Skessuhorn - 05.03.2014, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014
Þessa dagana er hópur á vegum
Sameinuðu þjóðanna á námskeiði
í Borgarnesi. Er hann staddur
hér á vegum utanríkisráðuneytis-
ins en tilheyrir OCHA, samræm-
ingaraðila Sameinuðu þjóðanna.
„OCHA er hópur sérfræðinga á
vegum Sameinuðu þjóðanna, sem
þjálfaðir er til að fara á hamfara-
svæði. Hópurinn samræmir að-
gerðir allra viðbragsaðila og passar
að allir vinni saman að sömu mark-
miðum og að enginn falli á milli
fjala, eins og sagt er. Þetta er æðsta
samræmingaraflið þegar hamfarir
eiga sér stað,“ segir Guðbrandur
Örn Arnarson, verkefnastjóri að-
gerðamála hjá Landsbjörgu í sam-
tali við Skessuhorn. Um er að ræða
undirbúningsnámskeið þar sem fé-
lagar í hópnum eru búnir undir að
starfa sem stjórnendur á hamfara-
svæðum. „Ísland er einn af fjórtán
aðilum sem eru hluti af OCHA.
Námskeiðin eru haldin til skiptis
á milli landa og nú er þessi tæp-
lega þrjátíu manna hópur á vegum
Sameinuðu þjóðanna staddur hér.
Sex einstaklingar eru frá Íslandi;
tveir frá Landsbjörgu og fjórir úr
Friðargæslunni,“ segir Guðbrand-
ur.
Hópurinn kíkti í síðustu viku
í heimsókn til Björgunarfélags
Akraness. Að sögn Þórs Bínó, for-
manns Björgunarfélagsins, var
starfsemin kynnt fyrir hópnum,
félögum í honum boðið í siglingu
og einhverjir reyndu fyrir sér í kas-
saklifri, svo fátt eitt sé nefnt. Með-
fylgjandi myndir voru teknar í
heimsókn hópsins á Akranesi.
grþ
Þær gerast varla stærri gjafirnar
en þær sem afhentar voru við at-
höfn í Bæjarþingsalnum á Akra-
nesi sl. föstudag. Þá var formlega
lagður niður minningarsjóður sem
stofnað var til árið 1969 til minn-
ingar um hjónin á Bræðraparti á
Akranesi, Guðlaugu Gunnlaugs-
dóttur húsmóður og Jón Gunn-
laugsson útvegsbónda. Við athöfn-
ina sl. föstudag var veitt framsal
fyrir á annað hundrað milljónum
króna til uppbyggingar og velferð-
ar á Akranesi eins og fram kom í
ávarpi Elínar Sigrúnar Jónsdótt-
ur þegar hún minntist afa síns og
ömmu frá Bræðraparti. Við slit á
minningarsjóðnum rennur bróð-
urpartur hans til björgunarmála á
Akranesi. Þau mál voru Bræðrap-
artshjónum hugleikin og ákvæði
um þann skipan í reglum sjóðsins.
Björgunarfélag Akraness og Slysa-
varnarfélagið Líf fá lóð sjóðsins til
eignar, en fasteignamat hennar er
nú um 66 milljónir króna. Björg-
wunarfélagið og Líf fá auk þess
20 milljónir krónur samtals í pen-
ingum. Sjóðsstjórn fær tæplega 35
milljónir sem úthlutað verður til
eftirfarandi verkefna: Tíu millj-
ónir fara til fjármögnunar endur-
bóta sem hafa verið gerðar á gamla
vitanum á Breið á Akranesi, en þar
var Jón Gunnlaugsson vitavörður
í rúm 30 ár. Tíu milljónir króna
fara til Byggðasafnsins í Görðum
til varðveislu muna fjölskyldunn-
ar sem gefnir hafa verið til safns-
ins, þar með talinn er árabáturinn
Sæunn. Loks verður hluta sjóðsins
varið til að byggja heita laug við
Langasand á Akranesi til afnota
fyrir almenning. Laugin skal bera
nafnið Guðlaug.
Stofnárið 100 ára
árstíð Jóns
Eins og áður segir eru eignir minn-
ingarsjóðsins metnar á liðlega eitt
hundrað milljónir króna. „Það er
von fjölskyldunnar að allt þetta
fé sem nú er framselt megi verða
Akurnesingum og samfélaginu til
heilla, hamingjuauka, gleði og efl-
ingar,“ sagði Elín Sigrún Jónsdótt-
ir í ávarpi sínu við upphaf athafn-
arinnar sl. föstudag. Guðlaug og
Jón bjuggu á Bræðraparti í rúm 40
ár við virðingu og vinsældir eins og
sagt var í grein sr. Jóns M. Guð-
jónssonar um þau. Hugmyndin
að stofnun minningarsjóðsins um
Bræðrapartshjónin varð til á 100
ára árstíð Jóns árið 1968. Stofnfé
sjóðsins var lagt fram af börnum
þeirra hjóna sem jafnframt voru
stofnendur sjóðsins. Þau voru
Ingunn M. Jónsdóttir Freeberg,
Jón Kr. Jónsson og Ólafur Jóns-
son. Sjóðsstofnendur báru þá von
í brjósti að á Akranesi yrði stofn-
settur sjávarútvegsskóli.
