Skessuhorn - 05.06.2013, Side 21
21MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013
Íslandsmót í mótokrossi fer fram
á Akrabraut á Akranesi laugardag-
inn 29. júní næstkomandi en þetta
er í annað sinn sem mótið er haldið.
Það er Vélhjólaíþróttafélag Akra-
ness sem stendur að mótinu en for-
maður þess, Jóhann Pétur Hilm-
arsson, segir undirbúning ganga
vel. „Mótið var haldið á Írskum
dögum í fyrra en við ákváðum að
hafa þetta helgina fyrir þá að þessu
sinni. Okkur reyndist erfitt að
manna mótið og eins vildu marg-
ir koma og fylgjast með mótinu en
það var svo mikið um að vera í bæn-
um að þeir fundu ekki tíma,“ segir
Jóhann Pétur og brosir. Blaðamað-
ur settist niður með Jóhanni Pétri í
síðustu viku og spurði hann nánar
um starf VÍFA, mótokrossið, boot
camp og einkaþjálfunina, en þessar
íþróttir hafa átt hug hans allan frá
því hann sagði skilið við matseldina
fyrir nokkrum árum.
Boot campið
gríðarlega vinsælt
Jóhann Pétur er fæddur og uppal-
inn á Akranesi og hefur lengst af
unnið við matreiðslu, eða í tuttugu
ár. „Ég lærði matreiðslu á Holiday
Inn í Reykjavík en starfaði lengst
af á veitingastaðnum Barbró sem
ég átti ásamt foreldrum mínum.
Þar byrjaði ég að vinna stuttu eft-
ir fermingu og var þar til við seld-
um staðinn árið 2005. Síðustu fjög-
ur árin áður en ég hætti í matreiðsl-
unni vann ég síðan í Hyrnunni í
Borgarnesi,“ rifjar hann upp, en
nokkrum árum áður hafði áhuginn
á fitness kviknað fyrir alvöru. „Ég
hafði alltaf verið mikið í ræktinni
eftir að ég hætti í sundinu um tví-
tugt og keppti í fyrsta skipti í fit-
ness árið 2003. Þá var fitnessið í
raun blanda af fitness og vaxtarrækt
þar sem bæði var keppt í þrautum
og samanburði. Í dag er þetta ein-
ungis samanburðurinn. Ég hef sagt
skilið við fitnessið í dag en keppi
þess í stað í þrekmótaröðinni sem
reynir helst á úthald og kraft.“ Jó-
hann Pétur segir þá sem gagnrýna
vaxtarrækt fyrir yfirborðsmennsku
og útlitsdýrkun ekki gera sér grein
fyrir því hversu mikil vinna ligg-
ur að baki. „Það er mikil harka og
sjálfsagi sem fer í þetta, sérstaklega
á meðan keppnin var svona blönd-
uð,“ segir hann en þess má geta að
Jóhann Pétur varð Íslandsmeistari í
fitness árið 2006. Hann hefur hins
vegar starfað sem einkaþjálfari frá
árinu 2008 og segist alltaf hafa ver-
ið á fullu í íþróttum. „Ég var í sundi
sem krakki og fór síðan að keppa
í fitness. Síðan kynntist ég Boot
camp og hef verið með námskeið í
því samhliða einkaþjálfuninni hér á
Akranesi frá 2008.“
Boot camp hefur náð gríðarleg-
um vinsældum hér á landi frá því
tveir íslenskir frumkvöðlar fóru
af stað með námskeiðin í septem-
ber 2004. „Þetta er alltaf að stækka,
bæði hér á Akranesi og þá hef-
ur þetta verið á sérstaklega hraðri
uppleið í Reykjavík eftir að starf-
semin flutti í Elliðaárdalinn. Ég
hef verið með um áttatíu iðkendur
hér að meðaltali en námskeiðin eru
klukkan sex á morgnanna alla virka
daga.“
Fjölskylduvæn starfsemi
Líkt og með vaxtarræktina er móto-
krossið töluvert erfiðara en það
virðist í fyrstu. „Mótokross er tal-
in ein erfiðasta íþrótt í heimi. Box-
ið er í öðru sæti,“ segir Jóhann Pét-
ur en hann segir undirbúning fyr-
ir Íslandsmótið ganga mjög vel hjá
félaginu. Fjórir vinnuskólakrakk-
ar munu sjá um að halda Akra-
brautinni við í sumar og þá mæta
um þrjátíu virkir félagsmenn reglu-
lega á svokölluð vinnukvöld. „Að
undanförnu höfum við til dæm-
is verið að koma á sjálfvirku vökv-
unarkerfi á brautinni,“ segir Jó-
hann Pétur aðspurður um verkefni
félagsmanna á þessum vinnukvöld-
um. „Þá höfum við einnig komið
okkur uppi húsnæði með vatni og
rafmagni ásamt sólpalli og um tvö
hundruð fermetra garði með ról-
um og annarri aðstöðu fyrir börn.
Markmiðið er að hafa þetta eins
fjölskylduvænt og hægt er.“ Auk al-
mennu brautarinnar er félagið ein-
mitt með barnamótokrossbraut og
þar hafa verið haldin námskeið fyr-
ir börn. „Sá yngsti sem kom á nám-
skeið hjá okkur í fyrra var sex ára og
sá elsti var að verða fimmtugur. Svo
þetta er ansi breiður hópur.“
Vélhjólaíþróttafélag Akraness
var stofnað í maí 2006 og þá var
strax hafist handa við að gera braut-
ina á gamla moldarpyttinum rétt
utan við bæinn. Í dag eru yfir átta-
tíu skráðir félagsmenn hjá VÍFA.
