Skessuhorn


Skessuhorn - 05.06.2013, Side 6

Skessuhorn - 05.06.2013, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013 Kvennahlaupið á laugardaginn VESTURLAND: Kvenna- hlaup ÍSÍ fer fram laugardag- inn 8. júní um allt land. Þetta er í 24. sinn sem hlaupið er hald- ið og í ár er það styrkt af Sjóvá. Slagorð hlaupsins að þessu sinni er „Hreyfum okkur sam- an“ í tilefni samstarfs Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og styrktarfélagsins Göngum Sam- an. Á Vesturlandi er kvenna- hlaupið haldið á flestum þétt- býlisstöðum. Á Akranesi verð- ur hlaupið frá Íþróttamiðstöð- inni Jaðarsbökkum, Þyrlupall- inum, kl. 10.30. Ávaxtaveisla í boði að loknu hlaupi. Í Hval- fjarðarsveit verður hlaupið frá Stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3 kl. 10.30, en á eftirtöldum stöð- um byrjar hlaupið klukkan 11: Í Borgarnesi verður hlaupið frá Íþróttamiðstöðinni, á Hvann- eyri frá Sverrisvelli, í Reyk- holt frá Fosshótelinu, í Stykk- ishólmi frá Íþróttamiðstöðinni, í Grundarfirði frá íþróttahús- inu og í Ólafsvík frá Sjómanna- garðinum. Í Kjósinni verður svo hlaupið frá Kaffi Kjós við Meðalfellsvatn kl. 14. Kvenna- hlaupskonur um allt land eru hvattir til að mæta í hlaupið til að skokka eða ganga, en boð- ið er upp á ýmsar vegalengdir í hlaupinu og að vali þátttakenda. -þá Ölæði í bústaðahverfi LBD: Lögregla og sjúkraflutn- ingslið voru ræst út vegna manns sem sagður var ölóður í sumar- bústað í landi Svignaskarðs um liðna helgi. Félagar mannsins réðu ekkert við hann og réðist maðurinn að lögreglunni þeg- ar að var komið með höggum og spörkum. Var hann handtek- inn og færður í fangageymslur. Engin teljandi meiðsli urðu á mönnum í þessum atgangi en nokkrar skemmdir hafði mað- urinn unnið á innanstokksmun- um í bústaðnum áður en tókst að hemja hann. Daginn eftir mundi viðkomandi ekki nokk- urn skapaðan hlut eftir að hafa verið til vandræða og skildi ekk- ert í því að hann væri kominn í fangaklefa. Nokkur erill var hjá lögreglumönnum í umdæminu um helgina, að sögn yfirlög- regluþjóns. Hvort að mánaðar- mótin spiluðu þar mest inn í eða sjávarstaða og afstaða himin- tunglanna réð þar einhverju um vissi hann ekki, en sagði að svip- að hafi verið uppi á teningnum hjá lögreglunni víða um land þessa helgi, óvenjumikil ölvun, ólæti og óstöðugleiki. –þá Víðtæk leit að konu VESTF: Víðtæk leit var gerð að franskri konu sl. laugardag á Vestfjörðum en hennar hafði verið saknað frá því kvöldið áður. Björgunarsveitir af Vest- fjörðum, Vesturlandi og höfuð- borgarsvæðinu tóku þátt í leit- inni, samtals á annað hundrað manns og mikill tækjabúnað- ur. Þyrla Landhelgisgæslunn- ar fann konuna loks um klukk- an 23:30 á laugardagskvöldinu milli Vatnsdals og Dumbudals sem er austur af botni Skötu- fjarðar. „Konan var vel áttuð, köld en blaut, en annars þokka- lega á sig komin og reyndist ós- lösuð við læknisskoðun,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg. Stal barnahjóli og lakkbrúsa AKRANES: Til lögreglunn- ar á Akranesi var tilkynnt um þjófnað á barnareiðhjóli í vik- unni sem leið. Fannst það við heimahús þess sem grunaður var um þjófnaðinn. Var hjólið nokkuð skemmt og hafði ver- ið gerð tilraun til að má rað- númerið af því en það var þó enn greinanlegt. Sá hinn sami hafði sama dag verið staðinn að þjófnaði úr verslun Húsa- smiðjunnar þar sem hann stal lakkbrúsa, sem hann hefur lík- lega ætlað að mála hjólið með. Þá voru tveir menn handtekn- ir grunaðir um ölvun við akst- ur í vikunni. Báðir voru færð- ir á lögreglustöð til blóðtöku, tekin af þeim skýrsla og þeim síðan sleppt. –þá Ók á ljósastaur á Brúartorgi LBD: Ökumaður pallbif- reiðar var handtekinn vegna gruns um að hafa verið ölvað- ur og undir áhrifum fíkniefna og ekið bíl sínum á ljósastaur á Brúartorgi í Borgarnesi