Skessuhorn - 05.06.2013, Page 19
19MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013
Það var góð stemning að vanda
þegar Hvanneyrardeild Grunn-
skóla Borgarfjarðar hélt árshátíð
sína í Skjólbeltunum fimmtudag-
inn 30. maí síðastliðinn. Nemendur
1. – 2. bekkjar sýndu leikritið Ris-
inn og börnin í þorpinu en nem-
endur unnu leikritið sjálfir upp úr
smásögu eftir Oscar Wild, Risinn
eigingjarni. Ása Hlín Svavarsdóttir
skráði spuna nemenda í leikhand-
rit og leikstýrði þeim. Skemmtileg
sýning hjá flottum krökkum.
Sýning 3. – 4. bekkjar varð til
eftir heimsókn í Landnámssetrið í
byrjun apríl. Börnin voru svo upp-
numin eftir að hafa farið í gegnum
Egilssýninguna að það kom ekk-
ert annað til greina en að gera leik-
rit um Egilssögu. Með aðstoð Ásu
Hlínar, kennara og starfsfólks skól-
ans bjuggu þau til búninga og settu
upp Egilssögu. Sýningin þótti mjög
metnaðarfull og skemmtileg.
Að loknum sýningum komu all-
ir saman í grunnskólanum. Skoð-
uðu sýningu á verkum nemenda
og drukku kaffi og borðuðu kökur
í boði foreldra.
hjs
Hjónin Svava Víglundsdótt-
ir og Unnsteinn Arason, eigendur
blóma- og gjafavöruverslunarinnar
Blómasetursins við Skúlagötu 13 í
Borgarnesi, hafa opnað nýtt kaffi-
hús inn af búðinni sem ber nafn-
ið Kaffi Kyrrð. ,,Segja má að kaffi-
húsið sé nokkurs konar afleggj-
ari frá Blómasetrinu,” segir Svava
í samtali við Skessuhorn. ,,Þeg-
ar við undirbjuggum flutning búð-
arinnar frá Borgarbrautinni hing-
að að Skúlagötu í lok síðasta árs þá
innréttuðum við sama verslunar-
rými og verslunin Kristý notaðist
áður við en hún var starfrækt hér til
fjölda ára. Inn af búðinni var tölu-
vert rými eftir sem var ónotað og
varð úr eftir nokkra umhugsun að
innrétta þar kaffihús í ámóta stíl
og blómabúðin er sett upp,” bæt-
ir Svava við og segir hugmyndina
að tengja saman blóma- og kaffi-
sölu hafa blundað í sér lengi. ,,Ég
hef kynnst svona búðum á ferða-
lögum erlendis meðal annars á Ind-
landi og í Taílandi og varð strax
skotin í þeirri hugmynd að koma á
fót slíkri verslun hér á landi. Unn-
steinn fór af stað eftir áramótin að
gera það sem gera þurfti til að gera
rýmið klárt fyrir kaffihús í þessum
anda og nú er draumurinn orðinn
að veruleika.”
Fyrrum
sýslumannskrifstofa
Unnsteinn sagði í samtali við Skessu-
horn að rýmið eigi sér nokkra sögu
líkt og húsið allt. ,,Húsið byggðu
hjónin Bragi Jóhannsson og Krist-
ín Jónasdóttir um 1960 og bjuggu
þau hér alla sína tíð. Ég og Svava
erum aðrir eigendur hússins á eftir
þeim. Bragi og Kristín leigðu sýslu-
mannsembættinu í Mýra- og Borg-
arfjarðasýslu húsnæðið í mörg ár og
var skrifstofa Ásgeirs Péturssonar
sýslumanns þar til margra ára. Ef-
laust er margir sem muna eftir því.
Síðan var verslunin Kristý hér til
húsa. Góður andi er í öllu húsinu
finnst mér og að auki gott útsýni út
á Borgarfjörð sem gestir okkar geta
notið,” segir Unnsteinn. Í kaffi-
húsinu eru rúmgóðir sófar og stól-
ar af öllum gerðum, sæti fyrir allt
að 25 manns. Þar er einnig þráð-
laust net og fjöldi bóka í hillum til
að glugga í. Á boðstólum verða all-
ir helstu kaffidrykkir, bjór, léttvín,
gosdrykkir, te og safar auk þess sem
hægt verður að kaupa eitthvað góð-
gæti til að hafa með kaffinu. „Þetta
er tilvalinn staður fyrir smáa hópa
að hittast og einnig til að halda
fundi í notalegu umhverfi,“ bætir
Svava við.
Hugljúft umhverfi
Svava og Unnsteinn ætla að opna
Kaffi Kyrrð formlega nk. laugardag
kl. 10 og verða ýmis tilboð og vöru-
kynningar á nýjungum í boði fyrir
viðskiptavini yfir opnunarhelgina.
