Skessuhorn - 02.04.2014, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2014
Uppskeruhátíð Gleðileikana fór
fram á föstudaginn í Grunnskól-
anum í Borgarnesi með pompi og
prakt á sama tíma og opið hús skól-
ans í tilefni þemaviku var haldið.
Á Gleðileikunum, sem skipulagð-
ir voru af Foreldrafélagi grunn-
skólans, kepptu nemendur á elsta
skólastigi í 12 þrautum af ýmsum
toga á jafnmörgum stöðum í neðri
bænum í Borgarnesi. Alls tóku 12
lið þátt í keppninni en öllum nem-
endum á elsta stigi, samtals 128, var
skipt jafnt niður í hópana. Þraut-
irnar voru skipulagðar í samstarfi
við grunnskólann sjálfan, Björgun-
arsveitina Brák, Skátafélag Borg-
arness, Rauða krossinn, lögregl-
una, Slökkvilið Borgarbyggðar og
Edduveröld. Einkunnarorð Gleði-
leikanna voru að þessu sinni sjálf-
stæði og samvinna og miðuðust
þrautirnar sem krakkarnir tókust á
við að efla þá og styrkja á ólíkum
sviðum lífsins. Á uppskeruhátíðinni
á föstudaginn var sýnt myndband
Sifjar Ásmundsdóttur kvikmynda-
gerðarkonu um leikana en hún
fylgdist grannt með keppninni.
„Ómetanlegur stuðningur ein-
staklinga og fyrirtækja voru til
þess að leikarnir urðu að veru-
leika,“ sagði Eva Hlín Alfreðsdótt-
ir hjá foreldrafélaginu í samtali við
Skessuhorn. „Foreldrafélag Grunn-
skólans í Borgarnesi er einstaklega
þakklátt þeim fjölda einstaklinga
sem gáfu af tíma sínum og tóku að
sér að vera hópstjórar og fóru með
krökkunum í gegn um þrautirnar
sem lagðar voru fyrir. Án allra sjálf-
boðaliðanna hefði þessi hugmynd
aldrei orðið að veruleika. Jafnframt
er það von Foreldrafélagsins að hið
frjóa samstarf við félagasamtök-
in vaxi og dafni og fleiri fyrirtæki
komið að teikniborðinu fyrir næstu
Gleðileika.“ hlh
Þegar farinn er Snæfellsnesshring-
urinn er sumsstaðar drjúgur spotti
á milli áningarstaða. Við upphaf
og enda hringsins er áningarstað-
urinn Vegamót. Þar var lengi rek-
ið kaupfélag og samnefnd verslun
og þjónustumiðstöð. Þar er ekki
lengur veitingastaður kenndur við
Vegamót, heldur Hótel Rjúkandi
með samnefndri veitingaþjón-
ustu. Í byrjun mars var svo opn-
að kaffihúsið Rjúkandi kaffi. Þeg-
ar blaðamaður Skessuhorns var á
leið af Snæfellsnesinu á dögunum
kom hann við á Hóteli Rjúkanda.
Á þeirri stundu er hann ók þar að
steig út úr bílum sínum á hlaðinu
hópur franskra ferðamanna sem
höfðu nýlokið hringferð um Snæ-
fellsnesið. Það er nefnilega orð-
ið býsna algengt nú í seinni tíð að
ferðamenn fari þennan hring að
vetrarlagi, enda margt þar að sjá.
Einnig fer áningar- og skoðunar-
stöðum fjölgandi á hringnum, svo
sem Vatnshellirinn sem er mjög
vinsæll hjá ferðamönnum, Kol-
grafafjörður hefur mikið aðdrátt-
arafl og áfram mætti telja.
Spennandi breyting á
rekstrinum
Þau verða í forsvari fyrir því að
taka á móti gestum á Hóteli Rjúk-
anda, ungt sambýlisfólk, Sig-
rún Erla Eyjólfsdóttir og Gabrí-
el Franch. Foreldrar Sigrúnar
Erlu, Eyjólfur Gísli Garðarsson og
Hrefna Birkis dóttir eiga staðinn,
keyptu Vegamót árið 1998 og ráku
þar þjónustumiðstöðina. Sigrún
Erla segir að það hafi verið í byrj-
un síðasta árs sem ákvörðun var
tekin um að breyta rekstrinum og
fara út í byggingu hótels. „Frá því
að mamma og pabbi fluttu hingað
á Vegamót hef ég tekið þátt í ýms-
um breytingum með þeim. Mér
finnst þessi breyting núna vera
mest spennandi til þessa. Við erum
að vonast til að geta leigt út fyrsta
herbergið eftir helgi, þetta er alveg
á lokasprettinum. Iðnaðarmenn-
irnir eru að klára um helgina en ég
hef nú líka tekið þátt í þessu með
þeim. Var til dæmis á hnjánum við
að leggja flísar,“ segir Sigrún Erla
glaðleg á svip.
Mjög ánægð með
nafnið
Sigrún Erla segir að upphaflega
hafi ætlunin verið að endurbyggja
gamalt hús á Vegamótum en þegar
til kom hafi það reynst ónothæft.
