Skessuhorn - 25.06.2014, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2014
Verkstjóra
Dag ur í lífi...
Nafn: Sigurþór Kristjánsson
(Sissi).
Starfsheiti/fyrirtæki: Forstöðu-
maður félagsmiðstöðvarinnar
Óðals og verkstjóri vinnuskólans
í Borgarbyggð. Eigandi og takka-
kall í Stúdíó Gott hljóð.
Fjölskylduhagir/búseta: Ég er
trúlofaður Þórdísi Arnardóttur
og saman eigum við Sif Sigur-
þórsdóttur og við búum í Borg-
arnesi.
Áhugamál: Vinnan, hljóðverið
mitt og tónlist.
Vinnudagurinn 18. júní 2014:
Mætt til vinnu og fyrstu verk:
Ég fer á fætur um kl. 07:30 og
geri mig kláran. Fer þá í tölv-
una og undirbý daginn og skoða
hvað hann hefur uppá að bjóða,
því enginn dagur er eins. Í dag
er mæting í Hjálmaklett þar sem
gengið er frá eftir 17. júní há-
tíðarhöld. Um kl. 09:30 fer ég
með krakkana á leikskólanum
Uglukletti í Einkunnir þar sem
þau ætla eiga skemmtilegan dag
fram yfir hádegi. Þegar því verk-
efni er lokið um kl. 10 þá er far-
ið með hóp úr vinnuskólanum í
grunnskólann, þar sem standa
yfir framkvæmdir akkúrat núna.
Tímanum fram að hádegi er var-
ið í að fjarlægja steypubrot af lóð-
inni.
Hádegið? Hádegið fer að mestu
í símtöl og tölvupósta m.a. vegna
Brákarhátíðar sem fram fer
helgina 28. júní í Borgarnesi.
Strax eftir hádegi þá fer ég með
duglega unglinga að losa af kerr-
unni bæði rusl og garðaúrgang.
Klukkan 14: Þá er farið af stað
í Einkunnir að ná í krakkana
sem ég fór með uppeftir fyrr um
morguninn og fæ að heyra svaka-
legar sögur af hinu og þessu.
Kl. 15 er ég kominn í Óðal og
fer að undirbúa fimmtudaginn.
Næg eru verkefnin fyrir þessa
tíu til tólf unglinga í útihópn-
um og frekar erfitt að forgangs-
raða hvaða skal gera fyrst. Kl. 16
er farið í frágang og unglingarnir
fara heim. Ég og flokksstjórarnir
göngum frá eftir daginn og ger-
um hann upp, bæði á blaði og í
spjalli.
Ég er komin heim um kl. 17:30
og fer þá í undirbúning fyrir upp-
tökur á fiðlum fyrir þrjú ný lög
hljómsveitarinnar Grasasna en
Dan Cassity er kominn í stúdíó-
ið og tilbúinn í tökur. Þegar þeim
lýkur um kl. 20 er haldið af stað
á fund með hljómsveitinni Festi-
val þar sem hún stefnir að plötu-
útgáfu og tónleikaferð um land-
ið í haust.
Þegar öllu er lokið þennan dag er
klukkan orðin miðnætti og kodd-
inn kærkominn en ansi margt
sem fer í gegnum kollinn þegar á
hann er lagst.
Var dagurinn hefðbundinn?
Dagurinn var frekar venjulegur í
vinnuskólanum og lítur nokkurn
veginn svona út aðra daga en ég
er mikið á ferðinni um Borgar-
nes. Svo þegar líða tekur á sum-
arið skoða ég aðstæður í dreifbýli.
Við erum svo heppin hér í Borg-
arbyggð að vera með mjög gott
fólk í öllu sveitarfélaginu sem
sinnir störfum sínum mjög vel.
Hvað stendur upp úr eft-
ir vinnudaginn? Á þessum tíma
finnst mér standa hvað mest upp-
úr að fara með krakkana í Uglu-
kletti smá rúnt því þau eru al-
veg frábær og svo einlæg og
skemmtileg, flest hver mjög ræð-
in og fjörug. Og svo einnig há-
tíðarhöldin bæði á 17 júní og svo
Brákarhátíðin.
Við dagslok andar maður allt-
af léttar ef allt gengur upp, verk-
efnin ganga vel, allir sáttir og
engin meiðir sig, þá er takmark-
inu náð.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Ég byrjaði í þessu starfi
haustið 2004 en fór í 100% stöðu
2. janúar 2005, á afmælisdaginn
minn. Ég hef ekki í hyggju að
breyta um starf að svo stöddu.
Þetta er skemmtileg vinna og
maður veit aldrei hvað dagarn-
ir hafa uppá að bjóða sem gerir
þetta svolítið spennandi. Það er
gaman að mæta til vinnu og það
kallar ég forréttindi.
Frændaleikarnir 2014 voru haldnir
í Fagradal á Skarðsströnd á laugar-
daginn. Frændaleikarnir er krafta-
keppni sem haldin hefur verið síð-
an 2011 af afkomendum Stein-
ólfs Lárussonar bónda. Um tutt-
ugu keppendur auk fylgifiska þeirra
voru mættir til að heiðra minningu
Steinólfs og Hrefnu Ólafsdóttur
konu hans. Eins og sjá má á með-
fylgjandi myndum skemmti fólk
sér vel og kepptu ungir sem aldnir í
hinum ýmsum aflraunum.
jsb/ Ljósm. sss og fleiri.
Frændaleikar Fagradalsfólksins í Dölunum
Hér sést Viktor Ólafsson taka þátt í
bændagöngu.
Stefán Sölvi Pétursson bregður sér í hlutverk dráttarvélar er hann dregur
slóðadraga eftir túninu.
Úlfur Orri Pétursson sést hér beita öllu sínu afli í staurakasti.
Frænkurnar Valdís, Þórunn og Hildur sjást hér keppa í bændagöngunni þar sem
bera þurfti 40 kílóa mjólkurbrúsa.
Úlfur Orri sést hér hanga í slá en sú grein getur reynst
þungum kraftajötnum býsna erfið.
Stefán Sölvi virðist ekki eiga í teljandi vandræðum með að
lyfta þessum 129 kílóa steini.
Hér sést Albert sýna Ingimar frænda sínum tökin í steinalyftu.
Hér sjást Hugrún, Þórunn og Valdís velta heyrúllu í einni af
keppnisgreinum leikanna.
Stefán Skafti Steinólfsson hefur nægilegt afl til að velta
heilli heyrúllu.