Skessuhorn - 30.04.2014, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Það var skemmtileg stund í Safna-
húsi Borgfirðinga sl. fimmtudags-
kvöld þegar nemendur Tónlist-
arskóla Borgarfjarðar komu fram
og fluttu eigin tónsmíðar við ljóð
Guðmundar Böðvarssonar skálds
frá Kirkjubóli. Yngsta tónskáldið
var Sara Sól Guðmundsdóttir, sem
hér sést. Sara Sól er sjö ára. Hún
flutti lag við ljóðið „Vorið góða“
með dyggri aðstoð kennara síns;
Jónínu Ernu Arnardóttur.
Þess má geta að við þetta tæki-
færi var opnuð afar falleg sýning
um Guðmund Böðvarsson sem
tveir ungir hönnuðir, þeir Sigur-
steinn Þorsteinsson og Magnús
Hreggviðsson, hafa gert. Fjallað
var um sýninguna í síðasta Skessu-
horni. Þá voru sl. fimmtudag einn-
ig sýnd myndverk 9. bekkinga við
ljóð skáldsins.
mm/gj
Úrslit í Karaókíkeppni fyrir-
tækja í Snæfellsbæ réðust síðasta
laugardagskvöld í Röst á Hellis-
sandi. Kvöldið var í alla staði mjög
skemmtilegt og húsfyllir eins og
hefur verið á undankvöldunum.
Þeir sex sem kepptu til úrslita voru:
Friðþjófur Orri Jóhannsson fyrir
Melnes, Dagbjört Guðmundsdótt-
ir fyrir Hraðfyrstihús Hellissands,
Alda Dís Arnardóttir fyrir Hraðbúð
Hellissands, Guðrún Lára Pálma-
dóttir fyrir Frystiklefann, Birgitta
Rún Baldursdóttir fyrir Rifsara og
Hafrún Björnsdóttir fyrir Sjávar-
iðjuna. Sérstakur gestadómari var
Magni Ásgeirsson og kynnar voru
Erla Gunnlaugsdóttir og Atli Már
Gunnarsson.
Erla og Magni opnuðu kvöld-
ið með söng og svo tóku keppend-
ur við einn af öðrum, hver öðr-
um betri. Í hléi braust svo eró-
tíska tölvupopphljómsveitin Söndri
á svið og tók tvö lög. Dómararn-
ir Erla Höskuldsdóttir og Sigur-
steinn Þór Einarsson sungu einn-
ig fyrir gesti en þau hafa verið
dómarar á öllum karaókíkvöldun-
um. Eftir að allir keppendur höfðu
svo sungið seinna lagið sitt kom
að salnum að kjósa og dómnefnd-
inni að ráða ráðum sínum. Sigur-
vegari varð hin mjög svo efnilega
Alda Dís Arnardóttir fyrir Hrað-
búðina og fylgdu fast á eftir henni
þær Birgitta Rún Baldursdótt-
ir fyrir Rifsara í öðru sæti og Haf-
rún Björnsdóttir fyrir Sjávariðjuna í
þriðja sæti. Hafði Magni það á orði
að hann hefði aldrei verið dómari
á eins skemmtilegri keppni. Eft-
ir að Alda Dís hafði flutt sigurlag-
ið bað hún um orðið þar sem hún
talaði fallega um samfélagið sitt og
grunnskólann þar sem hún steig sín
fyrstu skref sem söngkona. Bað hún
einhvern tengdan skólanum um að
stíga á svið. Sigrún Baldursdóttir
tók það að sér fyrir hönd skólans og
þar afhenti Alda Dís Grunnskóla
Snæfellsbæjar verðlaunaféð sitt;
eitthundrað þúsund krónur. Ósk-
aði hún eftir að peningunum yrði
varið til þess að setja upp söngleik
eða eitthvað álíka í skólanum svo að
fleiri fengju sömu tækifæri og hún.
Glæsileg ung kona þarna á ferð.
