Skessuhorn


Skessuhorn - 29.05.2013, Page 30

Skessuhorn - 29.05.2013, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 29. MAÍ 2013 Sjómannadagurinn Starf varðstjóra á Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er margþætt og oft erilssamt. Grundfirðingurinn Gísli Valur Arnarson hefur starfað hjá gæslunni í rúm þrjú ár og fengist við mörg fjölbreytt verkefni. Ásamt því að sitja vaktir í Stjórnstöðinni að Skógarhlíð hefur hann sinnt erlendum verkefnum bæði á Spáni og Ítalíu og farið túra sem stýrimaður á varðskipunum. Í sumarfríinu fór hann hins vegar vestur á strandveiðar en hér gagnrýnir hann meðal annars kerfið sem hann segir geta verið gáfulegra. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Gísla Val í blíðviðri föstudaginn 17. maí síðastliðinn, þegar enginn strandveiðibátur mátti róa. Gísli hóf störf hjá Landhelgis­ gæslunni fyrir rúmum þremur árum og sinnti því samhliða námi við Skipstjórnarskólann fyrst um sinn. „Ég sótti um hásetapláss hjá þeim um sumarið en stuttu síðar fæ ég símhringingu og mér boðið þetta starf. Eftir stutta umhugsun sá ég að starfið átti mun betur við á þessum tímapunkti. Það gaf mér tækifæri til þess að kynnast stofnuninni mun betur, út frá öllum hliðum, og ég gat unnið með skólanum." Gísli hefur verið í fullu starfi frá því hann útskrifaðist úr Skipstjórnarskólanum vorið 2011 en hann skráði sig einnig í svokallaða varðskipadeild að útskrift lokinni sem er dreifnám í samstarfi við Landhelgisgæsluna og veitir honum séríslensk skipherraréttindi á varðskip. „Við sinnum meðal annars tilkynningarskyldu skipa í landhelginni. Flest skip þurfa til dæmis að gefa upp staðsetningu á klukkustundar fresti en þeir minnstu gera það á fimmtán mínútna fresti. Á góðum strandveiðidegi eru yfir þúsund bátar á sjó í landhelginni svo þú getur rétt ímyndað þér hvað þessi þáttur getur verið yfirgripsmikill. Ef sendingarnar berast ekki höfum við hálftíma til þess að hafa uppi á bátnum. Við reynum þá að hringja í skipstjórana, kalla í talstöðina og höfum samband við nærtæka báta. Ef við brennum inni á þessum hálftíma þurfum við að ræsa út björgunarsveitirnar, þyrluna og okkar einingar, og hefja leit," segir Gísli en þrír til fimm menn eru á vakt hverju sinni í Stjórnstöðinni dagsdaglega. „Þá fylgjumst við einnig með reglugerðarhólfum, skyndilokunum og öðrum bannsvæðum en ákveðnar bjöllur fara af stað hjá okkur ef fiskiskip rata inn í þessi hólf." Að auki er Stjórnstöðin fjarskiptastöð fyrir varðskip og gæsluloftför, björgunarstjórnstöð og hlekkur í hinu almenna öryggiskerfi landsins. „Um leið og það er útkall þá fer allt annað nánast á bið," segir Gísli. Var í eftirliti á Flæmska hattinum Í því skyni að afla tekna til reksturs Landhelgis gæslunnar hefur stofn unin frá árinu 2010 sinnt verkefnum erlendis. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að framlög ríkisins til Landhelgis­ gæslunnar hafi verið nánast þau sömu að krónutölu árin 2007 og 2011 þrátt fyrir að gengisþróun hafi verið stofnuninni óhagstæð á þessu tímabili en um fjórðungur af rekstrarkostnaði hennar var þá í erlendri mynt. „Vegna þessa fjársveltis sem gæslan lenti í urðum við að leita eftir verkefnum erlendis," segir Gísli sem hefur sjálfur tekið þátt í nokkrum. Meðal verkefna sem Landhelgisgæslan hefur sinnt er landamæraeftirlit í Miðjarðarhafinu fyrir Frontex, landamæra eftirlits­ stofnun Evrópusambandsins og fiskveiðieftirlit í Miðjarðarhafinu, Flæmska hattinum og Síldarsmugunni fyrir CFCA sem er fiskveiðieftirlitsstofnun Evrópusambandsins. „Ég kláraði hásetatímann minn til dæmis við fiskveiðieftirlit á Flæmska hattinum í nóvember 2011 og febrúar og mars 2012. Það var skítaveður allan tímann enda Flæmski hatturinn þekktur fyrir að vera algjört veðravíti." Fulltrúi Íslands í Madrid Í október síðastliðnum fór Gísli til Madridar, höfuðborgar Spánar, til þess að vinna í stjórnstöð landamæraeftirlits á vegum Frontex. Þá hafði Landhelgisgæslan sent eina flugvél og eitt skip í landamæraeftirlit í Miðjarðarhafi. „Þetta er fyrst og fremst flótta manna eftirlit," segir Gísli, „en flóttamannastraumur frá Afríku til Evrópu er gífurlegt vandamál. Eins er töluvert um smygl á þessum slóðum. Ég var í Madrid sem fulltrúi Íslands í stjórnstöðinni, eða national official, og var tengiliður fyrir áhafnir flugvélarinnar, bar á milli skilaboð frá áhöfnunum í stjórnstöðina og vaktaði flugvélina þegar hún var í loftinu. Ef áhöfn flugvélarinnar sá eitthvað grunsamlegt sem dæmi þá lét hún mig vita og ég kom þeim skilaboðum áleiðis til Spánverjanna sem sendu af stað einingar á sjó sem tóku á móti viðkomandi skipi." Í frítímanum gafst Gísla hins vegar tækifæri til þess að rölta um og skoða borgina. „Madrid er mjög sérstök borg og alls ekki það sem hinn hefðbundni ferðamaður upplifir yfirleitt á Spáni. Þar tala mjög fáir ensku og þar sem borgin er inn til landsins eru auðvitað engar strandir. Því miður komst ég ekki á leik með Real Madrid en ég fór og skoðaði leikvöllinn, Santiago Bernabéu, sem var mikil upplifun," segir hann og brosir. Skemmtilegt tækifæri til að ferðast Þegar þetta samtal átti sér stað var Gísli nýkominn heim frá Róm á Ítalíu þar sem hann sat fund varðandi næsta verkefni í landamæraeftirliti sem Landhelgisgæslan tekur að sér. „Þarna voru fulltrúar frá öllum aðildarlöndum Evrópusambandsins og löndum sem taka þátt í Schengen­samstarfinu. Við munum senda flugvél í þetta verkefni, TF­ SIF, en Landhelgisgæslan á eina bestu flugvélina í Evrópu til þess fallna að sinna svona verkefnum. Það er ástæðan fyrir því að við fáum þessi verkefni aftur og aftur. Ég mun því fara aftur út til Rómar í þrjár vikur í júlí og vinna í stjórnstöðinni sem fyrr, verð tengiliður milli áhafnar flugvélarinnar og annarra." Gísli segir Róm vera allt öðruvísi borg en Madrid og hann hlakkar til að skoða hana í sumar. „Róm er hins vegar mikil ferðamannaborg svo ég má gera ráð fyrir að rekast á þó nokkra túrista þarna um hásumarið. Þetta eru allt sögulegar borgir og gaman að fá tækifæri til þess að starfa þar og kynnast þeim í frítímanum. Svo lengi sem þörf er á starfsmanni úr Stjórnstöðinni sem talar góða ensku og hefur reynslu á samskiptum við flugáhafnirnar þá er ég reiðubúinn," segir Gísli sem segist búast við að gæslan taki að sér enn fleiri verkefni þegar líður á haustið. Landhelgisgæslan hefur fengið verulegar sértekjur af þessum erlendu verkefnum sem hafa vegið upp niðurskurð almennra fjárveitinga. Hægt hefur verið að halda í þjálfaðan mannskap og þá hafa starfsmenn fengið mikla þjálfun og reynslu í alþjóðlegum verkefnum og eru þannig enn hæfari og betri starfsmenn en áður. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að ávinningurinn af þessum verkefnum sé því bæði faglegur og fjárhagslegur. Vill breytingu á kerfi strandveiða Í sumarfríinu frá Landhelgis­ gæslunni notaði Gísli tækifærið og fór vestur á strandveiðar með pabba sínum. Saman eiga þeir bátinn Val SH sem þeir gera út á strandveiðar. „Okkur hefur ekki gengið vel hingað til enda verið ömurleg tíð og leiðinda fiskirí. Eins skemmtilegar og strandveiðarnar geta verið þegar vel gengur og gott er í sjóinn þá eru þær jafn leiðinlegar þegar veður er vont og illa gengur," segir Gísli. Hann er einn þeirra sem gagnrýnir kerfi strandveiðanna harðlega. „Það er ekkert leyndarmál að það er heilmikið kapp í þessum veiðum. Ef einn fer út þá fylgja hinir í kjölfarið, sama hvernig viðrar. Strandveiðimenn eru jafn misjafnir og þeir eru margir og bátarnir í afar misjöfnu standi. Ég er ekki að segja að kerfið sjálft sé heimskulegt, bara að það væri hægt að gera það mun gáfulegra. Svæðaskipanin gæti haldist óbreytt og tonnafjöldinn sem útdeilt er á hvert svæði gæti einnig haldist óbreyttur. Hins vegar mætti deila þessum tonnafjölda niður á þá báta sem sótt hafa um leyfi til strandveiða. Þá fengi hver bátur fimm eða sex daga, misjafnt eftir tonnafjölda, til að sækja sinn skammt og strandveiðimenn valið sér þá daga sem þeir sækja skammtinn. Þessi skammtur yrði þá hvorki framseljanlegur á milli báta né mánaða. Þetta myndi til dæmis minnka álagið á alla þá sem að veiðunum standa í eftirliti og umsjón, fiskverð myndi hækka og vera jafnara yfir mánuðinn og veiðarnar yrðu með öllu skynsamari." Stefnir á fastráðningu á varðskip Aðspurður um framtíðardrauma sína segist Gísli helst vilja verða fastráðinn stýrimaður á einhverju varðskipinu. Hann hafi þegar fengið tækifæri til þess að spreyta sig sem stýrimaður í afleysingum og líkað mjög vel. „Fyrsti túrinn minn sem stýrimaður var dráttarverkefni frá Kanada til Danmerkur á varðskipinu Tý. Það var eitthvað lítið að sjá á leiðinni yfir hafið, við sáum hvorki önnur skip né fugla í þrjár vikur, það var frekar skrýtið. Túrinn tók alls 46 daga, frá Reykjavík til Reykjavíkur, og þótti mér alveg ótrúlega gaman, þó að hinir um borð hafi nánast verið orðnir geðveikir," segir Gísli og hlær. „Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið jafn krefjandi verkefni í fyrsta túr og þetta var rosalega góð reynsla. Síðan hef ég fengið að vera stýrimaður á Þór, nýja varðskipinu, og kom einmitt hingað til Grundarfjarðar á Grundarfjarðardagana í mínum fyrsta túr. Ég var feginn að missa ekki algjörlega af bæjarhátíðinni," sagði Gísli Valur Arnarson varðstjóri í Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar að lokum. ákj Starfsmenn stjórnstöðvarinnar í Madrid. Ljósm. Árni Sæberg. Kerfi strandveiða gæti verið gáfulegra Rætt við Gísla Val Arnarson varðstjóra í Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar Gísli Valur við strandveiðibátinn Val SH sem hann á með föður sínum. Um borð í varðskipinu Tý. Ljósm. Árni Sæberg.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.