Fréttablaðið - 17.03.2015, Page 28
KYNNING − AUGLÝSINGHeilsurækt ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 20156
„Það er mikið að gerast í vísinda-
heiminum en megnið af því nær
því miður ekki til almennings,
enda fréttaflutningur af vísindum
takmarkaður. Það skýrist meðal
annars af því að oft er um að ræða
mjög flókin mál sem þarf að hafa
einhverja grunnþekkingu til að
skilja,“ segir Edda.
Oft koma upp hugmyndir um
tiltekna matarkúra eða efni sem
talin eru allra meina bót eða hið
mesta skaðræði. „Ef fólk ætlar að
kynna sér málin almennilega þarf
að kafa mjög djúpt og er erfitt að
finna íslenskan miðil sem gott er
að treysta í þeim efnum. Við vild-
um bjóða upp á vef þar sem hægt
væri að fræðast um ýmis vísinda-
leg málefni án þess að þurfa að
kafa eftir upplýsingum svo tím-
unum skiptir.“
Þær Edda og Anna Veronika
leita fanga á ýmsum erlendum
fréttamiðlum sem miðla vísinda-
fréttum. „Við leitum svo uppi
fréttatilkynningar á heimasíðum
þeirra stofnana sem framkvæma
tilteknar rannsóknir. Þá pössum
við okkur á að renna yfir þær rit-
rýndu greinar sem liggja að baki,“
segir Anna Veronika.
Á vefnum er jafnframt að finna
aðsendar greinar frá íslenskum
vísindamönnum og vonast þær
Edda og Anna til að þeim fjölgi
jafnt og þétt
Vefnum er skipt niður í flokka.
Í smásjárflokknum er fjallað um
svokallaðar sameindarannsóknir.
Í umhverfisflokknum er fjallað um
rannsóknir á dýrum, umhverfi og
plöntum og í flokknum áhugavert
er fjallað um ýmislegt skrítið og
skemmtilegt. Þær Edda og Anna
Veronika reyna að setja inn fjór-
ar fréttir á dag. „Þá setjum við inn
vikulega fróðleiksmola sem ættu
að gagnast flestum. Þar er meðal
annars fjallað um DNA, ofnæmi,
hjarðónæmi, bakteríur og stofn-
frumur. Þar er jafnframt umfjöll-
un um bóluefni, tilgang þeirra og
samsetningu en umræðan um þau
hefur verið hávær að undanförnu.
„Við vonumst til að vefur-
inn verði til þess að fyrirbyggja
ýmiss konar misskilning. Hvað
bólusetningarnar varða var um
tíma hávær umræða um að þær
gætu valdið einhverfu. Þó að það
sé margbúið að afsanna það lifir
umræðan áfram með tilheyrandi
afleiðingum. Þeir sem eru á móti
bólusetningum koma skoðun-
um sínum á framfæri á netinu og
þangað sækir almenningur gjarn-
an fróðleik. Vísindamenn eru hins
vegar ekki jafn duglegir að koma
þekkingu til almennings og tala
gjarnan tæknimál sem erfitt er
að skilja. Við vonum að Hvatinn
verði upphafið að alvöru vísinda-
fjölmiðli á Íslandi sem fólk getur
reitt sig á.“
Læsilegar
vísindafréttir
Fréttamiðillinn Hvatinn var opnaður um miðjan síðasta mánuð en þar
skrifa líffræðingarnir Anna Veronika Bjarkadóttir og Edda Olgudóttir
vísindafréttir á mannamáli. Vefurinn fékk strax góðar viðtökur og er
þegar kominn með fjölda fylgjenda á Facebook.
Edda starfar hjá Matís en Anna Veronika hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Þær nota frítímann til að skrifa fréttir á vefinn. MYND/VALLI
HUGSAÐU UM
HOLLUSTUNA!
VILTU
HRÖKKVA
Í GÍRINN?
Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER
hrökkbrauð. Í því er enginn viðbættur sykur og
ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott!
Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta
hrökkbrauðið á Íslandi.
Enginn
viðbættur sykur,
ekkert ger.
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 109.698
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 137.122
Meira en bara
blandari!
FRÓÐLEIKSMOLI AF VEFNUM: HVAÐ ER BÓLUEFNI?
Bóluefni er samsett úr veiklaðri eða dauðri veiru eða bakt-
eríu auk ónæmisglæða. Því er ætlað að kynna ónæmiskerfi
líkamans fyrir viðkomandi sýkli til að verja líkamann gegn
smiti í framtíðinni.
Þegar bóluefni er sprautað inn í líkamann fer ónæmis-
kerfið í gang og finnur sýkingavaldinn, sem í tilfelli bólusetn-
ingar veldur ekki sýkingu. Þegar ónæmiskerfið finnur hann
myndar það mótefni sem er sértækt gegn sýkingavaldinum.
Mótefnið binst við veiruna eða bakteríuna og merkir þannig
að ónæmiskerfið veit að það á að drepa og eyða viðkom-
andi sýkli. Komist hann inn í líkamann seinna á lífsleiðinni
þekkja ónæmisfrumurnar hann strax og eyða honum áður
en sýking á sér stað.
Það er misjafnt hvaða efni bóluefni innihalda en í þeim
er alltaf einhver hluti af veirunni eða bakteríunni sem verið
er að bólusetja fyrir auk efna sem hafa mismunandi tilgang.
Þau eru eftirfarandi:
Oft er svokallaður ónæmisglæðir í bóluefninu. Ónæmis-
glæðir er efni sem örvar ónæmiskerfið og gerir svarið því
sterkara. Að auki heldur ónæmisglæðirinn aftur af virka
efninu svo það seytlar út í líkamann á lengri tíma sem gefur
honum meira svigrúm til að mynda ónæmi. Ónæmisglæðar
sem notaðir eru í bóluefni í dag eru oftast einhvers konar ál-
sölt, það er að segja ál í efnasambandi við til dæmis kalíum
og súlfat en líkaminn skilar þessum efnum svo út innan
nokkurra daga.
Í bóluefnum er líka efni til að viðhalda stöðugleika. Það er
oft notað til að vernda bóluefnið fyrir hitastigsbreytingum
eða öðru slíku. Mismunandi efni eru notuð í þessum tilgangi
og má nefna gelatín, sorbitol og aðrar sykrur eða prótín.
Ýruefni er notað til að halda öllum innihaldsefnunum
saman. Oftast er notast við pólýsorbat 80 en það er einnig
notað í matvæli í sama tilgangi.
Við framleiðslu og einangrun á bóluefnum er oft notast
við egg, frumulínur eða erfðabreyttar lífverur. Fólk sem
er með ofnæmi fyrir til dæmis eggjum eða einhverju
innihaldsefna bóluefnanna gæti fengið ofnæmisviðbrögð
eftir bólusetningu. Hjá flestum eru viðbrögðin við bólusetn-
ingu eins og smávægileg veikindi. En ástæðan fyrir því er
að ónæmiskerfið er að bregðast við þessari gervisýkingu
sem bóluefnið er. Veikindin eru þó bara smávægileg í
samanburði við veikindin sem smit viðkomandi sýkla og
veira geta haft í för með sér.
Rotvarnarefni eru yfirleitt talin óþörf í bóluefnum í dag en
áður fyrr var notast við kvikasilfursefnablönduna tíómersal.
Þetta efni er talið innihalda svo lítið kvikasilfur að það hefur
ekki áhrif á líkamann en engu að síður er það ekki notað
lengur í Evrópu eða Bandaríkjunum.
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
2
6
-0
9
D
8
1
4
2
6
-0
8
9
C
1
4
2
6
-0
7
6
0
1
4
2
6
-0
6
2
4
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K