Skessuhorn - 30.04.2014, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2014
Á tímum eins og þeim síðustu þeg-
ar verslun á landsbyggðinni hef-
ur staðið höllum fæti meðal ann-
ars vegna samkeppninnar við stór-
markaðina, er staðan nokkuð góð í
Snæfellsbæ. Þar hafa matvöruversl-
anir verið starfandi bæði í Ólafsvík
og í Rifi, verslanir með fjölbreytt
og gott vöruframboð. Verslunin
Virkið í Rifi, sem bæði er matvöru-
og byggingavöruverslun, var opn-
uð snemma árs 1988. Stofnendur
og eigendur verslunarinnar, hjón-
in Kristín Þórðardóttir og Sturla
Fjeldsted, eru nú komin á ákveðin
tímamót í lífinu og var útlit fyrir að
verslunin hætti um þessi mánaða-
mót. Verslunin hafði verið í sölu-
ferli í nokkurn tíma án þess að til-
boð kæmu. Það var svo ekki fyrr en
þau gáfu það endanlega út að þau
ætluðu að hætta núna í vor sem að-
ilar fóru að sýna versluninni áhuga.
Þegar blaðamaður Skessuhorns
var á ferðinni í Rifi í síðustu viku
voru verulega góðar líkur á því að
framhald yrði á rekstri Virkisins og
nýir eigendur myndu taka við. Um
leið og þau Kristín og Sturla vildu
þakka samfélaginu þann samhug
sem það hefur sýnt allt frá því þau
opnuðu verslunina fyrir 26 árum,
vildu þau hvetja fólk til að væntan-
legir nýir eigendur fengju að njóta
þess sama.
Byrjaði í bensín-
afgreiðslunni
Kristín ólst upp í Reykjavík en
flutti með móður sinni 15 ára göm-
ul í Ólafsvík. „Mér leiddist óskap-
lega fyrst eftir að við fluttum vest-
ur. Það tók mig þó ekki langan tíma
að festa rætur og enn er ég hér í
Snæfellsbæ,“ segir Kristín. Hún
er menntaður kennari og kenndi
í mörg ár í Ólafsvík. Kristín seg-
ir að það hafi verið fyrir hálfgerða
tilviljun sem hún fór út í verslun-
arrekstur. „Það byrjaði þannig að
Gísli Ketilsson sem rak Essóskál-
ann á Hellissandi bað mig að af-
greiða bensín hjá sér. Það varð svo
til þess að ég tók við rekstri skálans
um 1980 sem ég kallaði söluskál-
ann Tröð,“ segir hún. Spurð hvort
að verslunarstörfin hafi höfðað sér-
staklega til hennar segir Kristín.
„Það eru öll störf skemmtileg en
mismunandi skemmtileg.“ Það var
einmitt á þessum árum sem Krist-
ín rak söluskálann sem hún kynnt-
ist Sturlu Fjeldsted. Sturla er bygg-
ingameistari sem kom á Hellissand
til að byggja við útibú Kaupfélags
Borgfirðinga árið 1983. Það var þó
skammur tími liðinn frá því sú við-
bygging var tekin í notkun þangað
til kaupfélagið lokaði á Hellissandi.
„Það er frá þeim tíma sem þetta
trausta samband hjá okkur hefur
enst,“ segir Sturla og brosir.
Mikill samhugur
í samfélaginu
Eitthvað virðist Kristín hafa séð
aukna möguleika í verslun og þjón-
ustu á svæðinu þar sem þau Sturla
ákváðu að byggja þjónustuhús þar
sem auk verslunar yrði gistihús og
greiðasala. Sturla byrjaði á bygg-
ingu hússins árið 1987 og versl-
un var opnuð í húsinu 12. febrúar
1988. Það eru reyndar tvær versl-
anir sem starfræktar hafa ver-
ið í Virkinu, stór og glæsileg mat-
vöruverslun og einnig bygginga-
vöruverslun. Aðspurð segja þau
að verslanirnar hafi gengið ágæt-
lega. Sturla, sem einkanlega hefur
séð um rekstur byggingavöruversl-
unarinnar segir að hún hafi geng-
ið mjög vel fram að hruni. Eðli-
lega hefur verið þyngra undir fæti
eftir það. „Samfélagið hérna hefur
staðið mjög þétt með okkur, ekki
síst margir útgerðarmenn sem hafa
reynst okkur mjög vel. Það er aug-
ljóst að hérna sýnir fólk mikla sam-
félagslega ábyrgð. Það gerir sér
grein fyrir að samfélagið á lands-
byggðinni byggist á því að við tök-
um vel utanum hvort annað. Það er
ekkert sjálfgefið að hér sé öflug og
góð þjónusta, svo sem bakarí, apó-
tek, verslanir og ýmiss þjónustufyr-
irtæki,“ segir Sturla og Kristín tek-
ur undir það.
