Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 26
KYNNING − AUGLÝSINGHeilsurækt ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 20154 Turmeric-drykkurinn hefur notið mikilla vinsælda frá því hann kom í verslanir, að sögn Ragnheiðar Guð- finnu Guðnadóttur athafnakonu. „Margir hafa nú þegar upplifað virkni drykkjarins. Drykknum hefur verið líkt við „töframeð- al“, að hann hafi „magnaða virkni“ og jafn- vel segja sumir að það sé „eitthvað ávana- bindandi við þennan Turmeric-drykk“,“ segir Ragnheiður. Sterkur og áhrifaríkur drykkur Í Turmeric-drykknum er veglegt magn af innihaldsefnum hans enda má sjá bæði túr- merikrótina og engiferrótina liggja á botni flöskunnar. Þess vegna er drykkurinn mjög sterkur og áhrifaríkur. Turmeric-drykkur- inn er handunninn frá grunni þar sem hrá- efnið og virkni þess er ætlað að skila sér til neytanda hans. „Mér finnst þetta svaka- legur ofurdrykkur og ég mæli heilshugar með honum. Ég drekk eitt glas af honum á hverjum morgni og get ekki án hans verið. Ég verð bæði frísk og hress af honum, húðin á mér er betri og mér finnst ég yngjast upp,“ segir Gerður Sigurðardóttir. „Turmeric-drykkurinn á að vinna á bólgum, hreinsa líkamann, auka brennslu, bæta meltingu, losa líkamann við auka- kefni (vera vatnslosandi), veita aukna orku, hann eykur brennslu, eykur upptöku lík- amans á vítamínum og næringu og eykur vellíðan á sál og líkama. Þannig að í raun er Turmeric-drykkurinn einn af þeim þátt- um sem ættu að vera fastur partur af dag- legri rútínu líkt og íslenska lýsið. Eitt staup á dag kemur skapinu í lag,“ segir Ragnheið- ur og brosir. Gréta Hagalínsdóttir fór að kaupa Tur- meric-drykkinn eftir að hún las grein Sig- mundar Guðbjartssonar, prófessors við Háskóla Íslands, í blaði eldri borgara, List- in að lifa. „Í greininni segir Sigmundur að túrmerik geti haft áhrif á æðamyndun til krabbameinsæxla. Í greininni kemur líka fram að túrmerik hafi góð áhrif á heilann þannig að við gömlu hjónin fórum að taka þetta inn. Þetta gerir okkur líka mjög gott, húðin verður sléttari og þetta er gott fyrir liðina. Auk þess er drykkurinn mjög grenn- andi og ég verð að passa að drekka bara ráðlagðan dagsskammt svo ég verði ekki of grönn,“ segir Margrét. Kokteill og hristingur með Turmeric- drykknum „Þrátt fyrir að drykkurinn sé algjör heilsu- bomba þá er ekki þar með sagt að hann sé heilagur í neyslu, mörgum finnst hann of sterkur og þá er gott að setja hann í hristing- inn, eða þegar þú vilt að börnin drekki hann þá er tilvalið að blanda honum við appels- ínusafa til þess að deyfa bragðið, einnig er áhugavert að nota drykkinn sem bland í kokteila því virkni hans er tilvalin til að hjálpa líffærunum að vinna á eiturefnum,“ segir Ragnheiður. TÚRMERIKKOKTEILL 1 hlutur Absolut Mandarin vodka 1 hlutur Turmeric-drykkur 1/2 hlutur nýkreistur sítrónusafi 1/2 hlutur nýkreistur lime-safi 1/2 hlutur nýkreist grape eða blóðappelsína 1 tsk. mangómauk 1 örþunn fersk chilisneið Vanillukorn á hnífsoddi Smávegis engiferöl 1 kirsuber eða mynta til að skreyta TÚRMERIKSPÍNAT HRISTINGUR 1 dl Turmeric-drykkur Lófi af fersku spínati 1/4 hluti af lárperu (avocado) 1 dl af ananasbitum 1/2 grænt epli 1/2-1 banani 1 msk. kókosolía Gott er að setja kanil eða mintu til að krydda. Drykknum líkt við töframeðal Turmeric-drykkurinn er sagður vera allra meina bót og ætti að vera hluti af daglegri rútínu að drekka hann. Auðvelt er að nota hann í hina ýmsu rétti, svo sem súpur, kokteila og hristing. Hér má fá uppskriftir að kokteil og hristingi með Turmeric-drykknum. Turmeric-drykkurinn hefur notið mikilla vinsælda síðan hann kom á markað en hann fæst í Hagkaup, Víði, Melabúðinni og WorldClass Laugum. Þær Gréta og Gerður mæla með Turmeric-drykknum. Þær verða hressari