Á fundi bæjarráðs Akraness sl.
fimmtudag var ákveðið að hætta
við að ráða í starf markaðs- og
kynningarfulltrúa Akraneskaup-
staðar og hefur öllum umsóknum
um starfið því verið hafnað. Starfið
var auglýst fyrr í vetur og voru um-
sækjendur 32. Þeim hefur nú verið
tilkynnt um ákvörðun bæjarráðs og
jafnframt boðið að umsókn þeirra
gildi áfram. Í stað fyrrgreinds starfs
verður starf ferðamálafulltrúa aug-
lýst laust til umsóknar og hæfnis-
kröfur fyrir það starf sambærilegar
og í starf markaðs- og kynningar-
fulltrúa sem ekki verður ráðið í að
minnsta kosti að sinni.
Skýringin sem gefin er fyrir þess-
ari ákvörðun bæjarráðs og töfum
sem orðið hafa á ráðningu í um-
rætt starf eru ákveðnar breytingar
sem orðið hafa og tengjast ferða-
málum á Akranesi. Þær eru að nú-
verandi rekstraraðili tjaldsvæðisins
hefur sagt upp samningi við Akra-
neskaupstað um reksturinn. Það
gefi tilefni til að endurhugsa starf
að ferðamálum í bænum. Þar sem
rekstur tjaldsvæðisins sé umfangs-
mikill og krefjist mikillar viðveru
á sumrin, þá var það mat bæjaryf-
irvalda að starfið, eftir að rekstrar-
þætti og umsjón með tjaldstæði var
bætt við, hefði tekið það miklum
breytingum að ekki væri unnt ann-
að en auglýsa það að nýju. Heiti
á starfinu er einnig breytt til að
gefa sigrúm fyrir starfsheitið upp-
lýsinga- og kynningarfulltrúi ef
ákveðið verður að ráða starfsmann
í slíkt starf síðar meir, segir í skýr-
ingum sem umsækjendum voru
gefnar.
þá/ Ljósm. fh.
Hópur sérfræðinga í björgun
á hamfarasvæðum
Hætt við ráðningu í starf
markaðs og kynningarfulltrúa
Á annað hundrað milljónum veitt til samfélagsmála á Akranesi
Ingunn M Jónsdóttur Freeberg og
Agnar Sigurðsson sem var góður vinur
hennar. Aggapallur undir áhorfenda-
stúkum Akranesvallar er nefndur eftir
honum. Myndin er líklega frá 1945 og
er í vörslu Haraldarhúss.
Fulltrúar gefenda og þiggjenda við slit minningarsjóðsins í Bæjarþingsalnum sl. föstudag. Ljósmynd: Guðni Hannesson.
Átti að styrkja fátæka til
sjávarútvegsnáms
Tilgangur sjóðsins var að styrkja
fátækt ungt fólk til náms í sjávar-
útvegsfræðum og vinnslu sjávar-
afurða, til náms í skipstjórn, vél-
stjórn, verkstjórn og fiskiðnaði.
Stofnfé sjóðsins var landareignin
Bræðrapartur, þrír og hálfur hekt-
ari lands með öllum gögnum og
gæðum. Með landareigninni fylgdu
leigulóðasamningar af landinu og
hafa leigutekjur alla tíð runnið til
sjóðsins og mynda í dag helming
hans á móti fasteignamati landsins.
Sjóðsstjórnina hafa skipað þrír full-
trúar fjölskyldu Guðlaugar og Jóns
ásamt forseta bæjarstjórnar og bæj-
arstjóra á Akranesi. Eini eftirlifandi
stofnenda sjóðsins er Ingunn M.
Jónsdóttir Freeberg, sem er á tí-
ræðis aldri en bræður hennar tveir
voru kenndir við útgerðarfyrirtæk-
ið Miðnes í Sandgerði. Ingunn hef-
ur verið búsett í Kaliforníu í rúm
60 ár. Fram kom við athöfnina sl.
föstudag að hún hafi stöðugt fylgst
með þróun mála og vakað yfir út-
hlutnum og málefnum sjóðsins. þá.
Ljósm. Guðbrandur Örn Arnarson
Hjónin frá Bræðraparti; Jón Gunn-
laugsson og Guðlaug Gunnlaugsdóttir.
Ljósm. úr safni Haraldarhúss.
Ljósm. Kolla Ingvars.