Skessuhorn - 05.06.2013, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013
Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur á Vesturlandi
Dagskrá sjómannadagshelgarinnar var fjölbreytt að vanda á
Snæfellsnesi. Á öðrum stöðum fór minna fyrir hátíðarhöld-
um. Keppt var í ýmsum keppnisgreinum, krakkarnir höfðu
nóg fyrir stafni og þá voru aldraðir sjómenn heiðraðir fyrir
störf sín. Þó svo að veðrið hafi oft verið betra á þessum degi
létu íbúðar og gestir það ekki á sig fá og voru flestir í hátíð-
arskapi. Meðfylgjandi myndir fanga stemninguna sem ríkti á
Vesturlandi um síðustu helgi.
ákj
Tveir sjómenn voru heiðraðir fyrir störf sín á sjó í Ólafsvík, þeir Pétur F. Karlsson og Hermann Magnússon. Hér eru þeir ásamt
eiginkonum sínum fyrir miðri mynd. Ljósm. af.
Sigurður Jónsson frá TM afhendir Ægi Kristmundssyni, yfirvélstjóra á Steinunni
SH í Ólafsvík, Neistann sem er viðurkenning VM-Félags vélstjóra og málmtækni-
manna og Tryggingarmiðstöðvarinnar fyrir fyrirmyndar yfirvélstjórastörf.
Ljósm. af.
Unga kynslóðin fékk að spreyta sig í þrautunum í Ólafsvík. Ljósm. þa.
Hart barist í reiptogi í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Menn létu ekki lágt hitastig sjávar aftra sér í því að taka þátt í kararóðri í
Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Íslendingar eru sjómenn og víkingar. Víkingarnir fengu því einnig að
njóta sín á sjómannadeginum í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Tveir sjómenn voru heiðraðir við hátíðarguðsþjónustu í Akraneskirkju, þeir
Sigvaldi Loftsson og Jóhann Þóroddsson sem báðir eiga að baki langa og farsæla
starfsævi sem sjómenn. Ljósm. Ómar Traustason.
Það er gamall siður á sjómannadaginn. að setjast á planka
og slá annan mann með kodda þar til hann fellur í sjóinn
Sá siður er enn í hávegum hafður í Stykkishólmi. Ljósm. sá.
Flekahlaupið er alltaf jafn vinsælt í Stykkishólmi. Ljósm. sá.
Frá hátíðarhöldum sjómannadagsins á Hellissandi og Rifi. Myndin er tekin við lok
viðurkenningar sem Smári J Lúðvíksson hlaut í þetta skipti. Á myndinni eru f.v.
Kristinn Jón Friðþjófsson í Rifi, Birgir Óskarsson fv. loftskeytamaður m.a. á Elliða,
Sævar Friðþjófsson skipstjóri, Cýrus Danelíusson sjómaður, Auður Alexanders-
dóttir kona Smára Lúðvíkssonar, Smári Lúðvíksson. Þá eru forystumenn
hátíðarhalda sjómannadagsins, Páll Stefánsson skipstjóri, Friðrik Kristjánsson
skipstjóri, Atli Már Gunnarsson sjómaður og Loftur Bjarnason sjómaður.
Ljósm. Ómar Lúðvíksson.
Skotfélagið Skotgrund stóð fyrir keppni í leir-
dúfuskotfimi á milli sjómanna og landmanna,
fimmtudaginn 30. maí síðastliðinn. Vel var mætt
á mótið og mikil spenna í loftinu þegar skytturnar
reyndu sig á móti hvor annarri. Það fór svo á endanum
að sjómennirnir reyndust betri skyttur í liðakeppninni
en í einstaklingskeppninni sigraði Unnsteinn Guð-
mundsson landkrabbi með meiru. Gísli Valur Arnarson
smábátasjómaður hafnaði í öðru sæti og Steinar
Alfreðsson, sem einnig er smábátasjómaður, í því
þriðja. Ljósm. tfk.