Skessuhorn - 13.08.2014, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2014
Fimmtán ára vinna og reynsla farin, verði búinu lokað
Rætt við Jóhönnu B. Þorvaldsdóttur geitabónda á Háafelli
Það er mikið að gera á Geitfjár-
setrinu á Háafelli í Hvítársíðu þeg-
ar blaðamann bar að garði. Frá júní
og út ágúst er setrið opið frá klukk-
an 13 til 18. Brosandi og hlý tekur
bóndinn, Jóhanna Bergmann Þor-
valdsdóttir, á móti hverjum hópn-
um á fætur öðrum. Útskýrir verð
og vörur og hvað sé að sjá í hagan-
um. Ekki megi hlaupa eða hafa hátt
í kringum geiturnar þegar komið sé
út fyrir og farið í gönguferð með
ungu dömunum sem sýna gestum
geiturnar. Því miður eru ostarnir
allir löngu búnir og fólkið sem kom
til að kaupa snakkpylsurnar gekk
bónleitt til búðar. Þær hafa ekki
verið til síðan á páskum. Ásóknin er
mikil en ekki verið hægt að fram-
leiða meira. Kjötið er búið. Á þess-
um tíma eru milli 50 og 100 manns
sem koma daglega í heimsókn á
Geitfjársetrið og í litlu búðinni gef-
ur að líta ýmislegt sem minnir á
geitur. Nefna má handklæði með
geitamyndum, boli, kerti og geita-
myndir. Jafnframt gerir Jóhanna
snyrtivörur úr geitatólg og völdum
jurtum, þar á meðal arfa, sem hún
segir jafn misskilinn og geiturnar.
Á milli hópa gaf geitabóndinn sér
tíma til að setjast niður með blaða-
manni og ræða þá stöðu sem bær-
inn og Geitfjársetrið er í. Ef allt fer
á versta veg verður búinu lokað í
september.
Byrjaði allt 1999
Jóhanna geitabóndi á Háafelli var
árið 1999 beðin um að taka að sér
kollóttan, brúnan geitfjárstofn sem
var í útrýmingarhættu hér á landi.
Hún segir að hjá henni sé nú um
95% af þessum kollótta stofni og
brúni liturinn væri ekki til ef hún
hefði ekki tekið þær að sér. „Hér er
einnig 22% af geitastofninum hýst-
ur svo það er mikið í húfi,“ seg-
ir Jóhanna. „Við höfum verið að
rækta þetta upp og kynna afurðir
geita, sem lítið var vitað um. Ekki
var heldur mikil þekking til staðar á
geitasjúkdómum, sem eru alls ólíkir
þeim sem eru í sauðfé og sama gild-
ir um meðferð við þeim. Krufning
á skepnum hefur lítið hjálpað því
menn vita ekki nóg. Dýralæknar
vilja gjarnan hjálpa og sama gildir
um erfðanefndir en vegna skorts á
gögnum erum við í raun að læra af
reynslunni, daglega. Sífellt að prófa
okkur áfram. Hér hefur því verið
aflað gríðarlegrar þekkingar á þess-
um dýrum, þekkingar sem var týnd.
Fimmtán ára söfnun í reynslubank-
ann er ekki svo lítil.“
Hrunið og baslið
Hjónin á Háafelli, Jóhanna og Þor-
björn Oddsson eiginmaður henn-
ar, höfðu tekið lán, eins og margur,
og skulduðu töluvert þegar hrunið
varð. Það lán hefur ekki gert neitt
annað en að vaxa síðan. „Á árunum
fyrir hrun vorum við að byggja hér
upp. Bæta aðstöðuna og byggja hús
undir skepnur. Það gekk þokkalega
að borgar af láninu, þar til skell-
urinn kom. Reynt hefur verið að
halda í horfinu síðan, en ekki geng-
ið sem skyldi. Skuldirnar hafa vaxið
og vaxið og nú er svo komið að við
missum þetta í september ef ekki
tekst að gera eitthvað. Við höfum
þó mætt velvilja víða, en hann einn
og sér dugar bara ekki til.“
Vilja ekki bjarga
einum bónda
Sagt hefur verið að yfirvöld vilji
ekki bjarga einum bónda, það gefi
fordæmi. Ráðherra landbúnaðar-
mála hefur einnig sagt að hann vilji
setja geitbændur inn í sama kerfi
og sauðfjárbændur en ekkert hef-
ur heyrst síðan. Jóhanna segir það
gott og blessað. „En það yrði bara
of seint fyrir mig. Ég þarf úrræð-
in núna. Hins vegar vil ég auðvit-
að að menn sitji við sama borð í
þessu, sauðfjár- og geitabændur.
