Skessuhorn - 05.03.2014, Side 31
31MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2014
Sími 455 54 00
Fax 455 54 99
postur@byggdastofnun.is
byggdastofnun.is
TIL SÖLU
Gamla vélsmiðjan á Patreksfirði
- Sjóræningjahúsið -
Byggðastofnun lýsir eftir tilboðum í fasteignina
Vatneyri vélsmiðja (fnr. 212-4171) á Patreksfirði.
Húseignin er samtals 736 og þar hefur verið
rekið kaffihús með aðstöðu til veislu-, funda- og
tónleikahalds.
Fasteignamat er samtals 8.975.000,-.
Brunabótamat er samtals 58.490.000,-
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 455-5400.
Sjá einnig fleiri auglýstar eignir á
www.byggdastofnun.is
Auglýst er eftir áhugasömum
aðila til að byggja upp
ferðaþjónustu á Akurshól
Akraneskaupstaður auglýsir eftir áhugasömum aðila
til að byggja upp ferðaþjónustutengda starfsemi á
landsvæðinu Akurshól sem er grasi gróinn hóll rétt
fyrir ofan Akraneshöfn.
Byggingarreiturinn er skilgreindur sem eitt byggingarsvæði
og er u.þ.b. 2.064 m2. Leyfi er fyrir því að reisa
gufubaðsklefa og 6-7 gistiskála. Sett er sem skilyrði að
húsin séu flytjanleg.
Frekari gögn varðandi málið er hægt að nálgast í
þjónustuveri Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18. Einnig
stendur til boða að fá þau afhent rafrænt.
Við val á rekstraraðila verður einkum litið til
eftirfarandi þátta:
Hversu vel hugmyndin rýmar við ferðaþjónstutengda •
starfsemi
Lýsing á því hvernig svæðið verður byggt upp og útlit •
húsa
Viðskiptaáætlunar•
Að fjármögnun verkefnisins sé tryggð•
Tíma- og verkáætlun•
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2014 og skal
skila inn umsóknum í þjónustuver Akraneskaupstaðar að
Stillholti 16-18 eða með tölvupósti á akranes@akranes.is.
Nánari upplýsingar veitir Runólfur Sigurðsson skipulags-
og bygginarfulltrúi í síma 433-1000.
Breytingar eru framundan í Norska
húsinu í Stykkishólmi, Byggða-
safni Snæfellinga og Hnappdæla.
AlmaDís Kristinsdóttir forstöðu-
maður hefur sagt starfi sínu lausu.
Hún hefur verið forstöðumaður
Norska hússins í tvö ár og eru áætl-
uð starfslok hennar 30. apríl næst-
komandi. Ástæðuna fyrir uppsögn-
inni segir hún tvíþætta. „Ástæðan
er bæði persónulegs og faglegs eðl-
is. Annars vegar eru það húsnæð-
ismálin en ég hef verið svo hepp-
in að leigja yndislegt hús síðastlið-
in tvö ár sem nú er komið í sölu.
Ég sé mér ekki fært að kaupa það
og hef því ákveðið að snúa aftur til
höfuðborgarinnar þrátt fyrir frá-
bæran tíma í fallegum bæ. Hins
vegar hefur mér hlotnast styrk-
ur sem gerir það að verkum að ég
get sinnt doktorsrannsókn minni í
safnafræði betur og verið nær fjöl-
skyldu og eigin fræðasviði í námi og
kennslu,“ segir AlmaDís. Hún bæt-
ir því við að þetta hafi verið mjög
góður og lærdómsríkur tími, sem
eini starfsmaður Byggðasafns Snæ-
fellinga og Hnappdæla í Norska
húsinu frá apríl 2012. „Föðurafi
minn og -amma tengdust Snorra-
stöðum og Syðstu-Görðum í Kol-
beinsstaðahreppi og það hafa verið
forréttindi að hafa fengið að kynn-
ast svæðinu betur.“
Frábært tækifæri fyrir
þá sem þora
Hún nefnir að Norska húsið sé
stórmerkilegt hús, enda 182 ára
í júní á þessu ári og á lista yfir tíu
merkilegustu hús landsins. Norska
húsið – BSH öðlaðist nýlega við-
Miðvikudaginn 1. janúar síðast-
liðinn voru landsmenn 325.671 og
hafði fjölgað um 3.814 frá sama tíma
árið 2013. Þetta jafngildir fjölgun
um 1,2% milli ára. Konum og körl-
um fjölgaði sambærilega á árinu og
voru karlar 1.065 fleiri en konur á
nýársdag. Mikil fólksfjölgun var á
höfuðborgarsvæðinu en þar voru
íbúar 3.077 fleiri 1. janúar 2014 en
ári fyrr. Það jafngildir 1,5% fjölgun
íbúa þar. Hlutfallslega varð fólks-
fjölgunin hins vegar mest á Suður-
nesjum, þar sem fjölgaði um 1,7%,
eða 354 íbúa frá síðasta ári. Fólki
fjölgaði einnig á Suðurlandi, um
253 einstaklinga (1,1%), og um 90
(0,7%) á Austurlandi. Minni fólks-
fjölgun var á Vesturlandi (0,4%) og
Norðurlandi eystra (0,2%). Fólks-
fækkun var á tveimur landssvæðum,
Vestfjörðum þar sem fækkaði um
59 manns, eða 0,8%, og á Norður-
landi vestra en þar fækkaði um 26,
eða 0,4%.
