Skessuhorn - 05.06.2013, Síða 31
31MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2013
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Eyjólfur Sverris-
son þjálfari U-21
landsliðs karla
í knattspyrnu
valdi í liðinni
viku 18 manna
le ikmannahóp
sem hélt ytra og mætir liði Armen-
íu á morgun, 6. júní. Einn leikmað-
ur ÍA er í hópnum, miðju- og sókn-
armaðurinn Andri Adolphsson,
eins og reyndar oft áður. Andri hélt
út með liðinu sl. mánudag. þá
Vesturlandsliðin sem eftir eru í Borg-
unarbikarnum, Bikarkeppni KSÍ,
fengu bæði heimaleiki gegn liðum í
Pepsídeildinni þegar dregið var í 16-
liða úrslitin í hádeginu á mánudaginn.
Skagamenn mæta Breiðabliki og Vík-
ingar fá Framara í heimsókn. Leikir
Vesturlandsliðanna eru meðal þriggja
leikja fimmtudagskvöldið 20. júní en
hinir fimm fara fram kvöldið áður.
Bæði eiga Vesturlandsliðin harma
að hefna gegn þessum andstæðing-
um sínum í deildarkeppninni fyrr í
vor. Víkingar töpuðu 1:2 heima fyrir
Fram í fyrstu umferð og Skagamenn
lágu 1:4 fyrir Blikum í þriðju um-
ferð mótsins, en sá leikur fór fram í
Kópavogi. Þriðja viðureignin þar sem
lið úr Pepsídeild mætast í 16-liða úr-
slitunum er Stjörnunnar og FH. Bik-
armeistarar KR heimsækja Leikni í
Breiðholtið og Sindri úr 2. deild fær
Fylki í heimsókn. Grótta úr 2. deild
mætir Magna Grenivík úr 3. deild
og aðrir leikir í 16-liða úrslitum eru
Víkingur R. - Tindastóll og BÍ/Bol-
ungarvík - ÍBV. þá
ÍA fór með sigur af hólmi þeg-
ar liðið mætti KR í Borgunarbikar
kvenna í Vesturbænum sl. þriðju-
dagskvöld. Skagastúlkur hafa því
tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum
þar sem þær munu mæta HK/Vík-
ingi en dregið var í hádeginu á mið-
vikudaginn. Leikurinn mun að öll-
um líkindum fara fram þriðjudag-
inn 11. júní næstkomandi.
Fyrri hálfleikur var heldur tíð-
indalítill en markalaust var þeg-
ar dómarinn flautaði til leikhlés.
Magnea Guðlaugsdóttir, þjálfari
ÍA, gerði tvær breytingar á liðinu
í upphafi seinni hálfleiks. Unnur
Ýr Haraldsdóttir kom inn fyrir Al-
dísi Ylfu Heimisdóttur og Guðrún
Karítas Sigurðardóttir kom inn fyr-
ir Emilíu Halldórsdóttur. Við það
breyttist leikur liðsins. Það voru
hins vegar KR-ingar sem náðu for-
ystunni á 50. mínútu en þar var að
verki hin austfirska Sonja Björk Jó-
hannsdóttir. Skagastúlkur sýndu
hins vegar mikinn karakter og gáf-
ust ekki upp þó að á móti blési.
Áður en leiktíminn rann út var
varamaðurinn Unnur Ýr Haralds-
dóttir búin að skora tvö mörk fyrir
ÍA. Það fyrsta kom á 68. mínútu og
það seinna, sem var jafnframt sig-
urmarkið í leiknum, kom á 79. mín-
útu. Lokaniðurstaða því góður 1-2
sigur hjá ÍA.
Næsti leikur ÍA stúlkna í bikar-
keppninni verður þriðjudaginn 11.
júní á Akranesvelli gegn HK/Vík-
ingi. Áður leikja þær gegn Haukum
á útivelli á laugardaginn.
