Skessuhorn


Skessuhorn - 10.03.2010, Síða 32

Skessuhorn - 10.03.2010, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 10. MARS Bruna lúð ur inn gell ur við, klukk­ an er tólf og all ir eiga að fara heim að borða. Þetta gerð ist á hverj­ um degi. Enn er raf magn bæj ar­ búa fram leitt með raf stöð, ekki far­ ið að keyra Anda kíls ár virkj un og á með an svo var gall bruna lúð ur­ inn stund vís lega klukk an tólf. Í bú­ ar hafa við ur væri sitt af ýms um þjónustu störf um, með al ann ars tengd um land bún aði. Fjár hús, hest­ hús og hænsna kofi eru ekki óal geng sjón við mörg í búð ar hús in og smá­ bú skap ur inn færði fjöl breyti leika og björg í bú. Mal ar göt ur, alls stað­ ar og byggð in víða gis in. Kaup fé­ lag ið með starf semi sína í Eng lend­ inga vík, þar sem bæði var keypt og selt. Þó er far ið að huga að nýrra og stærra húsi und ir starf semi kaup­ fé lags ins, spreng ing ar fyr ir nýj um grunni hafn ar. Búið að kaupa upp hús sem þurfti að fjar lægja og í bú­ un um fært ann að í stað inn. Enn var kennt í Gúttó, þar sem núna er fé­ lags mið stöð in Óðal, leik fimi í kjall­ ar an um þar sem einnig voru sturt­ ur og skóla stof urn ar uppi. Lax foss kem ur í pláss ið fimm daga vik unn­ ar. Mánu daga og fimmtu daga var mjólk in hins veg ar keyrð út á Akra­ nes, því þá kom ekk ert skip. Akra­ borg in kem ur ný í þorp ið árið 1956. Þetta er bæj ar lýs ing af Borg ar nesi eft ir miðja síð ustu öld. Árið 1955 fermd ust þrír bræð ur, frá Borg, stund um kall að ir Sill arn­ ir eða Ara bræð ur, Guð mund ur og tví bura bræð urn ir Hólm steinn og Unn steinn Ara syn ir. Guð mund­ ur sam þykkti að bíða eft ir bræðr­ um sín um með því skil yrði að hann fengi ferm ing ar ú rið á rétt um tíma. Þeir ólust upp á holt inu, þar sem ein ung is voru fjög ur hús. Hlíð­ in und ir var byggð, þar sem nú er Beru gata. Þar bjuggu með al ann­ arra Þor björn frá Hraunsnefi og Guð mund ur sem aldrei var kall­ að ur ann að en Gvend ur gúd morn­ ing. Rifj uð er upp ferm ing in og líf­ ið í Borg ar nesi með þeim Guð­ mundi og Unn steini. Hólm steinn er fjarri góðu gamni, þar sem hann er stadd ur er lend is. Tví bura bróð ir hans seg ir það engu máli skipta þvi hann sé hvort sem er kalk að ur og muni ekki neitt! Legg ir og kjálk ar Þeg ar þeir Ara bræð ur voru yngri voru fjög ur hús á holt inu. Það var hús ið sem þeir bjuggu í, Ell an sem svo var nefnd og tvö önn ur hús. Sig ur þór Helga son hafði ný lega byggt ann að af þeim en hitt hús­ ið áttu Val björg og Begga og fjöl­ skyld ur sem seldu hús ið sitt svo hið nýja kaup fé lags hús kæm ist fyr­ ir við Eg ils götu. Fyr ir ofan hús­ ið sem bræð urn ir bjuggu í var stór braggi sem var geymsla, hest hús og fjár hús. Þessi til hög un var al geng í Borg ar nesi þeirra tíma. Þeir segj ast hafa haft allt holt ið fyr ir sig, not ið þess í hví venta og leik föng in voru lengi vel legg ir og kjálk ar. „Ég man einu sinni eft ir því að okk ur bræð ur lang aði í skauta,“ seg ir Unn steinn og held ur á fram. „Við fór um til pabba og báð um hann um að lána okk ur bor því að við höfð um heyrt að hægt væri að bora gat á hross­ leggi, binda þá síð an við skó og renna sér á þeim. Pabbi svar aði fáu, opn aði stóra kistu sem stóð í gang­ in um heima og dró upp skauta, það var al veg frá bært og kom al gjör lega á ó vart.