Skessuhorn - 30.03.2011, Page 13
13MIÐVIKUDAGUR 30. MARS
EYFI 50 – TÓNLEIKAFERÐ – 2011
Í tilefni fimmtugsafmælis síns 17. apríl n.k. heldur Eyjólfur Kristjánsson „Eyfi“ í mikla
tónleikaferð um Ísland og heldur hann á Vesturland 28. mars n.k. Eyfi mun spjalla á léttum
nótum við tónleikagesti og flytja öll sín þekktustu lög í bland við ýmislegt annað. „Draumur
um Nínu“, „Álfheiður Björk“, „Dagar“, „Ástarævintýri ( á Vetrarbraut )“, „Ég lifi í draumi“,
„Góða ferð“, „Danska lagið“, „Fiðrildi“ o.m.fl.
Miðvikudagur 30. mars – Grundarfjarðarkirkja kl. 20.30
Fimmtudagur 31. mars – Gamla Kaupfélagið, Akranesi kl. 20.30
Aðgangseyrir er kr. 2.000 og fer miðasala fram við inngang.
Óskum eftir að ráða jákvætt og hæfileikaríkt starfsfólk
í sumarstörf, tímabilið maí til ágúst.
Ferstikla er veitingastaður og verslun í Hvalfirði
þar sem góð þjónusta verður í öndvegi.
Áhugasamir sendi tölvupóst á verkamenn@simnet.is
með upplýsingum um aldur og fyrri störf fyrir 6. apríl n.k.
Atvinna
Vidgís Bragadóttir
Stefanía Bragadóttir Gunnar O Sigurðsson
Sigríður Bragadóttir Duane Casavecchia
Helga Bragadóttir
Erla Bragadóttir Hallgrímur Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, afi og langafi
Bragi Guðráðsson
frá Nesi í Reykholtsdal
lést laugardaginn 26. mars.
Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
þriðjudaginn 5. apríl klukkan 13.00.
„Það hefur ekki veiðst jafn
mikið í þorskanetin í mörg ár, ég
man varla eftir öðru eins,“ sagði
Hafsteinn Garðarsson hafnarvörður
í Grundarfirði í samtali við
Skessuhorn. „Í fyrsta sinn eru
menn að klára kvótann sinn hérna í
firðinum sjálfum, þurfa ekki að fara
neitt lengra.“ Afar vel hefur fiskast í
net á Breiðafirði síðustu daga og hafa
bátar verið að koma með fullfermi
að landi. Sömu sögu er reyndar
ekki að segja af línubátunum, sem
margir hverjir hafa flutt sig annað
meðan ætið er svo mikið sem raun
ber vitni í firðinum. Í Grundarfirði
lönduðu tveir netabátar síðastliðið
mánudagskvöld. Arnar SH 157 frá
Stykkishólmi kom með 23 tonn eftir
róðurinn, en skipstjóri á honum er
Guðbjartur Björgvinsson. Halldór
NS 302 kom að landi tvisvar
sinnum á mánudaginn með alls 17
tonn. Úr fyrri ferðinni var landað
níu tonnum og þeirri síðari átta
tonnum, en báturinn er um tólf
tonn og þurfti því að fara í tvígang
út til að losa úr netunum.
Hafsteinn segir enn mikið líf vera
í firðinum, allt sé allt fullt af síld,
loðnu og háhyrningum. „Ég held
að Umhverfisstofnun ætti að koma
og rannsaka fjörðinn. Sjálfur er ég
dauðhræddur um að síldin drepist
þegar sjórinn fer að hlýna með
tilheyrandi ólykt,“ sagði Hafsteinn
að lokum.
Gunnlaugur Árnason hjá Sæfelli
í Stykkishólmi segir að svo virðist
sem óvenjulega mikið sé af loðnu á
Breiðafirði, líklega meira en síðustu
fimm ár að minnsta kosti. Þetta geri
það að verkum að línubátar hafa
lítið sem ekkert verið að veiða að
undanförnu og hafa fært sig annað.
Þannig hefur Sæfell fært línubát
sinn, Bíldsey SH65, til Suðurnesja
og gera þeir nú út frá Sandgerði.
„Að sjálfsögðu er gott fyrir lífríkið
í Breiðafirði að fá alla þessa loðnu
og mun það vonandi koma sér vel
síðar að fá þessa miklu innspýtingu
inn í lífríkið hér. En á meðan allt
er fullt af æti tekur þorskurinn ekki
beitu þó hann fylli öll net sem lögð
eru,“ segir Gunnlaugur.
ákj
Netabáturinn Halldór NS kom að landi í Grundarfirði sl. mánudagskvöld með fullfermi úr síðari túrnum þann daginn.
Ljósm. sk.
Mokveiði í netin á Breiðafirði