ákj
Lið ÍA í A-riðli 1. deildar kvenna
í knattspyrnu lék sinn þriðja leik á
Íslandsmótinu á föstudaginn þeg-
ar liðið fékk Fylkiskonur úr Árbæn-
um í heimsókn á Akranes. Leikið var
í Akraneshöllinni. Skagakonur voru
fyrri til að skora í leiknum og var
þar á ferðinni Guðrún Karitas Sig-
urðardóttur sem skoraði á 34 mín-
útu. ÍA hélt forystunni út fyrri hálf-
leik og lengi vel í seinni hálfleik eða
allt þar til gestirnir jöfnuðu á 80 mín-
útu. Ekki náðu Skagakonur að ná
forystunni á nýjan leik og skildu lið-
in því að endingu jöfn, 1:1. ÍA trón-
ir á toppi A-riðils eftir leikinn með
sjö stig að loknum þremur umferð-
um. Næsti leikur ÍA er á laugardag-
inn gegn liði Hauka á útivelli í Hafn-
arfirði. hlh
Söguleg stund var á Ólafsvíkurvelli
þegar kvennalið Víkings Ólafsvík-
ur í meistaraflokki spilaði sinn fyrsta
heimaleik í A-riðli fyrstu deildar.
Tóku þær á móti Tindastóli sem fyr-
ir leikinn var stigalaust á botni rið-
ilsins. Fyrri hálfleikur var rólegur en
Víkingsstúlkur áttu mörg góð tæki-
færi. Í byrjun seinni hálfleiks skor-
aði Rakel Hinriksdóttir fyrir Tinda-
stól og staðan því 0 – 1 gestunum í
vil. Stúlkurnar gáfust þó ekki upp og
á 91. mínútu skoraði Lovísa Mar-
grét Kristjánsdóttir fyrir Víking eft-
ir mikla baráttu í teig Tindastóls.
Leiknum lauk því með 1 – 1 jafntefli
og stelpurnar komnar í 6. sæti með
tvö stig. Þess má geta að frítt var
inn á leikinn í boði Sjávariðjunnar á
Rifi. Næsti leikur Víkingskvenna er
svo 8. júní næstkomandi á Ólafsvík-
urvelli gegn Fram. þa
Áætlað er að taka forsmekk á sæluna
og efna til kvennahlaups á Höfða,
hjúkrunar- og dvalarheimili á Akra-
nesi á föstudaginn, en kvennahlaup-
ið sjálft fer sem kunnugt er fram á
laugardaginn um land allt. María
Ásmundsdóttir iðjuþjálfi á Höfða
segir að þarna sé verið að fara að
fordæmi Hrafnistu og fleiri heim-
ila, að halda kvennahlaup á föstu-
deginum og þar hafi
þessum við-
burði ver-
ið fagnað
og heppn-
ast vel.
„Þetta er í
undirbúningi hjá
okkur núna,“
sagði María
í samtali við
S k e s s u h o r n .
Hún sagði að stefnt
væri á að halda hlaupið klukkan ell-
efu á föstudag, eða á svipuðum tíma
og farið væri út í gönguferðir, sem
reyndar væru fyrst að byrja þetta
vorið núna í vikunni. María sagði
að vitaskuld fengju þátttakendur í
hlaupinu bol og síðan verðlauna-
pening að því loknu, sem karlarnir
á heimilinu myndu væntanlega af-
henda. Hún sagði ekki verra ef að-
standendur heimilisfólks sæju sér
fært að mæta til að hjálpa til, þar
sem þetta yrði frumraun að halda
kvennahlaupið á Höfða. þá
Bakvörðurinn Orri Jónsson verð-
ur áfram í herbúðum Úrvalsdeildar-
liðs Skallagríms í körfubolta á næstu
leiktíð en hann skrifaði undir nýjan
samning við liðið í lok síðasta mán-
aðar. Orri var drjúgur í liði Skalla-
gríms á síðustu leiktíð, skoraði 4,3
stig að meðaltali í leik, hirti 2,5 frá-
köst og gaf 2,6 stoðsendingar. Orri
er fæddur árið 1992 og er frá bænum
Lundi í Lundarreykjadal og stundar
hann nám við Landbúnaðarháskóla
