Skessuhorn - 24.11.2010, Side 53
UPPHE IMAFRÉTT IR 2010 | 7
Kristín R. Thorlacius með nýja barnabók
Skáldið Ari Trausti Guðmundsson
Fyrir tveimur árum kom út barnabókin Saga
um stelpu eftir Kristínu R. Thorlacius með
myndskreytingum eftir Erlu Sigurðardóttur.
Nú fylgja þær stöllur þeirri bók eftir með
nýrri barnasögu, Var það bara svona?
Sem fyrr leitar Kristín fanga í tilveru barna í
sveit á fyrri hluta síðustu aldar og segir frá á
sprelllifandi og gaman saman hátt. Erla Sig
urðardóttir gefur sögunni líf og lit með gull
fal legum myndskreytingum.
Amma kann margar sögur sem gott er
að hlusta á. Og muna. Sagan hennar um
stelpuna í sveitinni sem var illa við geit
hafrana er skemmtileg og fræðandi. Það er
sagan af því þegar hrútarnir átu hafrana.
Kristín R. Thorlacius, rithöfundur og þýðandi.
Ari Trausti Guðmundsson hefur samið marga tugi bóka.
Ara Trausta Gumundsson þekkja allir Íslend
ingar. Sem jarðeðlisfræðingur hefur hann
látið til sín taka síðan í upphafi níunda ára
tugar síðustu aldar, verið áberandi í sjón
varpi og skrifað og þýtt tugi fræðibóka,
einkum um íslenska náttúru. Nú síðast bók
ina Eyjafjallajökull – stórbrotin náttúra sem
hann vann í samstarfi við Ragnar Th. Sig
urðs son ljósmyndara og kom út snemma síð
asta sumar.
Eftir að 21. öldin gekk í garð hefur Ari Trausti
í vaxandi mæli snúið sér að skáldskap og er líka
afkastamikill á því sviði. Fyrsta skáldverk Ara,
smásagnasafnið Vega línur, kom út 2002.
Síðan hafa komið frá Ara þrjár skáldsögur,
Leiðin að heiman 2005, Land þagnarinnar
2007 og Landið sem aldrei sefur 2009. Þá
eru ótaldar ljóðabækurnar fjórar, Í leiðinni
2004, Krókaleiðir 2006, Borgarlínur 2008
og nú síðast Blindhæðir sem kom út á þessu
hausti.
Blindhæðir er ljóðabálkur í fjórum þáttum
sem fylgir ljóðmælanda frá æsku og fram á
miðjan aldur. Ari Trausti leggur áherslu á að
sögumaður ljóðabálksins sé skálduð persóna,
ekki hann sjálfur.
Sterkur þráður bindur saman ljóðin í Blind
hæðum. Við fylgjum skáldinu um slóðir
bernsk unnar í borg og sveit. Ótal atvik á
leið barns til þroska varða veginn uns dyr
opn ast að unglingshausti – og þá er ekkert
leng ur eins og það var. Í gegnum skýrar og
meitl aðar ljóðmyndir byggist upp saga, úr
borg bernskunnar rís ný borg sem verður
stöðugt á vegi okkar, uppspretta minninga
og innblástur þessara ljóða.
UM SÍÐIR
Í hægferð margra vordaga leggur salt fjöruloft
inn um gáttina
jafnan með þægilegri þaralykt
höfugur bjarkarilmur ræður í votviðrum
minnir á hamingju dýra og manna
á stundum nálgast taktfast fótatak
og hverfur
raddir án orðaskila einn daginn
þytur reiðhjóla annan
urr bíla kvölds og morgna
fuglatíst færist smám saman í aukana
fær þig til að blístra
jafnvel syngja
sumarlangt verða útihljóðin að hljómkviðu
án stjórnanda
um síðir megnar tónlistin
að opna dyr að unglingshausti
úti verður þú varfærinn gestur