Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 17.03.2015, Qupperneq 30
Heilsurækt ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 20158 Hot yoga er frábrugðið öðru jóga að því leyti að það er iðkað í upphituðum sal, helst í 37 til 40 gráðu hita. Jó- hanna Karlsdóttir, jógakenn- ari og lögfræðinemi, kynntist því á ferðum sínum um Taíland og hreifst svo af því að hún flutti það hingað heim. „Ég fór í ferða- lag um Taíland árið 2007 þegar ég var á tímamótum í mínu lífi. Þar prófaði ég heilsulindir þar sem jóga var kennt. „Ég kunni ekki að meta rólegt jóga þá en um leið og ég prófaði svona kraftmikið jóga í hita féll ég fyrir því. Hot yoga reynir meira á mann, ég féll helst fyrir því að svitna mikið og finna mikla virkni í líkamanum. Ég iðkaði þetta á ferðalaginu og svo þegar ég kom hingað heim fann ég að mig langaði að hafa þetta hér, þannig að ég fór út aftur ári seinna og lærði þetta. Ég fór svo að kenna hot yoga á nokkrum stöðum hér, ég var með ferðahitablásara með mér því það þekkti þetta enginn og það voru engir sérstakir hita- salir eins og eru komnir núna. Ég gerði svo samning við Sporthúsið þar sem ég hef kennt síðan,“ segir Jóhanna. Kenndi jóga 22 sinnum í viku Jóhanna er sannkallað jóga gúrú því hún kennir, og iðkar sjálf, hot yoga fimmtán sinnum í viku. Þrisvar sinnum þrjá daga, tvisvar sinnum tvo daga og svo einu sinni á laugardögum og sunnudögum. Flestum fyndist það ærið við- fangsefni en Jóhanna lætur ekki þar við sitja því hún er í fullu námi í lögfræði við Háskólann í Reykja- vík. „Fimmtán sinnum er ákveðið hámark, það er full vinna og ekki ráðlegt að kenna meira en það. Mér finnst það hins vegar vera forréttindi að geta unnið við það sem ég hef ástríðu fyrir. Þetta er sjöunda árið sem ég kenni svona mikið en fyrstu sex árin kenndi ég enn meira, eða allt upp í 22 skipti í viku og minnkaði í raun bara við mig þegar ég byrjaði í náminu síð- asta haust. Þess vegna finnst mér gott að læra eitthvað annað núna, ég var farin að hugsa í kennslu- setningum og farin að kenna í svefni líka,“ segir hún og brosir. Getur ekki verið án jóga Jóhanna viðurkennir að verða stundum leið á kennslunni og að það sé lítið rúm fyrir annað en jóga og skólann. „Þetta er púslu- spil, en ég á ekki börn sem þarf að sinna, ég á að vísu kærasta en það fer ekki mikið fyrir honum,“ segir hún og hlær. „Ég er samt hepp- in að vera í svona krefjandi námi og geta séð fyrir mér með jóga- kennslunni. Tímarnir eru f lest- ir snemma á morgnana og seint á kvöldin þannig að ég get einbeitt mér að skólanum inn á milli. Ég er líka heppin að því leyti að ég hef fólk sem getur leyst mig af, það eru fleiri Íslendingar sem hafa farið og lært þetta jóga. Maður þreyt- ist á þessu eins og öllu öðru ef það er of mikið af því, en ef ég sleppi jóganu í ákveðinn tíma þá togar það í mig. Ég finn mun á mér ef ég sleppi til dæmis viku úr. Þegar ég fer í frí til útlanda þá finn ég mér hot yoga-stúdíó en þau eru komin út um allan heim.“ Sveigjanlegri í hitanum Jóhanna segir hot yoga hvorki vera betra né verra en annars konar jóga því það sé einstak- lingsbundið hvað fólki líkar. „Ég verð að hafa hita, mér finnst það fara betur með líkamann. Um leið og hitinn er ekki í lagi í saln- um finn ég hvað ég er stirðari. Hit- inn gerir það að verkum að líkam- inn hitnar fyrr upp og verður þar af leiðandi sveigjanlegri og með- færilegri til hreyfinga og teygja og iðkendur komast dýpra inn í stöð- urnar. Annars er hot yoga eins og annað jóga, þetta er fyrst og fremst stund sem þú gefur sjálfum þér þar sem þú ferð inn á við og ert bara í núinu. Hugsar einungis um líkama og sál.“ Kom á óvart hvað formið varð gott „Í tímunum mínum vel ég frekar erfiðari æfingar þar sem stöðugt er verið að reyna á sig. Jógað hefur haldið mér í líkamlega góðu formi en það er stöðugt hægt að bæta sig. Ég heyri það frá fólki sem ég hef kennt að það sem helst togar í það að halda áfram er hve auðvelt er að sjá og finna hvað þau verða betri, liðkast og styrkjast. Þegar ég byrjaði sjálf í hot yoga kom það mér á óvart hvað ég hélt mér í góðu formi með því. Auðvitað þarf líka að hugsa um mataræðið en maður verður meðvitaðri um það þegar maður stundar reglulega jóga og leitar þá ósjálfrátt í að borða létt- ara,“ segir Jóhanna. Var farin að kenna jóga í svefni Jóhanna Karlsdóttir er upphafsmanneskja hot yoga hér á landi en hún kynntist því á ferðalagi sínu um Taíland fyrir átta árum. Í dag gerir hún lítið annað en að vera í fullu námi í lögfræði í HR og iðka hot yoga enda kennir hún það fimmtán sinnum í viku. Það er vel tekið á því í hot yoga-tímunum hjá Jóhönnu. Jóhanna fækkaði tímunum sem hún kennir hot yoga niður í „einungis“ fimmtán, eftir að hún hóf lögfræðinám síðastliðið haust. MYND/GVA Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS @OptiBac www.facebook.com/optibaciceland Bestu meltingargerlar sem ég hef prófað ” “ Víðir Þór Þrastarsson, íþrótta- og heilsufræðingur frá Háskóla Íslands. 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 2 6 -0 E C 8 1 4 2 6 -0 D 8 C 1 4 2 6 -0 C 5 0 1 4 2 6 -0 B 1 4 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.