Skessuhorn


Skessuhorn - 05.06.2013, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 05.06.2013, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013 ÚTBOÐÚTBOÐ Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is 81x120 mm TIL SÖLU Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Tilboð óskast í fasteignina Búðarbraut 12 í Dalabyggð SK ES SU H O R N 2 01 3 15412 – Búðarbraut 12, eigandi Ríkissjóður Íslands. Um er að ræða tveggja hæða steinsteypt einbýlishús með innbyggðum bílskúr sem stendur á 812 m² leigulóð. Húsnæðið er laust nú þegar. Húsið er samtals 280,5 m², byggt árið 1979 og hefur verið mikið endurnýjað að utan. Brunabótamat er kr. 60.000.000,- og fasteignamat er kr. 16.700.000,- samkvæmt Þjóðskrá Íslands - fasteignaskrá. Húseignin verður til sýnis í samráði við sýslumannsskrifstofuna í síma 433 2700 á skrifstofutíma kl. 13 - 15:30. Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum aðila og hjá Ríkiskaupum ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði. Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7, Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 11. júní 2013 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska. Sími 437 1600 • netfang: landnam@landnam.is Óskum eftir að ráða starfsmann í veitingahús Landnámsseturs, ekki yngri en 20 ára. Þarf að geta byrjað sem fyrst. Sumarvinna með möguleikum á framtíðarstarfi. Upplýsingar í síma 437 1600 eða sendið umsókn á landnam@landnam.is. Landnámssetur Íslands - Brákarbraut 13 - 15 - Borgarnesi Atvinna Kennaranám í Kundalini jóga Kynning á náminu þriðjudaginn 11. júní í BORGARNESI kl 19.45 í Dansskóla Evu Karenar (í kjallara Menntaskóla Borgarfjarðar) Kennaranám í Kundalini jóga er ferðalag sem veitir þér nýja sýn á sjálfa-n þig og lífið. Hvort sem þú hefur áhuga á að dýpka þína eigin upplifun og skilning á Kundalini jóga eða öðlast jógakennararéttindi. Kundalini jóga er fyrir alla. Nánari upplýsingar: www.andartak.is / andartak@andartak.is / Guðrún í s: 8962396 Breiðafjarðarferjan Baldur sigldi ansi ört í síðasta mánuði þegar veg- inum um Kjálkafjörð var lokað í kjölfar mikils skriðufalls í firðinum. Ferjan fór vegna þessa tvær ferðir á dag á milli Brjánslækjar og Stykkis- hólms í stað einnar. Pétur Ágústs- son framkvæmdastjóri Sæferða í Stykkishólmi, sem á og rekur Bald- ur, segir þessa tilhögun hafa gengið vel og að mikið hafi verið um flutn- inga á þessum tíma. „Nú erum við hætt að fara þessar aukaferðir og förum bara eina ferð á dag, en það virðist hreinlega vera of lítið. Yfir- leitt er orðið fullt í þessar ferðir með góðum fyrirvara því fólk veigrar sér við að keyra veginn ennþá.“ Pétur segir þennan atburð sanna enn bet- ur mikilvægi ferjunnar en hún hafi sem áður verið eina samgönguleið íbúa á suðursvæði Vestfjarða á þess- um tíma. Æskilegt væri að Baldur fari tvær ferðir á dag yfir veturinn en þær standi hins vegar ekki und- ir kostnaði. „Vegfarendur hafa eingöngu þennan eina valkost, þessa einu tímasetningu, í stað þess að geta farið fram og til baka sama dag- inn ef fólk á stutt erindi suður. Við erum oft spurð út í þetta en vanda- málið er að á veturna getum við ekki ákveðið upp á eigin spýtur að fara tvær ferðir. Kostnaðurinn er of mikill. Því þó að umferðin sé mik- il er ekki um hefðbundna farþega- flutninga að ræða. Þetta eru stórir trukkar og vöruflutningar sem gefa ekki nógu miklar tekjur til að hægt sé að reka ferjuna eingöngu á því. Ríkið yrði því að kaupa einhverjar ferðir af okkur til þess að þetta yrði hægt,“ segir Pétur. Þess má geta að Baldur fer sem áður tvær ferðir á dag í sumar frá og með næsta föstu- degi, 7. júní til 25. ágúst. Fleiri ferðamenn á veturna Pétur segir sumarið leggjast vel í starfsfólk Sæferða. „Fyrirfram bókanir eru fleiri en á sama tíma í fyrra, bæði í Baldur og í sérferðirn- ar okkar, sem gefur okkur ákveðna vísbendingu um hvernig sumarið verður. Hins vegar erum við bund- in við ákveðið þak í Baldri sem ger- ir það að verkum að við getum ekki aukið farþega- og bílafjölda í sam- ræmi við fleiri bókanir vegna þess að við höfum einfaldlega ekki meira pláss.