Stór hluti af þessum skuldum hjá
mér eru vegna ónógs stuðnings af
því að geitabændur eru ekki inni í
landbúnaðarkerfinu. Ég sit einfald-
lega ekki við sama borð. Tekjur er
auk þess stopular og treysta verð-
ur á það sem maður býr til sjálfur
úr afurðum eða slíku. Fólk þekkti
lítið geitaafurðir þegar ég byrjaði,
hvorki kjöt eða mjólk. Mikið frum-
kvöðlastarf hefur því verið unnið
sem lengi vel skilaði litlu. Dropinn
holar steininn svo sem betur fer er
að verða breyting á.“
Vöruþróun og prófanir
Eins og fram hefur komið var fólk
hérlendis ekki vel kunnugt vörum
unnum úr geitafurðum. Jóhanna
hefur verið ólöt að segja fólki frá
gæðunum. Geitamjólk hefur hjálp-
að mörgum, kjötið er sagt góð bót
við psoriasis og tólgin er mýkjandi
og græðandi. Bæði vegna áhuga en
kannski einnig neyðar hefur Jó-
hanna prófað sig áfram við að nýta
afurðirnar sem best. Úr tólginni
hefur hún unnið sápur sem hún
bætir jurtum í, krem sem ganga vel
inn í húðina og nuddolíu sem lin-
ar auma vöðva og tekur verki. Ost-
ar hafa verið unnir úr mjólkinni
og snakkpylsur úr kjötinu svo eitt-
hvað sé nefnt Síðasttöldu vörunar
hafa verið svo vinsælar að ekki hef-
ur verið til nægt hráefni til að fram-
leiða þær stöðugt.
Fyrirtæki sem þarf að
bera sig
Jóhanna er þess fullviss að skuld-
laust myndi fyrirtækið eða búið
bera atvinnu fyrir tvær fjölskyld-
ur. Staðan er þannig í dag að dóttir
hennar og tengdasonur hafa áhuga
á að koma inn í fyrirtækið og fram-
tíðarplönin eru að finna leiðir til að
kljúfa þetta fjárhagslega, m.a. með
því að selja land úr jörðinni. En
fyrst þarf að klára það sem hangir
yfir núna. Jóhanna nefnir að skil-
virka fjárhags- og rekstraráætl-
un vanti. Það sé í undirbúningi að
klára slíkt ásamt skýrri framtíðar-
sýn. Ostarnir gefa innkomu og til
að framleiða þá þarf betri aðstöðu.
Draumur er að byggja hana síð-
ar, en núverandi aðstaða dugar til
að byrja með. Skemmtilegast er að
gera vörurnar sjálfur, enda vaxandi
áhugi fyrir vörum beint frá býli.
Ýmsir hafa lagt hönd á plóg núna
svo ekki þurfi að koma til uppboðs
á jörðinni í september. Atvinnuráð-
gjöf Vesturlands hefur lagt verk-
efninu lið og kom sú aðstoð í gegn-
um sveitarfélagið. Margt er því í
gangi.