Það þurfti því að byggja alveg nýtt
hús frá grunni. Nýja hótelbygg-
ingin er með 13 vel útbúnum og
glæsilegum herbergjum og þar af
einni svítu. Til staðar er veitinga-
og fundasalur fyrir 60 manns sem
nýttur verður til morgunverð-
ar fyrir hótelgesti og til að taka á
móti hópum. „Við höfðum svo á
prjónunum að endurbæta húsnæð-
ið þar sem við erum með veitinga-
þjónustuna og færa það í stíl við
salinn og hótelið. Við ætlum að
bjóða upp á hádegis- og kvöldverð
og þess á milli verðum við með
kaffihús sem kallað er Rjúkandi
kaffi. Okkur fannst tilvalið að kalla
staðinn eftir fossinum í Straum-
fjarðará og svo erum við líka á
jarðhitasvæði. Það var ekki nema
sex dögum eftir að nafnabreyting-
in fékkst frá sýslumanni að tók að
rjúka úr borholunni við Lynghaga.
Það voru gleðitíðindi og erum við
hæst ánægð með það,“ segir Sig-
rún Erla.
Tala fjölda tungumála
Það verða ekki vandræði fyr-
ir starfsfólkið á Hótel Rjúkanda
að taka á móti hvort heldur er-
lendum eða innlendum gestum.
Sigrún Erla hefur dvalið á Ítalíu,
Spáni og í Svíþjóð og talar þessi
tungumál reiprennandi. Kærast-
inn hennar Gabríel er spænskur
Argentínumaður og þau kynnt-
ust með því að tala ítölsku. Syst-
ir Sigrúnar Erlu hefur líka verið
innan við afgreiðsluborðið á Vega-
mótum til fjölda ára. Hún heitir
Ólöf og nemur nú ferðamálafræði
við Háskóla Íslands. Ólöf og kær-
asti hennar Bjarne Ómar Nielsen
verða líka að vinna á Hótel Rjúk-
anda næsta sumar, sem og annað
heimilisfólk. „Þetta er fjölskyldu-
fyrirtæki en við fáum kokk til okk-
ar núna í næsta mánuði og verðum
með tvo kokka í sumar.“
Eru stolt af
Snæfellsnesinu
Aðspurð segir Sigrún Erla að þó-
nokkuð margar fyrirspurnir liggi
fyrir um gistingu næsta sumar.
„Við ætlum líka að gera út á að fá
til okkar hópa á fundi og minni
mannfagnaði eins og til dæmis
ættarmót. Við erum staðráðin í að
vanda okkur og bjóða upp á góð-
ar veitingar og þjónustu. Það verð-
ur líka lögð áhersla á það hjá okk-
ur að hafa góða tengingu við aðra
sem eru í ferðaþjónustu á Snæ-
fellsnesi, því öll erum við að vinna
að sama marki. Við öll erum mjög
stolt af Snæfellsnesinu og teljum
svæðið hafa upp á margt að bjóða.
Þó að ég sé aðflutt þá þykir mér
ósköp vænt um þetta svæði,“ sagði
Sigrún Erla Eyjólfsdóttir á Hótel
Rjúkanda að endingu.
þá
Loks þegar veður gekk niður á
Snæfellsnesi og miðunum í kring
í liðinni viku voru aflabrögð góð
hjá bátunum. Mjög góð veiði var á
öll veiðarfæri að línunni undanskil-
inni. Hafa nokkrir línubátar þess
vegna farið til Grindavíkur og hafa
fiskað vel þar. Meðfylgjandi mynd
tóku hins vegar strákarnir á Matth-
íasi SH þegar þeir fengu 20 tonna
hal á föstudaginn síðasta. Sama dag
lönduðu þeir 32 tonnum. Þá land-
aði Hafnartindur SH tvisvar sinn-
um samtals 17 tonnum sama dag,
en það er mesti afli sem þeir bræður
Kristmundur og Baldvin hafa feng-
ið í einum róðri. Einnig landaði
Bára SH tæpum 20 tonnum í þrem-
ur löndunum á föstudaginn. Þegar
þessi frétt var skrifuð var Magnús
SH búinn að fara átta róðra frá því
hann kom úr breytingunum. Hefur
hann í þessum róðrum fengið tæp-
lega 200 tonn og fer því vel af stað.
þa
Það er vorlegt um að litast og ljóst
að vorið er á næstu grösum ef það
er ekki þegar komið. Þá er um að
gera að byrja að fegra ásýnd bæj-
arins eins og starfsmenn Almennu
umhverfisþjónustunnar voru að
gera við Grundarfjarðarhöfn þegar
fréttaritari Skessuhorns átti leið þar
um á mánudaginn. Þar er verið að
laga gamlar hellur sem voru farnar
að láta á sjá og þörfnuðust smá upp-
lyftingar. tfk
Mokfiskast á allt
nema línuna
Vorverkin hafin
Nemendur á elsta stigi í Grunnskólanum í Borgarnesi stilltu sér upp í myndatöku á föstudaginn.
Gleðileikarnir heppnuðust vel
Hótel Rjúkandi opnað á Vegamótum
Í Hótel Rjúkanda eru 13 vel búin og glæsileg herbergi, þar á meðal svíta.
Sigrún Erla Eyjólfsdóttir og Gabríel Franch taka á móti gestum á Hótel Rjúkanda.