Íslands á Hvanneyri. Áður en hann
gekk til liðs við Borgnesinga lék hann
með liði FSu á Selfossi. hlh
Pálmi Þór Sævars-
son mun áfram
þjálfa Úrvalsdeild-
arlið Skallagríms í
körfubolta á næstu
leiktíð. Pálmi skrif-
aði undir nýjan samning við félagið
í lok maí og verður næsta tímabil
hans fjórða með liðið. Undir stjórn
Pálma hafa Skallagrímsmenn náð
að vinna sæti í Úrvalsdeild og þá
komst liðið í átta lið úrslit deildar-
innar á síðustu leiktíð. Skallagríms-
menn hafa einnig tryggt sér starfs-
krafta Finns Jónssonar áfram á
næsta tímabili sem aðstoðarþjálfara
meistaraflokks og verkefnisstjóra
yngri flokka. hlh
Áhorfendur á Akranesvelli urðu
vitni að miklum bikarslag á Akra-
nesvelli sl. miðvikudagskvöld þeg-
ar Skagamenn tóku á móti Selfyss-
ingum í 32-liða úrslitum Borgun-
arbikarsins, Bikarkeppni KSÍ. Jafnt
var eftir venjulegan leiktíma 1:1,
en í framlengingunni tókst Skaga-
mönnum að gera út um leikinn
með marki Garðars Gunnlaugs-
sonar. Skagamenn voru sterkari
aðilinn í leiknum, en færin létu á
sér standa. Páll Gísli markvörð-
ur bjargaði þeim þó frá að lenda
ekki undir í leiknum þegar gestirnir
fengu dæmda vítaspyrnu á 34. mín-
útu leiksins. Sama var upp á ten-
ingnum í seinni hálfleiknum, lítið
um færi en meiri þungi í sóknarleik
heimamanna. Á 81. mínútu dró til
tíðinda þegar Skagamönnum tókst
að komast yfir í leiknum. Garðar
Gunnlaugsson, sem lék með Skaga-
mönnum að nýju eftir meiðsli og
kom inná fyrir Þórð Birgisson á 57.
mínútu, lagði þá boltann fyrir Jó-
hannes Karl Guðjónsson sem skor-
aði með góðu skoti. En Adam var
ekki lengi í paradís hjá heimamönn-
um því gestirnir lögðu ekki árar
í bát og tókst að jafna metin á 87.
mínútu. Jafnt var því eftir venjuleg-
an leiktíma og það var síðan í byrj-
un seinni hluta framlengingar sem
Garðar Gunnlaugsson stimplaði
sig rækilega inn þetta vorið með því
að skora sigurmark ÍA. Næsti bik-
arleikur ÍA verður fimmtudaginn
20. júní gegn Breiðabliki á Akra-
nesvelli.
þá
Sameiginlegt lið Snæ-
fells/Geislans lék
gegn liði Skínandi á
Samsung vellinum í
Garðabæ á laugardag-
inn í B-riðli 4. deildar
karla í knattspyrnu. Liðið þurfti að
sætta sig við 4:2 tap í leiknum þrátt
fyrir að hafa komist 1:2 yfir í upp-
hafi seinni hálfleiks. Mörk Snæ-
fells/Geislans í leiknum skoruðu
Valur Tómasson og Óðinn Helga-
son. Snæfell/Geislinn vermir sjö-
unda sæti B-riðils eftir þrjá umferð-
ir og er með eitt stig. Næsti leik-
ur liðsins er gegn sameiginlegu liði
Kormáks/Hvatar á laugardaginn á
Stykkishólmsvelli og hefst leikur-
inn kl. 14.
hlh
Jafntefli á
heimavelli
Andri í U-21
Bæði Vesturlands-
liðin fá heimaleiki
og lið í efstu deild
Orri áfram í
Skallagrími
Kvennahlaup á
Höfða á föstudaginn
Pálmi og Finnur
verða áfram
Tap í Garðabæ
hjá Snæfelli
Jafntefli í fyrsta heimaleik
Víkingskvenna
Unnur Ýr Haraldsdóttir skoraði bæði
mörk ÍA í leiknum.
ÍA lagði KR í bikarnum
Arnar Már Guðjónsson sækir að marki Selfoss í fyrri hálfleiknum gegn Selfossi.
Skagamenn lögðu Selfyssinga
í framlengingu