Game of Thrones og
fleiri góðir
Tökur á þáttum úr sjónvarpsserí-
unni Game of Thrones voru unnar
hér á landi í fyrra. Þar fengu geit-
ur frá Háafelli hlutverk. „Þær eru
núna heimsfrægar,“ segir Jóhanna
brosandi. En það eru fleiri sem
hafa áhuga á geitum. „Á síðunni In-
diegogo.com er hafin söfnun fyrir
geitahjörð í útrýmingarhættu. Þetta
eru frjáls framlög og stefnt að því
að safna 90 þúsund dollurum. Þeg-
ar hafa safnast tæp 13 þúsund, eða
um 1,5 milljón íslenskra króna.“
Slow food samtökin hafa einnig
um langa hríð stutt baráttuna fyr-
ir geitunum á Háafelli. Þau koma
hins vegar ekki inn með fjárstuðn-
ing til Íslands, þar sem landið telst
of efnað. Matreiðslubókin North,
the new nordic cusine of Iceland,
sem er um íslenskar matarhefðir,
hefur einnig tileinkað geitunum á
Háafelli einn kafla með spennandi
uppskriftum. Matreiðslumeistarinn
er Gunnar Karl Gíslason og útgef-
andi er Jody Eddy, en bókin kemur
út í september. Jody Eddy var einn-
ig með þátt um Jóhönnu og geit-
urnar hennar í matreiðsluþáttaröð
sem hún gerði á Íslandi á síðasta ári
og fannst mikið til koma.
Ræktunarbú með
afurðaframleiðslu
„Margar hendur vinna létt verk
og það eru margir að leggja hönd
á plóg til að hjálpa okkur að kom-
ast yfir þetta,“ segir Jóhanna. „Það
grátlega er að eftir öll árin erum við
í raun enn tekjulaus. Okkur lang-
ar að vera með ræktunarbú með
afurðaframleiðslu, bæta mjaltaað-
stöðuna, bæta við kæli og frysti,
sem sagt að byggja betri aðstöðu.
Það eru í dag um 200 manns sem
hafa geitur í fóstri og allur sá pen-
ingur sem kemur inn þar fer í að-
búnað fyrir geiturnar. Maður þarf
ekki að sýna neinn rekstrarreikning
fyrir slíkt og sama gildir um söfn-
unina hjá Indiegogo, þar þarf ekki
fjárhagsáætlun.“ Aðspurð hvort
svona framlög væru skattlögð seg-
ir Jóhanna svo ekki vera. „Þetta er
bara eins og þegar fólk styrkir t.d.
SOS barnahjálp eða eitthvað annað
svipað. Eins og staðan er núna önn-
um við ekki eftirspurn eftir kjöti og
ostum. Það væri gaman að geta
bætt þar við og í raun nauðsyn-
legt, því þar liggja tekjurnar. Eins
og ég sagði fyrr þá tel ég að þetta
fyrirtæki gæti vel framfleytt tveim-
ur fjölskyldum, væri það skuldlaust.
Það er ekki hægt núna, sérstaklega
af því að líka þarf að byggja upp.
Það sem mér finnst grátlegast í öllu
þessu, að ef allt fer á versta veg, þá
myndi 15 ára vinna og uppbygg-
ing fara í súginn. Þetta er vanmat á
þekkingu og reynslu sem hér hefur
verið safnað. Þekkingu sem ekki var
til annarsstaðar. Það er staðreynd,“
segir Jóhanna Bergmann Þorvalds-
dóttir geitabóndi á Háafelli. bgk
Jóhanna á Háafelli. Í litlu búðinni á Geitfjársetrinu kennir ýmissa grasa af vörum tengdum geitum.
Það er ekki einungis barist um völd og áhrif í mannheimum. Þessir tveir þurftu
aðeins að reyna með sér, en allt í góðu.
Casanova er mikill ljúflingur, sjónvarpsstjarna úr þáttaröðinni Game of Thrones
sem heillaði alla við tökur þáttanna.
Jóhönnu B. Þorvaldsdóttur líður best með kið í fanginu. Brúnar og kollóttar geitur
voru í útrýmingarhættu og hér er einn fallega brúnn.