Blómasetrið og Kaffi Kyrrð verða
síðan opin alla daga í sumar kl. 10-
22. ,,Af og til verða svo skemmtileg-
ar uppákomur hjá okkur en með-
al annars mun spákona heimsækja
okkur annað slagið og þá gefst gest-
um færi á að láta spá fyrir sig. Fyrst
og fremst hugsum við Kaffi Kyrrð
sem stað þar sem fólki á að líða vel
á og langar að koma aftur á, stað
þar sem fólk getur spjallað saman
í hugljúfu, notalegu og rómantísku
umhverfi í gamla bænum í Borg-
arnesi,” segir Svava að lokum sem
um leið býður alla hjartanlega vel-
komna í heimsókn í Kaffi Kyrrð.
hlh
Forsvarsmenn fyrirtækisins Ocean
Safari í Stykkishólmi þurfa ekki að
gera breytingar á starfsemi sinni
vegna nýlegs úrskurðar Siglinga-
stofnunar varðandi svokallaða
RIB báta sem fyrirtækið notar. Í
úrskurðinum er hafnað umsókn
hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle
Giants, um að fá að sigla með fleiri
en tólf farþega utan tímabilsins 1.
júní til 30. september án þess að
notast við einangrandi flotbún-
inga. Magnús Örn Tómasson hjá
Ocean Safari segir aldrei hafa stað-
ið til hjá þeim að fjölga farþegum
en alls eru sæti fyrir tólf manns um
borð í bátunum. Þá hafi fyrirtæk-
ið verið með undanþágu frá regl-
unni um einangrandi flotbúninga
út maímánuð en allt utan 1. júní
til 30. september telst sem vetr-
artími. Eitt af því sem Gentle Gi-
ants fór fram á í sinni umsókn var
að sumartímabilið yrði heldur skil-
greint frá 15. apríl til 31. október.
„Ég geri ráð fyrir að reglunum um
þessa búninga verði breytt fyr-
ir næsta ár nú þegar þær hafa ver-
ið teknar til endurskoðunar,“ segir
Magnús Örn í samtali við Skessu-
horn en innanríkisráðuneytið hef-
ur beint því til Siglingastofnun-
ar að taka reglur um RIB báta nú
þegar til endurskoðunar.
Ocean Safari gerir út á
skemmtisiglingar um eyjarnar í
kringum Stykkishólm á tveimur
RIB bátum, Kríu og Kjóa. Farn-
ar eru þrjár ferðir á dag, klukk-
an 11.30, 14.00 og 20.00. Að auki
eru farnar sérferðir eftir óskum
farþega. „Við höfum meðal ann-
ars verið beðnir um að fara með
fólk í ferðir út í Flatey og í lengri
ferðir um eyjar Breiðafjarðar. Við
finnum strax fyrir mikilli aukn-
ingu í bókunum hjá okkur frá því
í fyrra og erum bjartsýnir á sum-
arið,“ sagði Magnús Örn að lok-
um.
ákj
Kaffi Kyrrð er inn af afgreiðslu Blómasetursins.
Kaffi Kyrrð opnuð í Blómasetrinu í Borgarnesi
Unnsteinn og Svava, eigendur Blómasetursins og Kaffi Kyrrð.
Kjói kemur að bryggju í Stykkishólmi. Ljósm. sko.
Úrskurður hefur ekki áhrif
á Ocean Safari
Nemendur 3.-4. bekkjar sýndu leikrit um Egilssögu.
Árshátíð
Hvanneyrardeildar GBF
Atriði úr sýningu nemenda úr 1.-2. bekk.
Þriðjudaginn 11. júní verður kynn-
ing á jógakennaranámi í Kun-
dalini jóga en námið hefst næsta
haust. Guðrún Darshan jógakenn-
ari og hómópati fer yfir jógakenn-
aranámið og möguleika því tengdu
og býður upp á stuttan jógatíma í
leiðinni. Kundalini jóga er eitt af
mörgum formum jóga sem stund-
uð eru í heiminum og hefur not-
ið ört vaxandi vinsælda – ekki síður
hér á landi en annars staðar en hátt
í hundrað nemendur hafa útskrifast
úr kennaranámi í kundalini jóga frá
árinu 2008. „Kundalini jóga byggir
á taktföstum hreyfingum í takti við
öndun og það er einmitt takturinn
í æfingunum sem hjálpar huganum
að sleppa streitunni og spennunni
sem eru búnar að byggjast upp í
annríkinu. Minni áhersla er á teygj-
ur og kyrrstöðu og meiri áhersla
á að hreyfa við orkunni í gegnum
öndun og takt. Æfingarnar hafa
það markmið að styrkja innkirtla-
kerfi, taugakerfi og ónæmiskerfi –
auk þess að gefa okkur bæði líkam-
legan og andlegan styrk. Hugleiðsl-
an, sem er óaðskiljanlegur hluti af
kundalini jóga, styrkir okkur í því
að taka því sem að höndum ber af
æðruleysi og að virkja kyrrðina og
stækka þögnina innra með okkur,“
segir Guðrún.
Kynningin verður haldin í
Dansskóla Evu Karenar, í kjall-
ara Menntaskóla Borgarfjarðar, og
hefst kl 19.45. Nánari upplýsingar
eru á heimasíðunni www.andartak.
is. ákj
Kundalini jóga í Borgarnesi
Guðrún Darshan jógakennari.