Um áramót voru 74 sveitarfélög
á landinu, sami fjöldi og árið áður.
Sveitarfélögin eru misstór. Íbúa-
tala sex sveitarfélaga var undir 100
en undir 1.000 í 42 sveitarfélögum.
Einungis níu sveitarfélög höfðu yfir
5.000 íbúa. Á landinu voru 69 þétt-
býlisstaðir með 200 íbúa eða fleiri 1.
janúar 2014. Þeim hafði fjölgað um
tvo frá fyrra ári. Auk þeirra voru 34
smærri staðir með 50-199 íbúa sem
er fækkun um tvo frá fyrra ári. Í þétt-
býli bjuggu 305.642 manns 1. janúar
2014 og hafði þá fjölgað um 4.178 á
árinu. Í dreifbýli og smærri byggða-
kjörnum bjuggu 20.029 manns.
Breytingar á
Vesturlandi
Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu
fjölgar íbúum sumsstaðar á Vestur-
landi en fjölgar á öðrum. Af fimm-
tán stöðum sem teknir eru út í sam-
antekt Hagstofunnar fjölgar íbúum
á sex stöðum en fækkar á níu. Íbú-
um fækkar í strjálbýli og víða á Snæ-
fellsnesi en fjölgar í Borgarnesi og
Akranesi, Bifröst, Hellissandi, Búð-
ardal og á Innnesinu í Hvalfjarðar-
sveit. mm
Mannfjöldi eftir byggðakjörnum, kyni og aldri
Alls
2013 2014
Akranes 6.612 6.686
Innnes 56 58
Melahverfi í Hvalfirði 115 113
Borgarnes 1.759 1.824
Hvanneyri 251 250
Kleppjárnsreykir 51 47
Bifröst 246 251
Hellissandur 389 396
Rif 163 161
Ólafsvík 1.010 981
Grundarfjörður 852 826
Stykkishólmur 1.108 1.091
Búðardalur 252 266
Strjálbýli á Vesturlandi 2.517 2.491
Reykhólar 133 129
Landsmenn voru 325.671 í ársbyrjun
AlmaDís Kristinsdóttir hættir sem for-
stöðumaður Norska hússins.
AlmaDís hættir brátt sem forstöðumaður Norska hússins
urkenningu sem faglegt safn frá
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu en aðeins 39 söfn hafa hlot-
ið slíka viðurkenningu á landsvísu.
„Safnamál þyrftu að vera meira for-
gangsmál hér um slóðir en fimm
sveitarfélög standa að Norska hús-
inu. Mér sjálfri hefur fundist ganga
heldur hægt að breyta og bæta en
ein manneskja breytir ekki viðhorf-
um heils samfélags. Til þess þarf
mikinn meðbyr allra hlutaðeigandi
sveitarfélaga og hér eru tækifæri til
samvinnu á hverju strái. Hér er að
opnast frábært tækifæri til að takast
á við safnamál á svæðinu og gríð-
arlega spennandi áskorun fyrir þá
sem þora, og það á fallegasta svæði
landsins,“ segir AlmaDís að end-
ingu. Hún mun fylgja eftir skipu-
lagningu sem hefur átt sér stað um
þónokkurn tíma vegna sumaropn-
unar 1. júní 2014 og verður nýjum
forstöðumanni til halds og trausts í
lok maí.
grþ
Norska húsið.