Skessuhorn - 30.04.2014, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Skessuhorn fjallaði í síðustu viku
um tilraunaverkefni um eflingu
menntunar í Norðvesturkjördæmi.
Þar var rætt við Hörð Baldvins-
son verkefnisstjóra hjá Símenntun-
armiðstöð Vesturlands sem vinnur
að verkefninu. Í viðtalinu var vísað
í athugun Harðar á fjölda iðnnema
í landshlutanum þar sem greint var
frá því að á sumum svæðum væru
ótrúlega fáir iðnnemar. „Þetta er
áberandi á sjávarútvegsvæðinu Snæ-
fellsnesi. Í Snæfellsbæ eru einungis
tveir iðnnemar, einn í Ólafsvík og
annar á Hellissandi. Í Grundarfirði
er einn iðnnemi og tveir í Stykk-
ishólmi. Staðan er betri á öðrum
svæðum, en þó ekki góð. Á Akra-
nesi eru 18 iðnnemar, átta í Borg-
arnesi og þrír í Búðardal,“ var haft
eftir Herði í umfjölluninni. Fjöldi
iðnnema eru þó meiri en þessar töl-
ur gefa til kynna, því hér var ein-
ungis átt við iðnnema á samningi
á þessum svæðum. Fjöldi iðnnema
er hins vegar meiri og segir Jens B.
Baldursson, aðstoðarskólameistari
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi í samtali við Skessuhorn, að
þeir séu nú sem dæmi 155 hjá skól-
anum. Sumir þeirra eru á samningi
en fæstir eru komnir á samning.
„Af þessum eru 43 í rafvirkjun,
70 í vélvirkjun, þar af 26 í dreif-
námi, og 27 í húsasmíði. Þess utan
eru 15 nemendur í tækninámi á al-
mennri námsbraut sem síðan grein-
ist í húsasmíði og vélsmíði. Kynja-
Svokallaður Valborgardagur var
haldinn í Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga í morgun, þriðjudaginn 29.
apríl. Þá eru kennarar með kynn-
ingu á áföngum sem verða í boði
á haustönn 2014. Skemmtileg
stemning hefur myndast á þessum
degi í gegnum tíðina því kennar-
ar reyna hvað þeir geta til að koma
sínum áföngum rækilega á fram-
færi. Þá má oft sjá sælgætisskálar
á borðum ásamt öðru góðgæti. Á
meðfylgjandi mynd eru þeir Loft-
ur Árni Björgvinsson og Hafsteinn
Mar Sigurbjörnsson enskukennar-
ar við skólann að sýna nemendum
kvikmyndina Monty Python and
the Holy Grail ásamt því að bjóða
nemendum gotterí með. Með þessu
vonast þeir eftir að sjá fleiri ný and-
lit í enskutímum næsta haust. tfk
Hátíðarhöld í tilefni sumardags-
ins fyrsta voru víðast hvar um
landið síðastliðinn fimmtudag.
Að auki var fyrsti Safnadagur-
inn á Vesturlandi haldinn þann
dag. Mismunandi viðburðir voru
á söfnum og setrum víðsvegar um
landshlutann en aðalatriðið var
að alls staðar var opið og frítt inn
fyrir gesti. Safnadagurinn er sam-
starfsverkefni safna, setra og sýn-
inga á Vesturlandi og var mark-
miðið með honum að vekja at-
hygli heimamanna og gesta þeirra
á fjölbreyttu safnastarfi á Vest-
urlandi. Auk þess var markmið
dagsins að efla sögu og menning-
artengda ferðaþjónustu í lands-
hlutanum. Meðfylgjandi mynd-
ir voru teknar í landshlutanum
á Safnadeginum á sumardaginn
fyrsta, sem talinn var vel heppn-
aður og skemmtilegur.
grþ
Nemendur Tónlistarskóla Borgarfjarðar fluttu frumsamin lög við opnun minn-
ingarsýningar um skáldið Guðmund Böðvarsson frá Kirkjubóli í Hvítársíðu í
Safnahúsinu í Borgarnesi. Nemendurnir unnu þar með ljóð Guðmundar og völdu
sjálf texta eftir hann. Ljósm. eee.
Safnadagurinn á Vesturlandi haldinn í fyrsta skipti
Elsa Fanney Grétarsdóttir hafði umsjón með handverkssýningu sem opnuð var í Sögumiðstöðinni á safnadaginn í Grundar-
firði. Ljósm. tfk.
Ingi Hans Jónsson hélt fjölmennt opnunarteiti Sögustofunnar í Grundarfirði. Hér
má sjá hann og Sigurborgu Kr Hannesdóttur eiginkonu hans opna kampavíns-
flösku í tilefni dagsins. Ljósm. tfk.
Þóra Grímsdóttir sagnakona sagði sögur í Safnaskálanum í Görðum á Akranesi. Margir lögðu leið sína á safnasvæðið þennan
dag, í kringum 250 manns. Ljósm. Jón Allansson.
Kennarar ginna til sín nemendur á Valborgardegi
Á annað hundrað nemenda stundar iðnnám á Vesturlandi
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi, miðstöð iðnnáms á Vesturlandi.
hlutfallið er síðan 151 karl á móti
4 konum,“ segir Jens sem bendir á
að allar líkur séu á því að einhverjir
Vestlendingar stundi iðnnám utan
landshlutans, t.d í greinum sem
ekki eru kenndar hér eins og pípu-
lögnum. Jens bætir því við að það sé
hins vegar rétt að of fáir stundi iðn-
nám í dag miðað við það sem gerð-
ist fyrir nokkrum árum. Ungt fólk
sem hefur nýlokið grunnskóla vel-
ur nú í meira mæli bóknám en áður.
Það sé þróun sem þurfi að bregð-
ast við.
hlh