Skessuhorn - 30.04.2014, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Tónleikar til
styrktar Fjöliðj-
unni
BORGARNES: Mikið verð-
ur um dýrðir í Hjálmakletti í
Borgarnesi föstudaginn 9.
maí nk. þegar fram fara tón-
leikar til styrktar Fjöliðjunni
í Borgarnesi. Afrakstur tón-
leikanna mun renna óskipt-
ur í söfnunarsjóð til tækja-
kaupa. Númer kvöldsins eru
ekki af verri endanum. Fram
koma Jónas Sig, Ingó veð-
urguð, Hallgrímur Odds-
son, KK og hljómsveitirnar
Brother Grass, Baggaband-
ið, Grasasnar og Festival.
Kynnir kvöldsins verður út-
varpsmaðurinn Doddi litli á
Rás 2. Miðaverð er 3.000 kr.
en tónleikarnir hefjast kl. 20.
-hlh
Akstursbann á
hálendinu
LANDIÐ: Meðan frost er
að fara úr jörðu þarf Vega-
gerðin að banna allan akst-
ur á hálendinu til að koma í
veg fyrir skemmdir á vegum
og náttúru. „Þeir sem hyggja
á fjallaferðir eru beðnir að
kynna sér ástand á viðkom-
andi leiðum og virða akst-
ursbann þar sem það er í
gildi,“ segir í tilkynningu frá
Vegagerðinni. Vegfarendum
er bent á að kynna sér færð á
vef Vegagerðarinnar. –mm
Áætlun um
refaveiðar
LANDIÐ: Undanfarin
tvö ár hefur ríkið ekki tek-
ið þátt í kostnaði sveitarfé-
laga við refaveiðar. Nú verð-
ur breyting þar á því á fjár-
lögum er gert ráð fyrir 30
milljónum á ári í verkefnið
til næstu þriggja ára. For-
senda fjárveitingarinnar er
að gerðir verði samningar
við sveitarfélögin um end-
urgreiðslur. Gert er ráð fyrir
að endurgreiðslan nemi allt
að þriðjungi kostnaðar sveit-
arfélaga. Umhverfisstofnun
hefur útbúið drög að áætl-
un til þriggja ára um refa-
veiðar og eru þau nú til um-
sagnar nokkurra stofnana.
Markmiðið með henni er að
tryggja upplýsingaöflun og
samráð við helstu hagsmuna-
aðila. Þannig megi byggja
upp enn betri grunn fyrir
ákvarðanatöku um veiðar á
ref. Að þremur árum liðn-
um má gera ráð fyrir að betri
upplýsingar um stofnstærð
refsins um land allt liggi fyr-
ir sem og frekari upplýsinga
um tjón.
–mm
Tíu stærstu hlut-
hafar í HB-
Granda
SV-LAND: Hlutabréf í HB-
Granda voru tekin formlega til
viðskipta á aðalmarkaði Kaup-
hallar Íslands sl. föstudag í
kjölfar útboðs á 27% af hlutafé
félagsins. Listi yfir tíu stærstu
hluthafa eftir útboðið var birtur
samdægurs og lítur hann svona
út: Vogun hf. er stærsti hlut-
hafi með 33,51%. Í öðru sæti
er Arion banki með 12,11%
og Hampiðjan hf. þriðja með
8,78%. Aðrir helstu eigendur
eru: Eignarhaldsfélagið VGJ
ehf. (5,49%), Lífeyrissjóð-
ur verslunarmanna (5,19%),
TM fé ehf. (5,08%), Gildi líf-
eyrissjóður (5%), Ingimund-
ur Ingimundarson (2,63%),
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
(2,18%) og Festa lífeyrissjóður
(1,88%). Samtals eiga þessir tíu
aðilar 81,86% af hlutafé í fyrir-
tækinu. –hlh
Aflatölur fyrir
Vesturland
19. - 25. apríl.
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes 21 bátur.
Heildarlöndun: 53.691 kg.
Mestur afli: Stapavík AK:
8.059 kg í fimm löndunum.
Arnarstapi 28 bátar.
Heildarlöndun: 95.880 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 22.581 kg í þremur lönd-
unum.
Grundarfjörður 11 bátar.
Heildarlöndun: 134.930 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
64.627 kg í einni löndun.
Ólafsvík 27 bátar.
Heildarlöndun: 299.266 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
40.963 kg í þremur löndunum.
Rif 25 bátar.
Heildarlöndun: 335.229 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
71.305 kg í þremur löndunum.
Stykkishólmur 11 bátar.