Lionskonur í Þernunni geta ver-
ið stoltar af þessu frábæra framtaki
sínu því keppnin hefur í alla staði
verið skemmtileg og greinlegt að
þessi viðburður var eitthvað sem
vantaði í bæjarlífið, ef marka má
aðsóknina. þa
Sumardaginn fyrsta fagnaði Lúðra-
sveit Stykkishólms 70 ára afmæli
sínu með tónleikum í Stykkishólms-
kirkju. Fram komu „Litla Lúðró,“
sem er skipuð yngstu hljóðfæraleik-
urunum, Víkingasveitin, Trommu-
sveitin og svo „Stóra Lúðró,“ en
með henni léku einnig nokkrir eldri
félagar sem ekki spila með sveitinni
að staðaldri, þ.á.m. tveir sem komn-
ir eru á níræðisaldur. Stjórnandi var
Martin Markvoll og einnig tóku þátt
tveir fyrrverandi stjórnendur sveit-
arinnar, þeir Birkir Freyr Matthías-
son, sem lék einleik með Víkinga-
sveitinni, og Daði Þór Einarsson
sem var kynnir á tónleikunum og
gestastjórnandi.
Lúðrasveit Stykkishólms var
stofnuð sumardaginn fyrsta á lýð-
veldisárinu 1944 og hefur hún starf-
að óslitið síðan. Fyrsti stjórnandi
sveitarinnar var Víkingur Jóhanns-
son sem stjórnaði henni til 1977.
Þeir sem eiga lengstan starfsald-
ur sem stjórnendur eru, auk Vík-
ings, Daði Þór Einarsson og Mart-
in Markvoll. Þegar sveitin varð 20
ára stóð hún að því að stofnaður var
tónlistarskóli í Stykkishólmi. Það var
árið 1964 og varð Víkingur Jóhanns-
son fyrsti skólastjóri skólans sem
fékk nafnið Tónlistarskóli Stykkis-
hólms. Fram að því hafði Víkingur
fengið drengi og unga menn heim
til sín til að kenna þeim á hljóðfærin.
Síðan þá hafa lúðrasveitin og tónlist-
arskólinn átt samleið.
Lúðrasveitir leika fleira en marsa.
Nú er öflug slagverkssveit ómiss-
andi í hverri lúðrasveit, einnig raf-
magnsgítarar og bassar, hljómborð
og píanó. Tónlistin spannar því vítt
svið, allt frá göngumörsum, ættjarð-
arlögum og vögguvísum til kvik-
myndatónlistar, blús og þungarokks.
Lúðrasveitinni og Tónlistarskólan-
um hafa borist góðar gjafir á afmæl-
isárinu, bæði frá Stykkishólmsbæ,
félagasamtökum, fyrirtækjum og
velunnurum. Hólmarar fylltu kirkj-
una á tónleikunum enda á lúðra-
sveitin marga aðdáendur sem mega
vera stoltir af sveitinni og tónlistar-
skólanum.
Þau eru ekki mörg bæjarfélög-
in sem geta fagnað svona löngu,
samfelldu og öflugu tónlistarstarfi.
Það þarf tvennt til: Dugmikið fólk
sem vinnur af metnaði og hugsjón í
félagsstörfum og svo þarf samfélagið
og yfirvöld að sýna stuðning sinn í
verki. Tónlistarlífið í Stykkishólmi
hefur í áratugi notið hvors tveggja,
úrvalstónlistarfólks og velvilja bæj-
aryfirvalda. Eyþór Benediktsson
Hannes Gunnarsson ásamt Lárusi Ástmari syni sínum og bæjarstjóra í
Stykkishólmi og börnum hans, sem einnig komu fram á tónleikunum.
Sjötugsafmæli Lúðrasveitar Stykkishólms fagnað
Martin Markvoll stýrir einu tónlistaratriðinu á tónleikunum. Hópurinn sem kom fram á afmælistónleikunum.
Bjarni Lárentsínusson, sem var stofnfélagi í lúðrasveitinni, ásamt Sigurði syni
sínum og fjölskyldu hans, en öll léku þau með sveitinni á tónleikunum.
Magni, keppendurnir og starfsfólk á úrslitakvöldinu.
Sigurvegarinn gaf skólanum sínum verðlaunaféð
Alda Dís Arnardóttir sigurvegari.
Fluttu lög við
ljóð skáldsins
frá Kirkjubóli