Skessuhorn


Skessuhorn - 05.09.2012, Side 22

Skessuhorn - 05.09.2012, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2012 Áramót í útgerðinni Fyrirtækið KG fiskverkun ehf. er starfrækt í Rifi. Hjá fyrirtækinu vinna 46 starfsmenn, 21 á sjó og 25 í landi. Fyrirtækið gerir út einn bát, Tjald SH 270, sem gerður er út allt árið. „Hann er gerður út tíu og hálfan mánuð á ári. Það eru alltaf fjórtán um borð og sjö í fríi. Menn eru bara tuttugu daga á sjó og tíu í landi," segir Hjálmar Kristjánsson eigandi KG. Blaðamaður Skessuhorns fór í heimsókn í húsnæði fyrirtækisins og ræddi við Hjálmar og son hans Daða. Markaðir erfiðir „Það hefur gengið ágætlega, eigum við ekki að segja það Daði, ekkert vera að kvarta neitt. Við tökum rúm 2000 tonn upp úr sjó á ári og vinnum úr aflanum tæplega 1000 tonn af afurðum. Markaðir eru að vísu töluvert erfiðir, efnahagsástandið í saltfiskslöndunum er ekki í góðum málum. Við erum eingöngu í því að vinna saltfisksflök," segir Hjálmar. „Ætli það sé ekki aðalmálið hvað gerist á Spáni," bætir Daði við. „Við erum bara með einn kaupanda á Spáni sem kaupir nánast allar okkar afurðir. Við erum að selja dýra vöru og það er ekki einungis að kaupmáttur fari minnkandi, fólk er líka að halda að sér höndum því ef það missir vinnuna þá er ekki eins gott félagskerfi þar eins og er hér," segir Daði. Tjaldur er línubátur sem smíðaður var 1992 í Noregi. Á Tjaldi er nær eingöngu veiddur þorskur. Um þessar mundir er skipið að veiðum við Norðurland og hefur landað á Dalvík. Þaðan er aflanum ekið vestur í Rif til vinnslu í húsi fyrirtækisins sem er nýtt hús og vel tækjum búið. „Þetta var byggt á toppnum," segir Hjálmar og hlær. „Húsið var opnað 15. ágúst 2007. Við reyndum að gera þetta eins gott hús og við gátum." sko Fisk iðj an Bylgja í Ó lafs vík hef ur ver ið starf rækt í frá ár inu 1977 og varð að hluta fé lagi 1988. Bald vin Leif ur Ívars son hef ur ver ið meiri hluta eig andi frá 1998. „Við höf um far ið í gegn um ým s­ ar breyt ing ar, bæði á fyr ir tæk inu og kvóta kerf inu. Einnig höf um við far ið í gegn um mörg mög­ ur ár, en við erum enn þá hérna og ætl um að reyna að halda því á fram. Ég hef sagt að við séum ekki fisk vinnsla held ur erum við mat væla vinnsla," seg ir Leif ur. Inn rás á Evr ópu mark að Að spurð ur hvern ig síð asta kvóta­ ár hafi geng ið hjá fyr ir tæk inu seg ir Leif ur: „Það gekk bara la­ la, ekk ert bet ur en það og það hefði mátt vera betra. Það eru ýms ir þætt ir sem spil uðu þar inn í. Við kaup um allt okk ar hrá efni á fisk mark aði og erum að taka inn svona 2500 tonn á ári. Það er eng in ein teg und sem við erum að vinna meira en aðr ar og þetta er til helm inga bol fisk ur og flat­ fisk ur. All ar okk ar af urð ir fara í fryst ingu og við selj um mest til Belg íu. Mark að irn ir hafa ver­ ið þung ir und an far ið. Auð vit að er kreppa um alla Evr ópu og ís­ lensk ur fisk ur er dýr mið að við aðr ar teg und ir. Það hef ur líka ver ið mik il inn rás á mark að inn í Evr ópu und an far ið. Pangasi us er hvít ur eld is fisk ur frá Ví etnam. Það er búin að vera gríð ar leg aukn ing á hon um að und an förnu á mark aði en þetta er fisk ur sem seld ur er á