„Við gerðum rekstrarsamning við
Akraneskaupstað árið 2010 sem
hefur hleypt góðu lífi í starfsem-
ina. Það er nefnilega sama hvað þú
hefur marga sjálfboðaliða þá gerist
mjög lítið ef þú hefur enga peninga.
Brautin er í dag ein sú flottasta á
landinu, útbúin flottu starthliði og
öllu öðru sem þarf til að gera braut
góða,“ segir Jóhann Pétur.
Sjálfur byrjaði hann í mótokross-
inu árið 2008 en hafði þar áður að-
eins prófað þetta sem ungling-
ur. „Ég hélt ég gæti þetta ekki því
ég er með brjósklos í baki. Síðan
komst ég að því að vinur minn sem
einnig er með brjósklos í baki var á
fullu í þessu svo ég ákvað að prófa
líka. Þetta hefur bara gengið ljóm-
andi vel og er þetta nú annað árið í
röð sem ég gegni formennsku í fé-
laginu,“ sagði Jóhann Pétur Hilm-
arsson að lokum.
ákj
Íslendingar áttu um tíma spjótkast-
ara á heimsmælikvarða og þeirra
kunnastir eru Einar Vilhjálmsson
og Sigurður Einarsson sem áttu
sinn feril á svipuðum tíma og Einar
þá í fremstu röð íslenskra íþrótta-
manna. Nú er einn spjótkastsmeist-
arinn í viðbót kominn fram á sjónar-
sviðið og geta Vestlendingar eignað
sér talsvert í honum, þar sem hann
er með lögheimili í Skorradal, son-
ur Huldu Guðmundsdóttur á Fitj-
um og Sverris heitins Einarsson-
ar, en keppir fyrir ÍR í Reykjavík.
Hann heitir Guðmundur Sverris-
son og sigraði með glæsibrag á ný-
afstöðnum Smáþjóðaleikum í Lúx-
emborg. Guðmundur kastaði lengst
74,38 metra á leikjunum og var
auk þess að bæta sinn fyrri árang-
ur um 29 sentimetra með afburða-
góða kastseríu, þar sem öll sex köst-
in voru yfir 70 metrana.
Byrjaði að æfa 14 ára
„Það var blússandi mótvindur,
þannig að ég var dálítið stressaður,
en þetta heppnaðist svona rosalega
vel,“ sagði Guðmundur í samtali
við Skessuhorns. Aðspurður sagði
hann að næsta stórverkefni væri að
vinna sæti í liði Íslands sem fer til
Evrópubikarkeppni í Slóvakíu í lok
júní. „Síðan er það frekar draum-
ur en takmark að komast á heims-
meistaramót seinna í sumar. Það
er allt í lagi að láta sig dreyma, því
stundum verða draumar að veru-
leika.“ Guðmundur segist hafa ver-
ið 14 ára þegar hann byrjaði að æfa
spjótkast. „Vinur minn dró mig á
æfingu en fram að þessu hafði ég
ekki æft neina íþrótt. Ég gat ekki
hlaupið og ekki hoppað, en ég gat
kastað spjóti. Síðan þá hefur þetta
bara orðið skemmtilegra,“ seg-
ir Guðmundur en hann æfir undir
stjórn Einars Vilhjálmssonar mesta
spjótkastara Íslands, sem kastaði
lengst 86,80 metra. „Ég ætla að
hafa gaman af spjótkastinu áfram
og læt mig dreyma um að kasta ein-
hvern tímann jafn langt og þjálfari
minn gerði.“
Þekki hvern krók
og kima
Guðmundur er 23 ára gamall og
nemur jarðfræði við Háskóla Ís-
lands. „Það eru skemmtilegir krakk-
ar með mér í náminu og jarðfræðin
höfðar til mín.“ Aðspurður hvort sá
áhugi tengist kannski dvöl hans á
Fitjum í bernsku segir Guðmund-
ur. „Kannski að einhverju leyti. Að
minnsta kosti man ég vel að ég var
að leika mér þarna úti um allt og
spá í ýmsa hluti á gönguferðum um
nágrennið. Ég þekki mig mjög vel
til þarna fremst í Skorradalnum,
þekki þar hvern krók og kima og
finnst ennþá hvergi betra að vera,“
segir Guðmundur. þá
Akrabrautin ein sú flottasta á landinu
Rætt við Jóhann Pétur Hilmarsson formann VÍFA og einkaþjálfara
Mótokrossið verður sífellt vinsælla á Akranesi. Ljósm. Friðþjófur Helgason.
Jóhann Pétur Hilmarsson.
Hér reynir Guðmundur sig við Stefánstak, 163 kg stein sem kenndur er við Stefán Guðmundsson langafi hans á Fitjum.
Skorrdælingur spjótkastmeistari á Smáþjóðaleikum
Guðmundur á verðlaunapalli í Lúxemborg. Ísland vann tvöfaldan sigur í
spjótkastinu, Örn Davíðsson varð í öðru sæti með kast upp á tæpa 70 metra, eða
þremur og hálfum metra styttra en Guðmundur Sverrisson.
Ljósm. Einar Vilhjálmsson.Guðmundur á æfingu. Mynd úr myndsafni ÍR.
Guðmundur stillir sér upp með
spjótið milli kasta í keppni. Mynd úr
myndasafni ÍR.