“ Aukinn ferðamannastraumur til Íslands skilar sér aftur á móti til Sæferða í gegnum sérferðirnar sem farnar eru á skemmtisiglinga- skipinu Særúnu. „Við höfum far- ið í tvær til þrjár skemmtisigling- ar á viku frá því um miðjan janúar,“ segir Pétur en að jafnaði hafa þess- ar ferðir ekki verið farnar fyrr en í fyrsta lagi í lok apríl. „Við höfum síðan stundum náð að teygja okkur fram í miðjan október, en núna vor- um við til 10. desember í ferðum og byrjuðum aftur 16. janúar. Þetta var því bara örstutt jólafrí sem tekið var á Særúnu að þessu sinni. Ég hef trú á því að þetta eigi bara eftir að fær- ast í aukana en það sem truflar helst þessa þróun er að önnur þjónusta á svæðinu er svo lítil. Til dæmis vilja þessir hópar sem koma til okkar á veturna ekki keyra fyrir Nes eft- ir ferðir, því þar komast þeir varla á salerni, hvað þá annað. Vonandi er þetta samt allt á réttri leið,“ seg- ir Pétur og tekur jafnframt fram að þessi þróun hafi í för með sér fleiri störf fyrir fleira fólk yfir lengri tíma í ferðaþjónustunni, jafnvel yfir allt árið. Spurning um mannréttindi „Mér sýnist vera meiri bjartsýni meðal fólks í greininni en oft áður. Fólk horfir sérstaklega á þessa jað- artíma og sér tækifærin í þeim. Kannski spilar breytt veðrátta eitt- hvað inn í þessa þróun en það er varla hægt að tala um að það hafi komið vetur hér í þessum lands- hluta. Það eina sem ég er hrædd- ur við er umræðan um að takmarka ferðamenn á viss svæði. Þar horfa menn fyrst og fremst til þeirra svæða sem eru verulega aðþrengd eins og Suðurlandsins, Þingvalla og Geysis. Menn verða að passa sig á því að alhæfa ekki því hér er ekki komið sama ástand. Auðvitað þurfa allir að búa sig undir það að taka á móti fleira fólki. Það er ekki hægt að hleypa því á svæðin eins og kind- um á beit heldur þarf að gera ein- hverjar ráðstafanir. Við erum svo heppin að þó svo að við bætum við ferðum og siglum meira þá mynd- ast engin slóð eftir okkur.“ Pétur gagnrýnir fráfarandi rík- isstjórn fyrir að leyfa ekki fólkinu, sem vill búa úti á landi, að njóta vafans í einhverjum tilfellum. Of- uráhersla hafi verið lögð á náttúru- vernd sem oft á tíðum hafi bitnað á atvinnulífinu. „Til dæmis varðandi ferðaþjónustufólk hér á Breiða- fjarðarsvæðinu þá hefur þetta vega- leysissamband á Vestfjörðunum verið skelfilegt. Mér finnst agalegt að enn sé verið að rífast um hluti sem hefðu átt að vera komnir í lag fyrir tíu, fimmtán árum, eins og veginn um Barðastrandarsýsluna. Sjálfur hef ég keyrt Barðaströndina nokkrum sinnum í vor og ég skil vel að fólk sé ekki upprifið að keyra þetta að vetrarlagi. Þetta er spurn- ing um ákveðin mannréttindi fyr- ir íbúa svæðisins að úr þessu verði bætt.“ Samvinna ekki samkeppni Sæferðir var stofnað árið 1986 og hefur vaxið ört síðan. Í dag er það eitt stærsta afþreyingarfyrirtækið á landsbyggðinni. Pétur þakkar vel- gengninni ekki síst því að þau eru óhrædd við að breyta til og prófa nýjungar. „Við erum alltaf að spek- úlera í einhverju nýju og höng- um ekki á sömu hugmyndinni al- gjörlega óbreyttri. Nú erum við að leggja mikla áherslu á nýtt vöru- merki sem við köllum Víkinga- Sushi. Þetta eru að stofninum til svipaðar ferðir og við höfum verið með en við leggjum meiri áherslu á skelveiðina en áður. Þær eru styttri, ódýrari og hentugri fyrir fólk með börn og höfum við fengið mjög góð viðbrögð við þeim. Einnig höfum við verið að bæta við kvöldferðum sem við köllum Taste of Iceland og er nokkuð venjuleg ferð nema það bætist við léttur kvöldverður.“ Pétur segir samvinnuna skipta miklu meira máli en samkeppn- ina í ferðaþjónustunni. Fleiri fyr- irtæki bjóða nú upp á siglingar um Breiðafjörð, bæði frá Stykkishólmi og hinum sveitarfélögunum á Snæ- fellsnesi. Pétur lítur á þetta sem samstarfsfólk en ekki keppinauta. „Til dæmis seldum við Gísla Ólafs- syni í Grundarfirði bát í vetur og bókum fyrir hann í ferðir í hvala- skoðun. Við lítum á þetta sem meiri breidd fyrir okkur í sölumennsk- unni því ferðamennirnir spyrja okkur um alls konar ferðir og ef við getum ekki boðið upp á þær sjálf þá er gott að geta bent á annan,“ sagði Pétur Ágústsson framkvæmdastjóri Sæferða í Stykkishólmi að lokum. ákj Fólk veigrar sér enn við að keyra veginn Breiðafjarðarferjan Baldur sannaði enn og aftur gildi sitt í vor. Hér er Pétur í sjóstangveiði, en Sæferðir bjóða einnig upp á slíkar ferðir. Ljósm. Saeferdir.is.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.