Skessuhorn - 05.06.2013, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 23. tbl. 16. árg. 5. júní 2013 - kr. 600 í lausasölu
Bláa kortið
borgar sig
Með Bláa kortinu færð þú afslátt hjá fjölda
fyrirtækja um allt land. Kortið færir þér
aðgang að Hringtorgi, öflugri upplýsingaveitu
sem heldur utan um öll fríðindi Bláa kortsins.
Korthöfum bjóðast betri kjör m.a. í bíó,
á veitingastöðum, af flugferðum, heilsurækt,
bensíni og ýmsum viðburðum.
Sæktu um Bláa kortið á hringtorg.is.
Vallholti 5 • 300 Akranesi
434 1413
Opið: Virka daga kl. 12.00 – 18.00
Bara
kökur
Bara
ódýrt
Bakaríið Brauðval
LORATADIN LYFIS
CETIRIZIN-RATIOPHARM
Buxur
Zipp off
Buxur
kvart
Buxur
vind- og
regn-
heldar
og fl.
ÚTIVISTARFATNAÐUR
fyrir dömur og herra
Eins og síðustu ár er á þessu ári
töluvert unnið að endurnýjun og
styrkingu dreifikerfis RARIK á
Vesturlandi og loftlínum skipt út
fyrir jarðstrengi. Á þessu ári verð-
ur endurnýjaðir um 30 km af há-
spennulínu með háspennustreng í
jörðu, að sögn Inga Berg Ingason-
ar hjá áætlanadeild Rarik. Í Borg-
arfirði er Rarik að endurnýja há-
spennulínu frá Stóra-Kroppi að
Bæjarhverfinu um 8 km leið, einn-
ig er unnið að endurnýjun línunn-
ar að Eskiholti II um 4 km lögn.
Þá er línan að Bóndhól í Borgar-
hrepp um 2 km endurnýjuð og lín-
an að Smiðjuhóli um 4 km sömu-
leiðis. Í Saurbæ í Dölum verður um
6 km af háspennulínu komið í jörðu
og er það aðallega á því svæði sem
varð verst úti um áramótin síðustu.
Í Breiðuvík á Snæfellsnesi verða um
6 km af háspennulínu endurnýjuð
auk þess sem sett verður upp fjar-
stýrð rofastöð. Í Borgarnesi verðu
haldið áfram að endurnýja rafbún-
að í spennistöðvum, en skipt verð-
ur um spenna í sjö stöðvum. Jafn-
framt er spennan hækkuð úr 6 kV
í 19 kV, að sögn Inga Berg. Hann
segir að þá sé alltaf eitthvað um að
stækka þurfi spennistöðvar í sumar-
húsahverfum og dreifikerfið í þeim
styrkt. þá
Leikhópurinn Lotta er á ferð um landið þessa dagana og sunnudaginn 2. júní sl. var hann í Ólafsvík og Grundarfirði og svo á
mánudag í Stykkishólmi. Í Grundarfirði sýndi hópurinn sýninguna um Gilitrutt, geiturnar þrjár og Búkollu í einu ævintýri. Vel
var mætt í Þríhyrninginn svokallaða og skemmtu allir sér vel, ungir sem aldnir. Þetta er sjöunda árið í röð sem leikhópurinn er
með farandsýningu og eru sýningarnar gríðarlega vinsælar og vel sóttar. Miklir fagmenn þarna á ferð. Ljósm. tfk.
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð-
ar sl. fimmtudag var tekið fyrir er-
indi frá björgunarsveitunum Brák,
Ok, Heiðari og Elliða, þess efnis
að námskeiðið Björgunarmaður 1
verði kennt sem valáfangi í Mennta-
skóla Borgarfjarðar. Námskeiðið er
grunnnám björgunarsveitarfólks á
Íslandi og gefur nemendum undir-
stöðu til að verða sjálfbjarga í þeim
aðstæðum sem björgunarsveitar-
menn geta lent í vegna starfa fyr-
ir sveitirnar. Að sögn Péturs B.
Guðmundssonar formanns Brák-
ar þá tóku forsvarsmenn MB vel í
hugmyndina en leitað er til Borg-
arbyggðar til að standa straum af
kostnaði. Pétur segir að björgunar-
sveitirnar í héraðinu horfi til góðr-
ar reynslu af slíkum áfanga norð-
ur í Fjallabyggð þar sem Björg-
unarmaður 1 hefur verið kenndur
í Menntaskólanum á Tröllaskaga
á Ólafsfirði. „Að hafa áfanga sem
þennan í skólunum er mikilvægt
bæði til að auka þekkingu sveit-
anna og auka nýliðun,“ sagði Pétur
í samtali við Skessuhorn.
Byggðarráð hefur falið sveitar-
stjóra að gera tillögu að aðkomu
sveitarfélagsins að náminu.
hlh
Fíkniefnaleitarhundurinn Nökkvi
var fenginn ásamt umsjónarmanni
sínum til eftirlits í lögregluumdæmi
sýslumannsins á
Patreksfirði um
síðustu helgi,
sjómannadags-
helgina. Við eft-
irlit í tengslum
við dansleik í
félagsheimilinu
aðfararnótt sunnudags gerðist það að
ölvaður maður um þrítugt veittist að
Nökkva og rak logandi glóð í trýnið
á honum. Nökkva brá við árásina og
var óstarfhæfur um stund. Maðurinn
var handtekinn og færður í fanga-
klefa. Að sögn Theodórs Þórðarson-
ar yfirlögregluþjóns í umdæmi LBD
sem á Nökkva, er málið litið það al-
varlegum augum að líkur eru á að því
verði fylgt til enda, með hliðsjón að
dýraverndunarlögum, almennum
hegningarlögum og lögreglulögum.
Málið er hins vegar á forræði lög-
reglunnar á Patreksfirði. Nökkvi fann
eitthvert magn fíkniefna á Patró um
liðna helgi, en hann er sem kunnugt
er með bestu fíkniefnaleitarhundum
í landinu. Sigraði á Íslandsmóti fíkni-
efnahunda í fyrra ásamt hundinum
Buster. þá
Veittist að
Nökkva
Grunnnám björgunarsveita-
manna verði valáfangi í MB
Vörubílstjórar hafa haft í nógu
að snúast að flytja rúllur með
háspennuköplum a ð undanförnu, en
nokkur hluti þeirra mun fara í jörðu á
Vesturlandi á þessu ári. Ljósm. só.
Endurnýja um 30 km af
háspennulínum á Vesturlandi