að- faranótt laugardags. Nokk- uð af kannabisefnum fundust á manninum. Var hann vist- aður í fangaklefa þar til hann var viðræðuhæfur og sleppt að lokinni skýrslutöku. –þá Varúð vegna lausagöngu búfjár VESTURLAND: Í tilkynn- ingu frá lögreglunni á Akranesi segir að nú sé kominn sá tími að kindur og annar búfénaður er kominn á sumarbeit. Alltaf sé hætta á að skepnurnar brjóti sér leið út úr beitarhólfum og komi sér fyrir við þjóðvegi, því það sé með skepnurnar eins og mannfólkið, að grasið finn- ist þeim oftast grænna hinum megin girðingar. Hvetur lög- regla ökumenn að vara sig á lausagöngu búfjár á ferðum sínum um sveitir landsins. -þá Hæstiréttur staðfesti síðastlið- inn fimmtudag úrskurð Héraðs- dóms Vesturlands um að fullorð- inn maður, sem grunaður er um að hafa misnotað kynferðislega þroskahamlaða stjúpdóttur sína í um 40 ár, skuli sæta nálgunar- banni. Í úrskurði Hæstaréttar segir að manninum sé bannað að nálgast konuna eða setja sig í samband við hana með nokkrum hætti á með- an málið er til rannsóknar, en þó ekki lengur en sex mánuði. Í rök- stuðningi segir meðal annars að augljós hætta sé á því að maðurinn framhaldi kynferðisbrotum gagn- vart konunni ef hann hittir hana til dæmis á heimili hennar. Hann má því ekki nálgast heimili hennar eða verndaðan vinnustað um sem nemur 50 metra radíus frá miðju hvors húss. Þá má hann ekki hafa samband við hana í gegnum síma-, bréfa- og rafpóstssamskipti. Mann- inum var sleppt úr gæsluvarðhaldi í byrjun apríl en rannsókn lögreglu stendur enn yfir. Líkt og Skessuhorn hefur áður fjallað um er maðurinn, sem nú er á níræðisaldri, grunaður um að hafa misnotað stjúpdóttur sína frá því hún var tíu ára gömul en þau bjuggu á sveitabæ á Snæfellsnesi. Þá segir konan tvo bræður manns- ins einnig hafa brotið á sér á uml- iðnum áratugum en þeir eru báð- ir látnir. Málið komst upp þeg- ar sambýlismaður dóttur konunn- ar, og þannig tengdasonur fórnar- lambsins, viðurkenndi að hafa mis- notað tengdamóður sína í janú- ar á þessu ári. Konan bjó þá ásamt dóttur sinni og tengdasyni á um- ræddum sveitabæ á Snæfellsnesi. ákj Dæmdur í nálgunarbann vegna kynferðisbrota Miklir heyflutningar norður í land Víða eru ekki önnur úrræði en vinna nær öll tún upp til að freista þess að fá upp- skeru af þeim fyrir haustið. Forsvarsmenn Bændasamtakanna, Bjargráðasjóðs og Ráðgjafarmið- stöðvar landbúnaðarins fóru til fundar við fulltrúa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sl. föstudag til að ræða stöðu mála vegna ótíðar á Norður- og Aust- urlandi síðastliðna mánuði. Ljóst er að bændur á stórum lands- svæðum standa frammi fyrir mikl- um vanda vegna túnkals og kulda. Mjög er farið að ganga á hey- birgðir á ýmsum bæjum og hafa menn flutt fóður um langan veg til að mæta skorti. Úthagi er víða grár og gróðurvana þó komið sé fram í júní, sem er mjög óvenju- legt. Á fundinum voru lagðar fram upplýsingar sem varpa ljósi á ástandið sem er dæmalaust að mati ráðunauta. Heyflutningar hafa undanfarnar vikur staðið yfir og gengið vel. Að sögn ráðunauta virðist vera nóg til af heyi sunnan- og vestanlands. Viðbrögð sunn- lenskra- og vestlenskra bænda við heyskorti á Norðurlandi hafa ver- ið mjög góð og hafa þeir boðið hey til sölu. Talið er að Bjargráðasjóður hafi ekki burði til að mæta tjóni bænda á Norðurlandi að óbreyttu og að önnur úrræði þurfi því að koma til. Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtakanna segir samtökin muni vinna að úrlausn mála með stjórnvöldum því miklir hags- munir séu í húfi fyrir bændur og byggðir á stórum landssvæðum. Talið er að tjónið sé víða mjög mikið og sums staðar sé allt að 90% kal í túnum. Víða eru tún enn undir snjó þannig að ekki hef- ur reynst unnt að meta tjónið til fulls. mm

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.