Fréttablaðið - 17.03.2015, Side 27
KYNNING − AUGLÝSING Heilsurækt17. MARS 2015 ÞRIÐJUDAGUR 5
Flestir þekkja það að fá hlaupa-
sting. Vísindavefurinn reynir að svara
því hvað hlaupastingur er en ekkert
ákveðið svar virðist til við þeirri
spurningu. Þar segir þó að flestir séu
sammála því að þindin leiki þar stórt
hlutverk.
Ein tilgátan er að þegar við öndum
að okkur þrýstist þindin niður en
færist upp aftur þegar við öndum
frá. Hlaupastingur finnst venjulega
við áreynslu þegar andað er hratt í
nokkuð langan tíma og hefur verið
bent á að þessi hraða hreyfing
þindarinnar upp og niður geti á
endanum leitt til krampa í henni.
Önnur tilgáta er að við áreynslu
verði blóðflæði frá þindinni til vöðva
í útlimum og maga og það valdi
krampa í þindinni.
Vinsælasta kenningin er sú að
hlaupa stingur stafi af þeim rykkjum
og skrykkjum sem koma á tengi-
vefinn og þindina við hlaup þegar
líffæri eins og magi og lifur ganga
upp og niður í takti við hreyfinguna.
ÓÚTSKÝRÐUR HLAUPASTINGUR
SEX STAÐREYNDIR UM
MATARÆÐI
Paleo-mataræðið, Miðjarðar-
hafsmataræðið og lágkol-
vetnamataræðið eru meðal
þess mataræðis sem lengi hefur
verið fylgt af fólki sem vill léttast
og er enn vinsælt í dag. Oftast er
deilt um hvað sé ólíkt með þessu
mataræði en læknaneminn Kris
Gunnars hjá authoritynutrit ion.
com hefur nú greint sex atriði
sem allar þessar stefnur, og fleiri
sem reynst hafa fólki vel, eiga
sameiginleg.
1. Lögð er áhersla á að sniðganga
sykur, sér í lagi viðbættan sykur.
2. Lögð er áhersla á að sniðganga
unnin kolvetni.
3. Lögð er áhersla á að sniðganga
verksmiðjuunnar jurtaolíur.
4. Lögð er áhersla á að sniðganga
tilbúna transfitu.
5. Í þeim er hátt hlutfall græn-
metis og trefja.
6. Lögð er áhersla á mat í stað
hitaeininga. Þessar stefnur eiga
sameiginlegt að engin þeirra
leggur áherslu á að fækka
hitaeiningunum. Þess í stað er
markmiðið að borða holla og
óunna matvöru.
FORRÉTTUR,
AÐALRÉTTUR
OG EFTIRRÉTTURBrandenburg
FLENSA Á FIMM ÁRA FRESTI
Ertu búin að fá flensu í vetur?
Þá geturðu glaðst því þú átt ekki
á hættu að fá hana aftur næstu
fimm árin. Ný rannsókn sem gerð
var við Imperial College London
staðfestir þetta. Skoðaðar voru
blóðprufur og rannsakaðar varnir
líkamans gegn inflúensu hjá sjálf-
boðaliðum í Kína á árunum 1968-
2009. Rannsóknin sýndi að fólk
yfir þrítugt fær inflúensu tvisvar
á tíu árum en börn geta fengið
hana annað hvert ár. Um þetta
er skrifað á vefmiðlinum Science
Daily. Þótt fólk veikist þarf það
ekki að vera inflúensa. Taka þarf
blóðprufu til að finna út hvort
um inflúensu sé að ræða. Börn
eru viðkvæmari fyrir inflúensu
vegna þess hversu nálægt þau
eru öðrum börnum, til dæmis í
leik- og grunnskólum.
Bent er á nokkrar leiðir til að losna við
hlaupasting
● Setja stút á munninn og anda djúpt frá sér.
● Brjóta upp öndunartaktinn öðru hvoru.
● Beygja sig fram og spenna kviðvöðvana
nokkrum sinnum.
● Nudda eða þrýsta á svæðið þar sem verkurinn
er.
● Ekki borða eða drekka mikið rétt fyrir áreynslu.
● Hægja á og draga úr styrkleika æfingar-
innar meðan verkurinn gengur yfir.
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
6
-0
E
C
8
1
4
2
6
-0
D
8
C
1
4
2
6
-0
C
5
0
1
4
2
6
-0
B
1
4
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K