“ Guð mund ur bæt ir við að á heim il inu hafi ver ið föst regla á því hvenær sum ir hlut ir voru gefn ir. Sem dæmi hafi þeir all ir feng ið hjól þeg ar þeir voru 10 ára og síð an var næsti á fangi að fá úrið í ferm ing ar­ gjöf. „Já,“ seg ir Unn steinn. „Það fengu all ir ný hjól nema Jón bróð ir. Hann fékk ekk ert enda yngst ur og gat bara not að hjól in frá okk ur hin­ um,“ og nú skelli hlæja þeir bræð ur. Dodds inn oft þrif inn Fjöl skyldu bíll inn var Dod ge mód el 1938 og flutti hann þá bræð­ ur með al ann ars til ferm ing ar inn ar að Borg. Þeg ar bræð ur nir tóku að stálp ast fundu þeir sig knúna til að sjá til þess að Dodds inn liti ætíð vel út, þveg inn og bón að ur. „ Þetta var auð vit að allt gert í ein um til gangi,“ seg ir Guð mund ur; „Við höfð um mik inn á huga á því að fá að eins að keyra bíl inn og ef við buð umst til að þrífa hann eða koma hon um inn í bragg ann, þar sem hann var stund um geymd ur, þurfti auð vit­ að að keyra hann til og frá. Þá var hægt að nota tæki fær ið og liðka bíl­ inn að eins, enda höfð um við holt­ ið al veg fyr ir okk ur og lít il hætta á því að við lent um í ein hverj um ó höpp um. Auð vit að var þetta gíf­ ur lega spenn andi allt sam an, hvað held ur þú og bíll inn naut góðs af. Alla vega var hann yf ir leitt hreinn og flott ur.“ Ferm ing ar fræðsl an í skól an um Þeir bræð ur gengu fyrst í skóla í Gúttó sem svo var nefnt og er hluti af hús inu sem nú hýs ir fé lags mið­ stöð ina Óðal en færðu sig síð an í nýja skóla hús ið þeg ar það var tek ið í notk un. Prest ur inn kom í skól ann til að kenna börn un um bæði krist­ in fræði og síð ar und ir ferm ing una. Kirkj an í Borg ar nesi var ekki til bú­ in svo ferm ing ar fóru fram á Borg. „Það var ekk ert sér stak lega stórt niðri í Gúttó, þar sem leik fimi var kennd,“ seg ir Guð mund ur. „Þar voru einnig sturt ur og bún ings­ klef ar. Þeir sem hafa kom ið í gamla sam komu hús ið sjá að rým ið hef ur ekki ver ið neitt gíf ur lega mik ið. En þetta dugði al veg þang að til að nýi skól inn kom. Þar voru tvær skóla­ stof ur niðri og aðr ar tvær uppi. Síð­ an var þar sér stak ur leik fimi s al ur sem auð vit að var gíf ur leg bylt ing.“ Boddý bíl ar og maga pest Er leið nær ferm ingu var önn­ ur vá fyr ir dyr um en það að standa við alt ar ið og fara með trú ar játn­ ing una. Unn steinn hef ur orð fyr ir þeim bræðr um og minn ist þess að ekki hafi blás ið byr lega fyr ir þeim vik una fyr ir ferm ing una. „Við vor­ um veik ir tví burarn ir, hvor á eft ir öðr um. Það var alls ekk ert víst að af ferm ingu gæti orð ið. Á með an á þess um hremm ing um stóð feng um við ekk ert að borða. Mér er minn­ is stætt að þeg ar loks kom að því að við mætt um fá eitt hvað í mag­ ann þá var mat ur inn heit svið. Og trúðu mér, aldrei hef ur nokk ur mat ur smakk ast bet ur.