Fréttablaðið - 17.03.2015, Side 34

Fréttablaðið - 17.03.2015, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGHeilsurækt ÞRIÐJUDAGUR 17. MARS 201512 HREYFING Í VINNUNNI Að hreyfa sig með vinnufé- lögum á vinnutíma getur verið góð leið til betri heilsu. Það er útkoman úr danskri rannsókn sem sýnir að ef fólk tekur sig til í vinnutímanum og stundar ein- hvers konar æfingar skilar það sér í betri líðan. Nestlé-fyrirtækið í Danmörku setti af stað heilsudaga hjá starfs- mönnum sínum í lok ársins 2014 til að koma af stað hreyfingu hjá starfsmönnum. Allir tóku þátt í verkefninu. Gerðar voru leikfimi- æfingar, gengið upp stiga með lóðum eða farið í smá göngutúra. Verkefnið sýndi að 85% starfs- manna voru ánægð með þetta framtak og 71% hreyfði sig meira en vanalega. Það er því afar hvetjandi þegar vinnufélagar taka sig saman og hreyfa sig og árangurinn virðist góður. Það þarf ekki nema tíu mínútur fyrir hádegi og annað eins eftir hádegi til að hreyfingin hafi já- kvæð áhrif á heilsuna. Eftir langan vinnudag getur verið erfitt að finna tíma til líkamsræktar og þess vegna er það kærkomið hjá mörgum að geta hreyft sig á vinnutíma. Um 200 konum sem starfa á þremur sjúkrahúsum í Danmörku var skipt upp í tvo hópa, annar átti að taka stund í vinnutíma til að hreyfa sig en hinn stunda sína venjulega líkamsrækt utan vinnu. Þær konur sem stunduðu hreyfinguna á vinnutíma gekk mun betur að stunda hana en hinar sem hreyfðu sig utan vinnu. Jyllands-posten greindi frá þessu. Bökuð egg fyrir fjóra 2 msk. ólífuolía 2 púrrulaukar, skornir í þunnar sneiðar 2 laukar, skornir í þunnar sneiðar 200 g spínat lúka af brauðmylsnu 25 g parmesanostur, rifinn fínt 4 sólþurrkaðir tómatar, hakkaðir 4 egg Hitið ofninn í 200 gráður. Hitið olíu á pönnu og setjið púrrulauk og lauk út á. Kryddið að vild. Eldið í 15 til 20 mínútur eða þar til lauk- urinn fer að karamellast. Á meðan er spín- atið sett í sigti og hellt yfir það sjóðandi vatni úr katli. Þegar blöðin hafa kólnað nóg eru þau undin eins og hægt er. Blandið brauðraspinu og ostinum saman. Setjið laukmaukið í eldfast mót (gott að nota fjögur lítil). Setjið spínatið og sólþurrk- uðu tómatana næst. Búið til dæld í miðju hvers disks og brjótið egg í hverja holu. Að lokum er brauðrasps- og parmesanblönd- unni dreift yfir. Setjið í ofninn og eldið í 12 til 15 mínútur. HOLLUR DÖGURÐUR JÁRNRÍKUR SELLERÍ, RAUÐRÓFU OG GULRÓTASAFI Þessi drykkur úr bókinni Innocent smoothie recipe book er tilvalinn á morgnana. Hann er uppfullur af víta- mínum og steinefnum. 2 gulrætur, þvegnar og snyrtar 1 rauðrófa, þvegin, snyrt og skor- in í nokkra bita 1 sellerístilkur, þveginn og snyrt- ur 1 sætt epli, þvegið og skorið í nokkra bita Setjið allt í safapressu. Hellið í glas og kælið með klaka. 1 6 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 6 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 2 6 -0 4 E 8 1 4 2 6 -0 3 A C 1 4 2 6 -0 2 7 0 1 4 2 6 -0 1 3 4 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.