og finnst þær hafa yngst eftir að þær fóru að drekka hann. MYND/GVA Sundlaugarverðir í Noregi segja að þessi breyting hafi verið að ágerast undanfarin ár. Fólk virðist ekki þora að sýna sig nakið í sturtunum. Er þrýst- ingur á fallegan líkama orðinn svo mikill að hreinlæti er á und- anhaldi? spyrja menn. Annað- hvort fer fólk undir sturtuna í sundfötum eða það þvær sér alls ekkert. Menn óttast að útlitsdýrk- un eigi hér hlut að máli. „Fyrir nokkrum árum þótti það ósköp eðlilegt að standa nakinn frammi fyrir fólki af sama kyni. Svo er ekki lengur,“ segir Terje Rønning, forstöðumaður 22 stærstu sund- lauga í Noregi. Herferð í gangi Vegna þessa hefur verið sett í gang herferð í Noregi til þess að vekja athygli á því að fólk eigi að þvo sér almennilega fyrir og eftir sundferð. „Við erum ekki með lögreglu í sturtuklefunum en höfum sett upp plaköt sem sýna hvernig á að bera sig að. Þá hafa verið framleiddir bolir með þessari ábendingu fyrir bað- verði í sundlaugum. Með því að hafa þessa ábendingu sjáan- lega verður fólk vonandi með- vitað um reglurnar,“ segir Rønn- ing. Það er norski vefmiðillinn VG sem greinir frá þessu en fyrst var fjallað um málið í Telemarks- avisa. Þekkt vandamál hér Bjarni Kjartansson, rekstrarstjóri Laugardalslaugar, segir að þar á bæ þekki menn vel þetta vanda- mál en aðallega hjá útlendingum. „Við erum með strangar baðregl- ur og biðjum fólk að fylgja þeim, enda um mikið hreinlætismál að ræða. Við erum með baðverði sem benda fólki vinsamlega á þessar reglur. Í mörgum tilfell- um fer fólk að tilmælum bað- varða en ekki öllum. Það eru til sóðar í hópi Íslendinga, eins og annarra þjóða, en það er sjald- gæfara að þeir fyrtist við þessari reglu. Íslendingar eru miklu dug- legri að baða sig naktir en aðrar þjóðir. Ef fólk þvær sér með sápu áður en það fer ofan í laugina ver það sig betur gegn klórnum og það kemur síður klórlykt af því. Klórinn í lauginni bindur sig við eggjahvítuna sem er í fitu húðar- innar og myndar svokallað klór- amín (chloramine) sem er ekki gott,“ segir Kjartan, en þess má geta að klóramín er ertandi fyrir augu og húð. Trúarbrögð og sóðar Kjartan kannast ekki við útlits- dýrkun í þessu sambandi. „Oft er þetta tengt trúarbrögðum en svo er bara sinn siður í landi hverju. Hið eina sem hægt er að grípa til er að auka klór í lauginni til þess að halda hreinlætisstuðli vatns- ins í lagi. Það er hreinn sóða- skapur að þrífa sig ekki áður en haldið er í laugina, ég tala nú ekki um ef fólk er búið að vera í líkamsrækt eða á hlaupum og fer svitastorkið út í vatnið,“ segir hann. „Það væru ekki mikil gæði í sundlaugarvatninu ef allir færu óþvegnir út í það. Ekki er heldur gott að vera í sundlaug með mjög miklu magni af klór,“ segir norsk- ur sundlaugarvörður sem telur brýnt að kenna skólabörnum að halda líkama sínum hreinum og fara í bað. Ekki síst skiptir þetta máli vegna aukins fjölda innflytj- enda frá öðrum menningarsvæð- um. Terja Rønning segir eðlilegt að í sturtuherbergjum lauganna sé boðið upp á bása eða lokaða sturtuklefa fyrir þá sem þess óska. „Ef fólk þvær sér ekki situr húðfita þess eftir í sundlaugar- vatninu og það vill enginn synda í annarra manna húðfitu.“ Fólk þorir ekki að baða sig nakið Forstöðumenn sundlauga í Noregi hafa miklar áhyggjur af hreinlætismálum. Í auknum mæli baðar fólk sig ekki nakið áður en það stingur sér til sunds. Vegna þessa hefur þurft að bæta meiri klór í laugarnar. Íslendingar eru duglegir að þvo sér áður en þeir stinga sér í laugina. Annað gildir um útlendinga. Í Noregi er baðþvottur í sundlaugunum vandamál. 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 6 -0 E C 8 1 4 2 6 -0 D 8 C 1 4 2 6 -0 C 5 0 1 4 2 6 -0 B 1 4 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.