Fréttablaðið - 17.03.2015, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 17. mars 2015 | SKOÐUN | 17
Að veðrinu undanskildu
hafa fréttir um tvö mál
vak ið verðskuldaða
athygli undanfarið. Ann-
ars vegar fjölluðu fjöl-
miðlar um kostnað inn-
anríkisráðuneytisins við
ráðgjöf á sviði almanna-
tengsla. Hins vegar hafa
verið fluttar fréttir af
bréfi utanríkisráðherra
til stækkunarstjóra ESB
í Brussel. Þar hefur verið
reynt að fá botn í hvað
þar kom fram, hvað bréf-
ið þýðir og hvort ráðherrann hafði
á annað borð heimild til að skrifa
það.
Ekkert er að því að segja frá
kostnaði ríkisins við ráðgjöf
hvers konar. Það er eðlilegur hluti
af aðhaldi fjölmiðla. Í kjölfarið
heyrðust þó hneykslunarraddir
yfir því að ráðherrann hefði leit-
að sér ráðgjafar á þessu sviði.
Einhverjir töldu óeðlilegt að eyða
fjármunum ríkisins í slíkt.
Ráðherra hefði þurft ráðgjöf
Þá er gott að horfa á annað nýlegt
dæmi um samskipti stjórnvalda,
bréf Gunnars Braga Sveinsson-
ar utanríkisráðherra til stækk-
unarstjóra ESB. Þar hefði ráð-
herrann betur fengið sérfræðing í
almannatengslum sér til ráðgjafar.
Góður ráðgjafi hefði ráðlagt
utanríkisráðherra að tryggja
skýrleika skilaboðanna. Eitthvað
er að samskiptum ef tveir menn
lesa bréf og skilja innihald þess á
ólíkan hátt. Næsta verkefni ráð-
gjafans væri að fá ráðherrann
til að kynna innihald bréfsins
fyrir samherjum sínum í póli-
tík og skýra það fyrir þeim svo
allir væru með efnið á hreinu. Að
öðrum kosti er víst að þeir tali
þvers og kruss um efnið.
Að því loknu hefði ráðgjafinn
eflaust ráðlagt ráðherra að hafa
samráð við utanríkismálanefnd.
Tæknilega má vera að slíkt sé
óþarfi. Um það mega lögfræð-
ingar eiga síðasta orðið. En í raun
skiptir það ekki máli. Frá sjónar-
hóli samskipta skiptir máli að ef
það er ekki gert þá er hætt við að
umræðan fari að snúast um tækni-
legt atriði, ekki efni bréfsins.
Með skýrari samskiptum og ráð-
gjöf við sérfræðinga í boðmiðlun
hefði utanríkisráðherra geta forð-
ast þá hringavitleysu sem einkennt
hefur bréfamálið. Hluti af verk-
inu hefði verið að svara gagnrýni
á málið í viðtölum við fjölmiðla og
úr pontu á Alþingi.
Slæm niðurstaða þrátt fyrir ráðgjöf
Það er ekkert hægt að fullyrða um
gæði þeirrar ráðgjafar almanna-
tengla sem Hanna Birna Krist-
jánsdóttir fékk í aðdraganda þess
að hún sagði af sér sem innanrík-
isráðherra. Of margt er á huldu
um málið. Við vitum ekki hvenær
hún leitaði sér ráðgjafar, hvað
ráðgjafarnir fengu að vita eða
hvort ráðherrann hafi farið eftir
ráðgjöfinni.
Það sem við vitum er að niður-
staðan var neikvæð. Hún var
slæm fyrir ráðherrann, ráðu-
neytið, ríkisstjórnina, Alþingi og
almenning. Kannski var ráðgjöf-
in léleg. Kannski tók ráðherrann
ekki mark á ráðgjöfinni og gerði
allt öfugt við það sem henni var
ráðlagt. Hvað sem því líður er frá-
leitt að halda því fram að það sé
eitthvað óeðlilegt við að ráðherrar
eða aðrir stjórnendur leiti sér ráð-
gjafar á sviði almannatengsla.
Sá tími er löngu liðinn að stjórn-
endur viti allt manna best. Í dag
eru bestu stjórnendurnir leiðtog-
ar. Góður leiðtogi hefur þekkingu
til að nýta sér kunnáttu sérfræð-
inga sem geta leyst verkefni dags-
ins með bestum hætti.
Þegar bíllinn bilar leitum við
til bifvélavirkja. Þegar líkamleg
heilsa klikkar förum við til lækn-
is. Ef við skiljum ekki skatta-
skýrsluna tölum við við endur-
skoðanda. Og ef við þurfum að
eiga í flóknum samskiptum sem
við erum óvön að standa í leitum
við til sérfræðings í almanna-
tengslum. Niðurstaðan á að vera
sú sama í öllum tilvikum; tekið
er á málinu af fagmennsku til að
leysa það hratt og vel.