Verslun með hjarta
Þau Sturla og Kristín segja að vissu-
lega séu þetta mikil tímamót sem
þau eru komin á núna. „Skrokk-
urinn er farinn að láta á sjá og við
erum orðin þreytt, kominn tími til
að aðrir taki við. Við eigum fólki
hér, viðskiptavinunum okkar, margt
að þakka. Þeirra traust og vinátta í
okkar garð um tíðina hefur reynst
okkur ómetanleg. Það er svolítill
kvíði í mér að yfirgefa verslunina.
Ég mun sjá eftir henni, þetta er
verslun með hjarta. Það má segja
að hún sé félagsmiðstöðin hérna,“
segir Kristín og ítrekaði hvatningu
um að fólk myndi styðja vel við
bakið á væntanlegum rekstraraðil-
um Virkisins.
Átta herbergi
í gistiheimilinu
Það tók reyndar þau Kristínu og
Sturlu alllangan tíma að innrétta
rýmið í Virkinu fyrir gistiheim-
ilið. Það var gert í hruninu marg-
fræga og tekið í notkun fyrir fimm
árum. Auk ferðamanna og gesta
hafa herbergi verið leigð til áhafna
vertíðabáta og þeim séð fyrir mat í
landlegum. „Það hefur verið mik-
ið meira um ferðamenn frá hruni
og við sáum tækifæri í því,“ seg-
ir Kristín. Herbergin í gistiheim-
ilinu eru átta talsins, að meðtöldu
stóru fjölskylduherbergi þar sem
tvö herbergi eru sameinuð. Það er
dóttir þeirra Erla Lind Þórisdótt-
ir og maður hennar Sigursteinn
Þór Einarsson sem ætla að standa
fyrir rekstri gistiheimilisins. „Þau
hafa mikinn áhuga fyrir rekstrin-
um en hún er reyndar líka að afla
sér kennaramenntunar. Við erum
ánægð með að fyrirtækið þar sem
við höfum staðið vaktina í 26 ár og
lagt sálina í mun halda áfram þrátt
fyrir að við hættum, enda er eng-
inn ómissandi,“ sögðu þau Kristín
Þórðardóttir og Sturla Fjeldsted að
endingu.
þá
Vetrarstarfi Lionsklúbbs Stykk-
ishólms er senn að ljúka og hafa
klúbbfélagar unnið vel að ýmsum
verkefnum í vetur. Helstu fjárafl-
anir klúbbsins eru sala dagatals og
jólakorta, sala heillaóskaskeyta,
blómasölur auk ýmissa verkefna
sem Lionsmenn eru alltaf tilbúnir
að sinna. Allir fjármunir sem fé-
lagar afla í nafni klúbbsins meðal
almennings og fyrirtækja eru sett-
ir í verkefni sem klúbbfélagar velja
að styrkja. Flest verkefnin tengjast
yngstu eða elstu íbúunum og einnig
St. Franciskusspítalanum.
Í síðustu viku heimsóttu Lions-
menn nemendur og starfsfólk
Leikskólans í Stykkishólmi og af-
hentu þeim skjávarpa og fjórar
iPad spjaldtölvur til að nota í skóla-
starfinu. Daginn eftir var spítal-
inn heimsóttur og þar var Háls- og
bakdeildinni afhent æfingahjól sem
hentar vel þeim sem geta ekki not-
að hefðbundin æfingahjól. Einnig
var deildinni formlega afhent óm-
skoðunartæki en fjársöfnun vegna
þess var í umsjón Lionsklúbbs-
ins. Frumkvæði að söfnuninni átti
Jóhann Frímann Álfþórsson sem
var sjúklingur á deildinni. Hann
fékk Lionsklúbbinn í lið mér sér
og með aðstoð Velferðarráðuneyt-
is, Stykkishólmsbæjar, verkalýðs-
félaga, fyrirtækja og annarra sjóða
tókst að safna þeim 6,7 milljónum
sem tækið kostaði. Á sumardaginn
fyrsta bauð klúbburinn svo á fund
sinn fulltrúa Aftanskins, félags eldri
borgara í Stykkishólmi, fulltrúa frá
Lionsklúbbnum Hörpu og umsjón-
armönnum skátastarfs Royal Rang-
ers í Stykkishólmi. Þessir aðilar
tóku þar við styrkjum frá klúbbn-
um sem viðurkenningu fyrir gott
starf í þágu samfélagsins.
eb
Frá afhendingu styrkja og viðurkenninga á sumardaginn fyrsta.
Lionsklúbbur Stykkishólms veitti góða styrki
Frá afhendingunni í Leikskólanum í Stykkishólmi.
Eiga samfélaginu mikið að þakka
-Spjallað við kaupmennina í versluninni Virkinu í Rifi
Sturla Fjeldsted og Kristín Þórðardóttir hafa rekið verslunina Virkið í Rifi frá
stofnun eða í 26 ár. Þau eru nú að hætta kaupmennsku vegna aldurs.
Afgreiðslustúlkur í matvöruversluninni Virkinu: Helga Guðrún Sigurðardóttir, Erla
Lind Þórisdóttir og Hrefna Bjarnadóttir.
Verslunin Virkið í Rifi. Sturla í byggingavöruversluninni.