Fréttablaðið - 17.03.2015, Side 20
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
FJÖLBREYTT
„Geðheilsa er svo
víðtækt fyrirbæri,
alveg eins og lík-
amleg heilsa, að
það eru ákaflega
mörg og fjölbreytt
atriði sem geta fall-
ið undir þann hatt.
Meðal annars er
mikilvægur þáttur
í geðræktarstarfi
að auka jafnrétti og
vinna gegn hvers
kyns fordómum og
misrétti. Til þess
að fólki líði vel þarf
því að finnast það
velkomið og sam-
þykkt í umhverfi
sínu.“
Nýlega gaf Embætti landlæknis út handbók um geðrækt í fram-haldsskólum en henni er ætlað
að efla og styrkja geðræktarstarf í ís-
lenskum framhaldsskólum. Að sögn
Sigrúnar Daníelsdóttur, verkefnastjóra
hjá Embætti landlæknis, hefur bókin
tvenns konar hlutverk. „Henni er ætlað
að vera stuðningstæki fyrir þá sem
sinna geðræktarstarfi innan framhalds-
skóla og sem slík að vera verkfærakista
og uppspretta hugmynda. Hins vegar
má þar finna margvíslegan fróðleik sem
á erindi til flestra, eins og hvernig hægt
er að stuðla að bættum svefnvenjum,
auka núvitund í daglegu lífi og efla
starfsánægju. Með handbókinni erum
við líka að vekja athygli á því að geð-
heilsa og líðan er mikilvægur þáttur
alhliða heilbrigðis.“ Handbókin er gefin
út í tengslum við geðræktarhluta Heilsu-
eflandi framhaldsskóla og eru kaflar
bókarinnar skrifaðir af hópi höfunda
sem ýmist eru sérmenntaðir á sviði
umfjöllunarefnisins eða hafa mikilvæga
reynslu af því að vinna með efnið á vett-
vangi skóla.
Heilsueflandi framhaldsskóli er sam-
starfsverkefni Embættis landlæknis
og framhaldsskóla landsins. „Markmið
þess er að skapa skólaumhverfi sem
stuðlar að sem bestri heilsu og vellíðan
meðal nemenda og starfsfólks. Unnið
er með fjóra meginþætti: næringu,
hreyfingu, geðrækt og lífsstíl, en undir
það síðastnefnda falla til dæmis þættir
eins og áfengis- og vímuvarnir og ábyrg
netnotkun.“
SKÓLAFÓLK MEÐVITAÐ
Hugtakið geðrækt vísar í allt það sem
við gerum markvisst til þess að efla
geðheilsu og vellíðan, segir Sigrún.
„Geðheilsa er svo víðtækt fyrirbæri,
alveg eins og líkamleg heilsa, að það
eru ákaflega mörg og fjölbreytt atriði
sem geta fallið undir þann hatt. Meðal
annars er mikilvægur þáttur í geðrækt-
arstarfi að auka jafnrétti og vinna gegn
hvers kyns fordómum og misrétti. Til
þess að fólki líði vel þarf því að finnast
það velkomið og samþykkt í umhverfi
sínu. Sömuleiðis er mikilvægt að efla
færni sem stuðlar að auknu geðheil-
brigði og vellíðan, s.s. samskiptafærni,
sjálfsþekkingu, getu til að takast á við
vanlíðan og erfiðleika og finna gagnleg-
ar lausnir við vandamálum svo dæmi
séu tekin.“
Sigrún segir skólafólk almennt mjög
meðvitað um mikilvægi geðheilsu og
vellíðunar og líta á það sem hlutverk
skólans að hlúa að einstaklingnum á
heildrænan hátt, þ.m.t. að efla andlega
heilsu og styrkleika hans. „Hins vegar
er það svo að unglingsárin eru áhættu-
tími hvað geðheilsuna snertir en helm-
ingur allra geðraskana er þegar kominn
fram við 15 ára aldur og 75% fyrir 25
ára aldur.“
Því þurfi að gera enn betur í þessum
efnum og leggja meiri áherslu á virka
geðræktarkennslu í skólum og nýta
gagnreyndar aðferðir sem búið er að
sýna fram á með rannsóknum að stuðli
að auknu geðheilbrigði og dragi úr
hættu á geðrænum vanda. „Góð geð-
heilsa er mikilvæg fyrir alhliða heil-
brigði, lífsgæði og virkni í lífinu og því
eitthvað sem við ættum að sinna mjög
vel meðal barna og unglinga. Með því
að skapa ungu fólki jákvæðar aðstæður
í skólum og á heimilum og þjálfa færni
þeirra í að takast á við lífið með upp-
byggilegum hætti, getum við stuðlað
að aukinni vellíðan og lífsgæðum meðal
komandi kynslóða.“
Rafræna útgáfu bókarinnar má nálg-
ast á vef Embættis landlæknis, land-
laeknir.is. ■ starri@365.is
GEÐHEILSAN ER
VÍÐTÆKT FYRIRBÆRI
GEÐRÆKT Nýlega kom út handbók um geðrækt í framhaldsskólum sem er
bæði hugsuð sem stuðningstæki fyrir skólafólk og til að miðla fróðleik til
ýmissa annarra aðila, svo sem foreldra, unglinga og íþróttaþjálfara.
ERFIÐ ÁR „Hins vegar
er það svo að unglings-
árin eru áhættutími hvað
geðheilsuna snertir,“
segir Sigrún Daníels-
dóttir, verkefnastjóri hjá
Embætti landlæknis.
MYND/VILHELM
Kókos-nectar eða kókossíróp frá
Biona er náttúrulegt sætuefni
með mjög lágan sykurstuðul.
Kókossírópið er unnið eins og
hlynsíróp. Það er tekið beint úr
trénu með krana sem er settur í
tréð og skrúfað frá. Gaman er að
fylgjast með safanum renna úr
krananum.
Safinn er
svo hitaður
upp þar til
það mynd-
ast síróp.
Kókossíróp
inniheldur
mikið af
ensímum,
steinefnum,
C-vítamíni,
B-vítamíni
og er með
rétt pH-
gildi. Sír-
ópið hefur
mikið og
gott bragð
og er hollur
valkostur
til að nota út
í eftirrétti, í
chia-grautinn
eða út á pönnukökur í stað
hlynsíróps.
Guðrún Bergmann,
annar þýðandi bókarinnar
„Hreint mataræði“ eftir
Alejandro Junger, mælir
með Biona-kókossírópi á
meðan á hreinsun stendur.
Fæst í heilsuvörubúðum og
Fjarðarkaupum.
NÁTTÚRULEGT
SÆTUEFNI
Kókosnectar er náttúrulegt sætuefni frá Biona.
Skipholti 29b • S. 551 0770Fylgist með okkur á
10%
afsláttu
r
af nýju
m vöru
m
50-70%
afsláttu
r
af völd
um vör
um
Afmælisdagar!
365.is
Sími 1817
Til hvers að flækja hlutina?
SJÁLFKRAFA
í BESTA ÞREP!
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
2
5
-E
2
5
8
1
4
2
5
-E
1
1
C
1
4
2
5
-D
F
E
0
1
4
2
5
-D
E
A
4
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K