Góð nýting á fé og tíma
Utanríkisráðherra hefði átt að
hafa þetta í huga áður en hann
skrifaði bréfið til Brussel. Hann
hefði sennilega átt að eyða smá-
ræði af skattfé ríkisins í að leita
sér ráðgjafar til að spara sér og
öðrum tíma í að ræða keisarans
skegg og leyfa umræðunni að snú-
ast um efnisatriði málsins. Það er
góð nýting á bæði fjármunum og
tíma.
Þurfti ráðherra
ráðgjöf um bréfi ð
til Brussel?
Nei, ég ætla ekki í fram-
boð. En ég vil fá forseta
sem hefur fengið á sig
brotsjói. Sem skilur hvað
er að vera fátæk. Sem
hefur aftur og aftur geng-
ið eða skellt hjólastólnum á
lokaðar dyr.
Forseta sem er auð-
mjúkur andspænis þessari
dásamlegu gjöf sem lífið
er. Forseta sem er ekk-
ert sérstaklega fallegur, í
fínum fötum, á fínum bíl
eða vel menntaður. Alls ekki for-
seta sem ræður vel við afborganir
af fína einbýlishúsinu sínu.
Ég vil forseta sem
hefur bara séð silfur- og
gullskeiðar í búðarglugg-
um. Forseta sem er ekki
„frambærilega forseta-
efnið“ sem forréttinda-
fólkið leitar að – og mun
finna. Ég vil forseta sem
brennur fyrir jafnrétti og
kærleika.
Ég ætla að skjóta því
inn hér, til að vera nú
alveg heiðarleg, að helst
vil ég engan forseta. (Mér
finnst líka aldursskilyrðið fárán-
legt). Ég vil að embættið verði
lagt niður. Að Bessastöðum verði
breytt í lúxushótel um helgar fyrir
fátækt fólk, fatlað fólk, veikt fólk,
einstæða foreldra sem geta aldrei
boðið börnunum í frí, gamalt fólk,
einmana fólk. Á virkum dögum
mega Bessastaðir svo gjarnan
vera lýðræðissetur og lýðræðis-
safn þar sem unnið er sleitulaust
að kynningu á, vinnu í og sam-
ræðu um hvernig efla má lýðræði.
En þetta er ekki að fara að ger-
ast fyrir næstu forsetakosningar.
Til þess þarf stjórnarskrárbreyt-
ingu. Og hún tekur tíma.
Í millitíðinni sætti ég mig við
forseta sem er fátæk eða fötluð
nema hvort tveggja sé.
Forsetinn verði fátæk eða fötluð
FORSETI
Kristín Elfa
Guðnadóttir
rithöfundur og
Pírati
ALMANNA-
TENGSL
Brjánn Jónasson
sérfræðingur í
boðmiðlun
➜ Góður ráðgjafi
hefði ráðlagt utanrík-
isráðherra að tryggja
skýrleika skilaboð-
anna. Eitthvað er að
samskiptum ef tveir
menn lesa bréf og
skilja innihald þess á
ólíkan hátt.
Kíktu á fermingarvefinn okkar
eða komdu í kaffi.Við tökum vel
á móti þér!
oki
r.
Allt sem þú þar
Dell Inspiron 3531
Verð: 54.990 kr.
Einföld og smart
Bogart fartölvutaska - þrír litir
Verð: 9.990 kr.
Upplifðu krainn
Jabra þráðlaus heyrnartól
Verð: 31.990 kr.
10" tryllitæki
Samsung Tab 4
Verð: 49.990 kr.
Guðrúnartúni 10, Reykjavík og Tryggvabraut 10, Akureyri | Opið mánudaga til föstudaga frá 8 til 17
advania.is/fermingar
MBA
TAKTU FRUMKVÆÐI AÐ EIGIN FRAMA
www.mba.is
KYNNINGARFUNDUR MBA-NÁMSINS Í HÁSKÓLA ÍSLANDS
Kynningarfundur um alþjóðlega vottað MBA-nám við Háskóla Íslands verður haldinn
miðvikudaginn 18. mars nk. Magnús Pálsson forstöðumaður MBA-námsins
kynnir námið og fyrirkomulag þess en einnig mun Jón Ólafur Halldórsson, MBA
2012 og forstjóri Olís, segja frá sinni reynslu af náminu.
Kynningin stendur frá kl. 12:00 til 12:45 og fer fram í stofu HT-101 á Háskólatorgi.
Boðið verður upp á létta hádegishressingu en skráning fer fram með því að senda
tölvupóst á mba@hi.is.
PIPA
R
\TB
W
A
•
SÍA
•
15
13
3
5
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
5
-F
B
0
8
1
4
2
5
-F
9
C
C
1
4
2
5
-F
8
9
0
1
4
2
5
-F
7
5
4
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K