Skessuhorn


Skessuhorn - 05.06.2013, Síða 26

Skessuhorn - 05.06.2013, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013 Mikið um dýrðir á opnunarhátíð N1 í Borgarnesi Ný þjónustustöð N1 í Borgarnesi var tekin formlega í notkun með pompi og prakt sl. föstudag. N1 stóð fyrir opnunarhátíð af þessu tilefni og bauð gestum upp á grill- aðar pylsur, ís, kökur og lifandi tónlist frá hljómsveitinni Heavy Metan, sem skipuð er starfsmönn- um N1. Hoppkastali var á svæðinu fyrir börn auk skólahreystibrautar og þá var boðið upp á andlitsmál- un. Eggert B. Guðmundsson for- stjóri N1 ávarpaði gesti og sagði hann nýju stöðina vera stærstu og glæsilegustu perluna í perlufesti fyrirtækisins á Íslandi. N1 væri annt um það að bjóða viðskipta- vinum sínum upp á góða þjónustu í Borgarnesi og væri nýja stöðin til vitnis um þann metnað. Einn- ig ávarpaði gesti Páll S. Brynjars- son sveitarstjóri Borgarbyggðar og óskaði hann N1 til hamingju með nýju stöðina. Páll notaði tækifærið og færði starfsfólki nýju þjónustu- stöðvarinnar blómvönd frá Borg- arbyggð og veitti Sigurður Guð- mundsson stöðvarstjóra honum viðtöku fyrir hönd starfsfólks. Þá færði Páll Eggerti forstjóra að gjöf bókina ,,Víst þeir sóttu sjóinn,” eftir Ara Sigvaldason, en hann þóttist vita að Eggert væri áhugamaður um útgerð þar sem hann sat í forstjórastóli HB Granda í mörg ár áður en hann tók við stjórn N1 í fyrra. Ekki væru marg- ir sem vissu að Borgnesingar hefði staðið í útgerð með góðum árangri um miðja síðustu öld og sagði Páll að framtakið væri til vitnis um það að allt væri hægt að gera í Borg- arnesi. Eggert þakkaði gjöfina og sagði um leið að ef Borgnesing- ar færu aftur í útgerð gætur þeir treyst á að fá olíu á flotann hjá N1 á góðum kjörum. Loks undirrit- uðu Eggert forstjóri og Ívar Ragn- arsson, deildarstjóri vöruþróunar N1, samstarfssamning við körfu- knattleiksdeild Skallagríms sem gildir til næstu þriggja ára. Það var Björn Bjarki Þorsteinsson for- maður kkd. Skallagríms sem skrif- aði undir samninginn fyrir hönd deildarinnar. Að sögn Sigurðar Guðmunds- sonar stöðvarstjóra lögðu um 2.000 gestir leið sína í nýju stöðina á opnunardaginn og sagði hann N1 menn vera afar ánægðir með viðtökurnar. Alls eru um 40 stöðu- gildi í stöðinni og er því nýja þjón- ustustöðin með stærstu vinnustöð- um í Borgarnesi. hlh Páll Brynjarsson sveitarstjóri Borgarbyggðar færir starfsfólki N1 blómvönd frá sveitarfélaginu. Sigurður Guðmundsson stöðvarstjóra tók við honum fyrir hönd starfsfólks. Eggert B. Guðmundsson forstjóri N1 ávarpaði gesti. Boðið var upp á andlitsmálun. Eggert B. Guðmundsson forstjóri N1 ásamt Guðmundi Ingimundarsyni, sem var forstöðumaður Hyrnunnar þegar hún var vígð í júní 1991, og Þóri Þorvarðarsyni. Björn Bjarki Þorsteinsson formaður kkd. Skallagríms, Ívar Ragnarsson deildar- stjóri vöruþróunar N1 og Eggert B. Guðmundsson forstjóri N1 undirrita samstarfs- samning N1 og Skallagríms sem gildir til næstu þriggja ára. Hljómsveitin Heavy Metan, skipuð starfsmönnum N1, léku nokkur þekkt íslensk dægurlög fyrir gesti. Sérstakt leiksvæði fyrir börn er meðal helstu nýjunga þjónustustöðvarinnar. Nóg var um blöðrur fyrir krakka. Óliver Kristján Fjeldsted var einn af mörgum krökkum sem fór í andlits- málun. Feðginin Eiríkur Þór Theódórsson og Kristbjörg Ragney voru meðal þeirra tvö þúsund gesta sem heimsóttu stöðina á föstudaginn. Góð stemning var hjá starfsfólki N1 á opnunardaginn.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.