Fréttablaðið - 17.03.2015, Side 42
17. mars 2015 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22
Alþjóðlega barnakvikmyndahátíðin
í Reykjavík hefst á miðvikudaginn
og stendur til 29. mars næstkom-
andi. Þetta er í þriðja sinn sem efnt
er til þessarar skemmtilegu hátíðar
sem hefur farið ört vaxandi.
„Þetta verður stærsta hátíðin til
þessa,“ segir Helga Bryndís Ernu-
dóttir. „Við eigum von á flottum
erlendum gestum í fyrsta skipti
á þessa hátíð, verðum með fjölda
spennandi viðburða og svo komum
við að sjálfsögðu til með að sýna
margar skemmtilegar kvikmyndir.
Opnunarmynd hátíðarinnar í fyrra
var hin stórskemmtilega Antboy
og nú fylgjum við henni eftir með
framhaldsmyndinni Antboy: Rauða
refsinornin sem er opnunarmyndin
í ár. Leikstjóri Antboy-myndanna,
Ask Hasselbalch, mun opna hátíð-
ina formlega ásamt Vigdísi Finn-
bogadóttur, verndara hátíðarinnar,
og forseta borgarstjórnar, Sóleyju
Tómasdóttur.“
Helga Bryndís segir að megin-
markmiðið með því að halda svona
hátíð sé að auka kvikmyndalæsi
barna og gefa þeim færi á því að sjá
myndir sem eru utan þess almenna
efnis sem er í boði í öðrum kvik-
myndahúsum. „Hér gefst börn-
um, unglingum og foreldrum því
tækifæri til þess að sjá og upplifa
eitthvað nýtt og spennandi, sem
við teljum að eigi erindi til okkar
allra,“ segir hún.
„Það verða sýndar myndir víða
að úr heiminum og líka sígildar
íslenskar barnamyndir. Næsta kyn-
slóð kvikmyndagerðarmanna og
kvikmyndaunnenda mun einnig fá
tækifæri til að kynnast því hvernig
kvikmyndir og teiknimyndir verða
til, fara á leiklistarnámskeið fyrir
kvikmyndaleik og margt fleira
skemmtilegt. Miðaverð á myndirn-
ar er 1.000 krónur en svo er frítt á
viðburðina og um að gera að koma
og vera með.
Þema hátíðarinnar í ár er friður
og endurspegla margar myndanna
það mikilvæga málefni. Börn og
unglingar munu
því fá að að
kynnast hug-
myndafræði
eins og fjöl-
menningu,
kynvitund,
líkamsvirðingu, sköpun og gagn-
rýninni hugsun.
Eins og á síðasta ári verðum
við svo með áhorfendaverðlaun
þar sem gestirnir velja sína uppá-
haldsmynd. Myndin sem fær þessi
verðlaun fer svo í sýningarferð um
landið, fer nánar tiltekið á sex staði
þar sem er ekki kvikmyndahús á
staðnum, og þannig gefst krökkun-
um þar færi á að koma í bíó í sinni
heimasveit.“
magnus@frettabladid.is
Upplifa eitthvað nýtt og spennandi
Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík verður haldin hátíðleg í þriðja skiptið í Bíói Paradís dagana 19.-29. mars. Þema
hátíðarinnar er friður og þar verður að fi nna fj ölda kvikmynda og viðburða fyrir börn og fj ölskylduna alla.
ANTBOY SNÝR AFTUR Opnunarmynd hátíðarinnar er Antboy og rauða refsinornin og hún er talsett á íslensku.
Fyrri myndin um Antboy var sýnd á síðustu hátíð og naut þá gríðarlegra vinsælda.
KLASSÍK
Ný dönsk
teiknimynd
um Gúmmí
Tarsan sem
byggir á
samnefndri
og sígildri
barnabók
Ole Lund
Kirkegaard
er á meðal
fjölmargra
mynda sem
allir ættu
að geta haft
gaman af á
Alþjóðlegu
barna-
kvikmynd a-
hátíðinni.
MENNING
1
6
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
5
-F
6
1
8
1
4
2
5
-F
4
D
C
1
4
2
5
-F
3
A
0
1
4
2
5
-F
2
6
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K