“ Ætt ingj um var boð ið til ferm ing ar veisl unn ar, víðs veg ar að, úr Döl um, Snæ fells­ nesi og Reykja vík. Veg ir voru ekki beisn ir á þess um tíma og lík legt að fólk hafi safn ast sam an í bíla til að kom ast á á fanga stað. „Skyld fólk­ ið í Döl um hef ur sem dæmi lík lega kom ið sam an í boddý bíl og svo gisti fólk bara á hót el inu. Það þótti ekk­ ert til töku mál,“ segja bræð urn ir. Mó rauð ur fimm hund­ ruð kall, stang ar beislu og skjalataska Ferm ing ar dag ur inn rann upp, 8. maí 1955, með yn dæl is veðri. Bræð­ urn ir muna ekki ann að en at höfn­ in sjálf hafi bara far ið fram eins og til stóð. Ferm ing ar börn in voru vel yfir fimmt án og allt gekk vel. Ekki var fermst í kyrtl um, þeir komu ekki til sög unn ar fyrr en síð ar. Öllu var búið að breyta heima. Öll hæð­ in tek in und ir veislu enda stend ur stór ætt bogi að bræðr un um í báð­ ar ætt ir. Tví burarn ir höfðu ver­ ið i sveit hjá frænd fólki sinu í Eski­ holti. Unn steinn seg ir þá hafa feng­ ið stang ar beisli frá Bjarna Sveins­ syni, sem hann smíð aði sjálf ur, með fanga mark inu þeirra á stöng un um. „ Þetta var gíf ur lega flott smíði hjá Bjarna og sit ur fast í end ur minn­ ing unni. Svo feng um við eitt hvað af pen ing um og ég man ekki bet ur en að í þá daga hafi fimm hund ruð kall­ inn ver ið mó rauð ur seð ill og hund­ rað kall inn rauð ur, báð ir með mynd af Jóni Sig urðs syni for seta.“ Þeg­ ar Guð mund ur er spurð ur að því hvort ein hver ferm ing ar gjöf, fyr ir utan úrið góða, standi upp úr seg­ ist hann muna eft ir gjöf frá hrepps­ stjór an um í Mýr dal, Gísla Þórð ar­ syni. „ Þetta var svona tveggja hólfa skjalataska, svaka lega flott. Ég veit ekki hvort hann hef ur ver ið að gefa eitt hvað í skyn með gjöf inni en gam an var að fá hana.“ Dreifð ust víða Bræð urn ir eiga mynd sem tek­ in var á ferm ing ar dag inn og Unn­ steinn seg ir að dreift hafi ver ið til allra ætt ingja á sín um tíma. „Mað­ ur kom ekki svo í hús að þessi mynd blasti við á ein hverri kommóð unni. Og haf ið þið tek ið eft ir merkj un­ um sem við erum með í barm in um? Þetta eru merk in úr Nor rænnu sund keppn inni sem við tók um þátt í og fór fram í Veggja laug og feng­ um við ur kenn ing ar fyr ir. En í sam­ bandi við þessa upp rifj un þá verð­ ur nú að meta vilj ann fyr ir verk inu. Gæta verð ur að því að það eru lið­ in 55 ár síð an þetta gerð ist, það er lang ur tími,“ og Unn steinn kím ir. Þeir bræð ur eru þó sam mála um að þetta hafi ekki ver ið svo slæmt, eft­ ir allt sam an. bgk Bruna lúð ur, Gúttó og mórauð ir fimm hund ruð kall ar Bræð urn ir Guð mund ur og Unn steinn Ara syn ir segja frá ferm ingu sinni og líf inu í Borg ar nesi Mynd in fræga af Ara bræðr un um, Unn steini, Guð mundi og Hólm steini sem að sögn Unn steins mátti sjá á hverri kommóðu á heim il um ætt ingja og vina. Ferm ing ar drengirn ir fyr ir utan kirkj una að Borg með for eldr um sín um Ara Guð­ munds syni og Ó löfu Sig valda dótt ur. Borg ar nes í kring um 1950. Mynd in er tek in af kletti rétt við Land náms setr ið. Sjá má hús in fjög ur sem voru á holt inu þá og hlíð in und ir var byggð. Dodginn sem yf ir leitt var þrif inn, b ón að ur og liðk að ur um leið. Borg ar nes í dag. Mynd in er tek in af sama kletti og vart hægt að þekkja holt ið og lít ið sést í hús in á Beru göt unni.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.