Skessuhorn - 05.06.2013, Síða 7
7MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013
Umsækjendur þurfa að vera heiðarlegir, ábyrgir
og geta unnið sjálfstætt.
Lágmarksaldur: 22 ára. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
HÆFNISKRÖFUR:
Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum•
Góð íslenskukunnátta•
Heiðarleiki•
Snyrtimennska•
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð•
Stundvísi•
Umsækjendur þurfa að geta unnið sjálfstætt og skipulega og vera tilbúnir
til þess að læra nýja og spennandi hluti. Allir umsækjendur þurfa að geta
framvísað hreinu sakavottorði, gildu ökuskírteini og vera reiðubúnir til að
leggja fram upplýsingar úr málaskrá lögreglu verði óskað eftir því. Um er
að ræða sumarafleysingu sem hentar jafnt körlum sem konum.
Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu okkar www.securitas.is
Nánari upplýsingar gefur Kristín Dögg Höskuldsdóttir,
fulltrúi á starfsmannasviði,
kristind@securitas.is
Umsóknarfrestur er til 12. júní 2013
Securitas hf.
ÓSKUM EFTIR
ÖRYGGISVÖRÐUM
vegna verkefna á Suðvesturlandi
Dúndurstuð með Dúmbó og Steina
Dansleikur með Dúmbó og Steina verður haldinn í Hvolnum í tilefni
af 80 ára afmæli Hvolsvallar.
Dansleikurinn kl. 23 og stendur til kl. 2, húsið opnar kl. 22.
20 ára aldurstakmark. Bar á staðnum.
Miðaverð kr. 2500 í forsölu, annars kr. 3000.
Forsala fer fram í Hvolnum fimmtudaginn
6. júní klukkan 20.
Upplýsingar í síma 869-9010
Dansleikur í Hvolnum 8. júní
Lýðveldisárgangurinn á Akranesi,
börnin sem fæddust árið 1944, og
séra Jón M Guðjónsson fermdi í
Akraneskirkju vorið 1958 hefur
haldið hópinn vel og er dugleg-
ur að hittast. Hópurinn hittist á
fermingarbarnamóti sl. laugardag
og voru þá tvö ár liðin frá síðasta
móti. Að þessu sinni voru í und-
irbúningsnefndinni þrjár konur;
Ingileif Daníelsdóttir, Elsa Ingv-
arsdóttir og Guðbjörg Róberts-
dóttir. Að sögn Ingileifar hittist
hópurinn í Garðakaffi um hádeg-
isbil og síðan var haldið í Stúku-
húsið við hliðina þar sem rifj-
uð voru upp skólaböllin. Hópur-
inn átti svo heimboð í Harald-
arhús og þáði þar góðar veiting-
ar. Seinna um daginn var farið í
heimsókn til eins fermingarbróð-
ur, Viktors Sigurðssonar, í sumar-
bústað í Svínadal. Um kvöldið var
síðan hátíðarkvöldverður í Gamla
kaupfélaginu. Myndina af þess-
um glæsilega hóp tók eitt ferm-
ingarbarnið frá vorinu 1958, Þrá-
inn Þorvaldsson, og sendi Skessu-
horni.
þá
Opnun sýningar Vigdísar Bjarna-
dóttur „Fyrir vestan“ var sl. föstu-
dagskvöld á neðri hæð Átthagastof-
unnar í Ólafsvík. Vigdís er ættuð úr
Ólafsvík, dóttir Bjarna á Stöðinni og
Mörtu konu hans. Huldubörn sáu
um tónlistarflutning, Kristinn Jón-
asson bæjarstjóri opnaði sýninguna,
Pétur Jóhannsson flutti ávarp og
færði Vigdísi blóm fyrir hönd sjó-
manna og Kristín Björg Árnadótt-
ir flutti ávarp. Gestir gæddu sér á
ljúffengri fiskisúpu að hætti Dóru
og nutu kvöldsins. Sýningin verð-
ur opin til 20. júní.
Á annarri hæð Áttahagastofunn-
ar var einnig opnuð á sama tíma
málverkasýning Gísla Holgeirs-
sonar sem Kristinn Jónasson bæj-
arstjóri opnaði og í tilefni þess af-
henti Gísli Pakkhúsinu málverk af
,,Svaninum,’’ sem Elsa Bergmunds-
dóttir formaður Pakkhússnefnd-
ar tók við. Málverkið er höfðing-
leg gjöf og hefur mikilvægt menn-
ingarlegt gildi í sögu bæjarins. Ant-
on Gísli Ingólfsson smíðaði eik-
arramma utan um málverkið. Sæ-
mundur Kristjánsson fór yfir sögu
Svansins sem er mjög áhugaverð og
sýndi teikningar af skipinu. Valent-
ina Kay sá um tónlistaratriði. Mál-
verkasýning Gísla verður út júní.
þa
Tvær sýningar í
Átthagastofunni
Lýðveldisárgangurinn á Akranesi sem fermdist vorið 1958 heldur vel hópinn. Hér er hann við Haraldarhús ásamt gestgjöf-
unum Haraldi Sturlaugssyni og Ingibjörgu Pálmadóttur.
Lýðveldisárgangurinn á
fermingarbarnamóti á Akranesi