Heildarlöndun: 50.309 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
31.806 kg í tveimur löndun-
um.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Hringur SH – GRU:
64.627 kg. 23. apríl
2. Örvar SH – RIF:
41.958 kg. 24. apríl
3. Þórsnes SH – STH:
28.120 kg. 23. apríl
4. Magnús SH – RIF:
26.533 kg. 23. apríl
5. Magnús SH – RIF:
25.909 kg. 24. apríl.
mþh
Í síðustu viku var hafist handa við
að dýpka Akraneshöfn svo stærri
skip geti lagst þar vandræðalaust
upp að bryggjum. Til stendur að
grafa meðfram hafnargarðinum
sem í daglegu tali er oft nefndur
Stóra bryggjan þannig að alls stað-
ar verði að lágmarki tíu metra dýpi
meðfram honum á fjöru. Einnig
verður dýpkað á sama hátt sunn-
an megin við hina svokölluðu Litlu
bryggju og innanvert við innri hlið
Sementsbryggjunnar. Það á einn-
ig að dýpka mynni hafnarinnar þar
sem grynnkar lítils háttar. Þessar
framkvæmdir munu eiga að standa
yfir næstu vikurnar. mþh
Grundarfjarðarvöllur kemur þokka-
lega undan vetri þetta árið. Útlitið
var ekki gott í vetur enda lá þykk-
ur klakabunki um tíma yfir vellin-
um. Eins og Skessuhorn greindi frá
í vetur þá fann Friðrik Tryggvason
hjá Almennu umhverfisþjónust-
unni ehf. í Grundarfirði upp ný-
stárlegt verkfæri til að gata klakann
yfir vellinum. Notkun þess virðist
hafa gefið góða raun því að við nán-
ari skoðun nú er engar kalskemmd-
ir að finna í vellinum eins og óttast
var um í vetur. Brúnin er því létt á
vallarstarfsmönnum Grundarfjarð-
arvallar sem sönduðu völlin fyr-
ir skemmstu. Binda þeir loks von-
ir við að veðurfar verði hagstætt í
vor svo völlurinn grænki vel líkt og
fyrri ár.
tfk
Fiskimjölsverksmiðja HB Granda á
Akranesi er nú keyrð á fullum af-
köstum þar sem hver kolmunnaf-
armurinn á fætur öðrum berst að
landi. Bæði Faxi RE og Ingunn AK
lönduðu kolmunna á Akranesi um
liðna helgi. Lundey NS kom síðan
með farm í byrjun vikunnar. Nærri
má geta að um fimm þúsund tonn-
um af kolmunna hafi verið landað
til framleiðslu á fiskimjöli og lýsi í
verksmiðjunni á Akranesi upp úr
þessum þremur uppsjávarveiði-
skipum HB Granda. Veiðarnar eru
stundaðar syðst í lögsögu Færeyja.
Aflabrögðin hafa verið ágæt eftir að
kolmunninn gekk þar inn sunnan
að um páskana. Siglingaleiðin frá
miðunum til Akraness er um 460
sjómílur eða um 850 kílómetrar.
Alla jafna hafa skip HB Granda
landað kolmunnanum til vinnslu
á Vopnafirði. Þar hefur hins veg-
ar staðið yfir stækkun á fiskimjöls-
verksmiðjunni og hún því ekki get-
að tekið á móti hráefni. Því verður
kolmunninn unninn á Akranesi þar
til verksmiðjan á Vopnafirði kemst
aftur í gagnið.
mþh
Lið Akraneskaupsstaðar vann
góðan sigur á Grindavík í síð-
ari undanúrslitaviðureign spurn-
ingaþáttarins Útsvars sem fram
fór á RÚV síðastliðið föstudags-
kvöld. Eftir hnífjafna keppni
framan af náðu Skagamenn að
skjótast fram úr Grindvíkingum
og vinna góðan sigur, 113:77.
Skagamenn eru þar með búnir
að tryggja sér sæti í úrslitaviður-
eign þáttarins þar sem þeir mæta
liði Reykvíkinga. Í keppnisliði
Akurnesinga eru þau Valgarður
Lyngdal Jónsson, Þorkell Logi
Steinsson og Sigurbjörg Þrast-
ardóttir. Úrslitaviðureignin fer
fram á föstudaginn og hefst út-
sending frá henni kl. 20:25.
hlh
Svona kemur Grundarfjarðarvöllur undan vetri.
Klakagötun virðist hafa gefið góða raun
Eyþór Stanley Eyþórsson við störf í stjórnstöð fiskimjölsverk-
smiðju HB Granda á Akranesi. Ljósm MÞH.
Kolmunni bræddur af kappi á Akranesi
Frá Akraneshöfn á mánudaginn. Beðið með löndun úr
Lundey NS og verið klára löndun úr Ingunni AK.
Ljósm. Kolla Ingvars.
Dýpkunarskipið Pétur mikli
ásamt gröfupramma að störfum í
Akraneshöfn síðasta vetrardag.
Dýpkunarframkvæmdir
hafnar í Akraneshöfn
Liðsmenn Akraneskaupstaðar
voru léttir í bragði eftir sigurinn á
Grindavík.
Skagamenn komnir í úrslit Útsvarsins