hálf virði mið að við okk ar vöru. Fyr ir hinn al menna neyt anda í Evr ópu er fisk ur bara fisk ur. Þetta hef ur auð vit að á hrif á all ar mark aðs að stæð ur, eðli­ lega," seg ir Leif ur. Um hvern ig nýja kvóta ár­ ið lít ur út svar ar Leif ur: „Ef ég á að segja eins og er þá geri ég mér ekki al menni lega grein fyr ir því. Það verð ur bar átta að koma þessu heim og sam an, að finna rétta jafn væg ið í vinnsl unni. Það er þetta ei lífa strögl, hvar rétta jafn væg ið er í fram leiðslu og hvað mað ur á að vera með marga starfs menn. Verð ur sölu aukn ing eða fram leiðslu aukn ing, þetta snýst allt um það. Mað ur hef ur séð sí fellt meira af því að þessi stóru fyr ir tæki eru að koma inn á mark aði sem minni fyr ir tæk­ in byggðu upp á sín um tíma. Því þeg ar þeir sjá að eitt hvað nýtt borg ar sig, þá yf ir taka þeir mark­ að inn og und ir bjóða okk ur litlu fyr ir tæk in í krafti þess að þeir eru með veið arn ar og vinnsl una á einni hendi. Þeir hafa líka á und­ an förn um árum ver ið að kaupa á mark aði. Það er fullt af spurn­ ing um í þessu." Stærri fyr ir tæki græða Þar sem Bylgja er ekki með út­ gerð fannst blaða manni for vitni­ legt að vita hvort ný fisk veiði­ stjórn un ar lög myndu hafa á hrif á rekst ur inn. „Ég ótt ast að hrá efn­ is öfl un in verði erf ið ari með nýju fisk veiði stjórn un ar kerfi. Mað ur er bú inn að upp lifa það í gegn­ um tíð ina að eitt penna strik get­ ur haft þau á hrif að mað ur þarf að end ur hugsa allt sitt. Ég hugsa að þetta muni hafa þau á hrif að þeir stóru verði bara stærri. Að þeir sem ver ið er að „ráð ast á" komi í raun sterk ast ir frá þessu. Það er mik ið af einka út gerð­ um á Snæ fells nesi og spurn ing­ in er hvort að menn geti þol að þetta eða missi á hug ann á þessu ef menn fá ekki arð leng ur. Þeir sem þola mest ar breyt ing ar eru þeir sem hafa mesta fjár magn­ ið og mestu dreif ing una. Mað­ ur get ur al veg í mynd að sér að ef þetta verði að veru leika, veiði­ gjald og all ur þessi pakki, að við verð um jafn vel næstu Vest firð ir," seg ir Leif ur. Strand veið ar nýt ast lít ið Leif ur seg ir erfitt fyr ir fyr ir­ tæki eins og Bylgju að nýta sér strand veið arn ar. „Ég er ekki mjög hlynnt ur strand veiða form­ inu eins og það er í dag. Samt er það að sínu leyti, eins langt og það nær, á kveð inn plús. Það ger­ ir lít ið fyr ir vinnsl urn ar að hafa veið ar nokkra daga í mán uði. Ég er með fullt af fólki í vinnu og þarf að hafa opið alla virka daga mán að ar ins. Þannig að strand­ veið ar eru ekki að skila nægri vinnu í landi. Þetta þarf að vera byggt upp á þeim grund velli að það sé fisk ur að koma meira og minna inn all an mán uð inn," seg­ ir Leif ur. sko Kaupa allt sitt hrá efni af mark aði Rætt við Bald vin Leif eig anda Fisk iðj unn ar Bylgju í Ó lafs vík Hjá Bylgju starfa um 40 manns. Baldvin Leifur Ívarsson er meirihlutaeigandi Bylgju. Þegar blaðamaður staldraði við voru þrír flutningabílar að koma með afla Tjalds til vinnslu frá Dalvík. Báturinn stoppar varla Rætt við Hjálmar Kristjánsson eiganda KG fiskverkunar í Rifi Hjálmar og sonur hans Daði sem einnig vinnur hjá KG fiskverkun.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.