing
hefðu ekki komið sér saman um
dómaraefni innan ákveðins tíma.
Engin myndi efast um aðhald
þingsins við þessar aðstæður en
jafnvel þetta fyrirkomulag er ekki
gallalaust. Allt þarf þetta frekari
skoðunar og umræðu við.
Það kemur óneitanlega nokk-
uð á óvart að gert sé ráð fyrir
grundvallarbreytingum við skip-
un dómara sem lið í stofnun milli-
dómstigs. Slík breyting var ekki
óhjákvæmilegur þáttur í slíkri
tillögugerð. Hvað sem því líður
verður mál sem þetta ekki afgreitt
nema lagt sé mat á reynslu und-
angenginna ára og áratuga, ekki
aðeins hér á landi heldur einnig
erlendis, og allir tiltækir kostir
skoðaðir. Einungis að lokinni slíkri
athugun getur farið fram nauðsyn-
legt samráð og umræða um hvaða
leið beri að fara. Fyrirliggjandi til-
laga getur e.t.v. skoðast sem upp-
haf slíkrar umræðu en er bersýni-
lega ófullnægjandi grundvöllur
fyrir umsvifalausri breytingu.
Hvernig á að skipa dómara?
Ágætar ástæður liggja
að baki því að sumir
vilja selja áfengi í mat-
vöruverslunum, allt frá
heimspekirökum um
frelsi einstaklingsins til
margskonar hagkvæmn-
israka. Í mínum huga
vega þó þyngra rökin
fyrir óbreyttu ástandi
við sölu áfengis, lýð-
heilsurökin og þau rök að
samfélag skuli taka til-
lit til sinna veikustu ein-
staklinga.
Stærstu heilbrigðisvandamál
heims tengjast ofneyslu á mat
og vanabindandi efnum, lög-
legum og ólöglegum. Fyrir utan
fræðslu og forvarnir virðist
neyslustýring og skert aðgengi
fólks að vörunni vera áhrifarík-
asta aðferðin til að lágmarka
skaðann af neyslu hennar. Ég
man þá tíð þegar alls staðar var
reykt, jafnvel í skólastofum.
Síðar var skorin upp herör gegn
reykingum, tóbak gert ósýnilegt
í búðum og reykingar útlægar
á sífellt fleiri stöðum. Auðvitað
fannst reykingamönnum að sér
þrengt, en langar einhvern aftur
til þess tíma þegar þjóðin lykt-
aði af tóbaksreyk vegna beinna
og óbeinna reykinga?
Reykingar eru reyndar að því
leyti öðruvísi en áfengisneysla
að flesta sem reykja langar að
hætta vegna skaðsemi efnis-
ins á meðan fæstir sem drekka
telja sér það skaðlegt. Meiri-
hluti fólks getur notið rauðvíns-
glassins með steikinni og sett
svo tappann í flöskuna. Hins
vegar verður talsvert stórum
hluta þjóðarinnar ekki sjálfrátt
um leið og áfengi kemst inn í
æðar hans. Og reyndar
nægir að áfengið komist
inn í hugsun alkóhólist-
ans til að rugla dóm-
greind hans, til dæmis
þegar hann kaupir sér
umrædda steik í mat-
vörubúðinni. Erfitt er
að segja nákvæmlega
hversu stór hann er þessi
hluti þjóðarinnar sem
getur ekki sett tappann
í flöskuna eftir fyrsta
glasið, en þeir eru fleiri
en við höldum.
Aldrei mikill áhugi
Það er örugglega ekki of varlega
áætlað að helmingur þjóðarinn-
ar þjáist – á beinan eða óbeinan
hátt – vegna sjúkdómsins alkó-
hólisma. Líklega er það vegna
þess sem aldrei hefur verið mik-
ill áhugi meðal þjóðarinnar á að
fá vín í venjulegar búðir.
Þetta er stærri hluti þjóðar-
innar en svo að fram hjá honum
verði horft. „En eru ekki líka
margir með hjarta- og æðasjúk-
dóma?“ getur fólk sagt „eigum
við líka að setja feitt kjöt í sér-
verslanir?“ Nei, það þurfum við
blessunarlega ekki að gera vegna
þess að samband hjartasjúk-
lingsins við kjötið sitt er ekki
eins líffræðilega og tilfinninga-
lega flókið og samband alkóhól-
istans við vínið, en hann getur
eftir margra ára edrúmennsku
skyndilega gengið aftur inn í
heim neyslunnar vegna utanað-
komandi áreitis sem kallað er
fíknvaki og getur verið í formi
vínflösku sem stillt hefur verið
upp á seljandi hátt við hliðina á
steikinni. „En af hverju ættum
við sem getum drukkið eins og
siðað fólk að taka tillit til fylli-
byttanna?“ spyrja hinir sömu.
Svarið er einfaldlega það að
alkóhólistinn þarfnast hjálpar
samfélagsins á sama hátt og allir
aðrir sjúklingar. Enginn á að
vera einn í veikindum sínum.
Hvers vegna skyldu stjórnvöld
ákveða að stilla upp fíknvök-
um fyrir veikt fólk eins víða og
hægt er? Hvers vegna skyld-
um við hverfa frá þeirri leið til
áfengissölu sem fólk er tiltölu-
lega ánægt með og sem þykir
til fyrir myndar af lýðheilsu-
ástæðum? Áfengisneysla er stórt
félagslegt vandamál hérlendis
en líkamlegir sjúkdómar eins og
skorpulifur urðu ekki þekktir
fyrr en með aukinni dagdrykkju
sem hófst í lok síðustu aldar.
Því skyldu stjórnvöld hvetja til
hinnar hættulegu dagdrykkju?
Þó að bjórdós líti ekki hættulega
út í hillunni vita allt of margir
að þessi dós getur markað upp-
hafið að endalokunum. Ég er
hrædd um að margir hryggist ef
breytingar á lögum um verslun
með áfengi og tóbak ná fram að
ganga. En auð vitað eru það bara
„tilfinningarök“.
Vín í búð?
STJÓRNSÝSLA
Skúli Magnússon
formaður Dómara-
félags Íslands
➜ Á mannamáli þýðir þetta
að við skipun héraðsdómara
og landsréttardómara (sbr.
hið nýja millidómstig) mun
ráðherra njóta stóraukins
svigrúms til að velja á milli
hæfra umsækjenda.
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Björg Árnadóttir
sjálfstætt starf-
andi í Reykja-
víkurAkademíunni
➜ Stærstu heilbrigðisvanda-
mál heims tengjast ofneyslu
á mat og vanabindandi
efnum, löglegum og ólög-
legum. Fyrir utan fræðslu og
forvarnir virðist neyslustýr-
ing og skert aðgengi fólks að
vörunni vera áhrifaríkasta
aðferðin til að lágmarka
skaðann af neyslu hennar.
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
5
-F
6
1
8
1
4
2
5
-F
4
D
C
1
4
2
5
-F
3
A
0
1
4
2
5
-F
2
6
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K