Skessuhorn - 24.09.2014, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 39. tbl. 17. árg. 24. september 2014 - kr. 600 í lausasölu
HAGKVÆM
BÍLAFJÁRMÖGNUN
Föstudagur 26. sept
Barinn opinn til kl. 03:00
Laugardagur 27. sept
Lifandi tónlist
Erlingur og Gunnar Sturla
skemmta frá kl. 23:00-03:00
Tveir fyrir einn af krana
frá kl. 22-24 bæði kvöldin
Boltinn í beinni
Dúndur boltatilboð í gangi
Úrvals kaffi, kökur,
hamborgarar, salöt,
samlokur o.fl.
Stillholti 16-18 • Akranesi
Sími 431 1401
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Ert þú
áskrifandi?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Drengur brenndist
Eldur kom upp í Brekkubæjarskóla á Akranesi um
klukkan eitt í hádeginu sl. mánudag. Slökkvilið
Akraness og Hvalfjarðarsveitar kom skjótt á vett-
vang en starfsfólk skólans hafði þá náð að ráða nið-
urlögum eldsins sem var á þriðju hæð í kennslu-
rými í eldri hluta skólahússins. Eldurinn var lítill
að sögn Björns Þórhallssonar varaslökkvi liðsstjóra
á Akranesi. Að sögn lögreglu voru tildrög þau að
drengur var að fikta með neyðarblys. Brenndist
hann við það og var fluttur undir læknishendur á
sjúkrahús í Reykjavík. Þær upplýsingar fengust í
gær að drengurinn hafi hlotið brunasár, en væri á
batavegi og liði vel eftir atvikum. Björn varaslökk-
viliðsstjóri sagði starfsfólks skólans hafa brugðist
hárrétt við. Rýming hafi farið fram um það leyti
sem slökkviliðsmenn voru að mæta á staðinn og
búið að telja börnin út úr skólanum. Fljótlega var
farið að reykræsta húsnæðið og er tjón talið óveru-
legt. Foreldrar barna á yngsta stigi voru beðnir
að ná í börn sín í skólann en mörgum þeirra var
töluvert brugðið. Þá var áfallateymi ræst út til að
ræða við börnin. Hægt var að ljúka kennslu í eldri
deildum skólans þennan dag en kennsla hófst svo
á öllum skólastigum í gær, þriðjudag. þá
Leggja 3500 gildrur fyrir
beitukóng í Breiðafjörð
Áhöfn Blíðu SH-277 var í síðustu viku að hefja
veiðar á beitukóngi í Breiðafirði. Skipið er í eigu
Royal Iceland í Njarðvík en gerir út frá Stykk-
ishólmi. Beitukóngur er kuðungur og er veidd-
ur frá júní til janúar en veiðar á beitukóngi hafa
verið stundaðar af kappi í Breiðafirði um ára-
bil. Þriggja manna áhöfn er á Blíðu. Veiðarn-
ar byrja að þessu sinni seinna en vani er, en að
sögn Brynjólfs Harðarsonar stýrimanns eru
menn bjartsýnir á góða veiði. „Það er búið að
vera ágætis kropp síðustu ár. Sjórinn í Breiðafirði
hefur engu að síður verið kaldur undanfarin ár
en þá leggst kuðungurinn í dvala og skríður ekki
eins mikið í gildrurnar. Í sumar hefur hitastigið
í sjónum hins vegar verið um elleftu gráður sem
eru kjöraðstæður til veiða því þá ætti kuðung-
urinn að vera á hreyfingu. Við leggjum alls um
3500 gildrur í fjörðinn og vitjum um 700 gildr-
ur á hverjum degi. Við veiðum um allan fjörðinn
og eru gildrurnar oft lagðar inn á milli skerja svo
það þarf að fara varlega á þessum veiðum,“ seg-
ir Brynjólfur.
Hann segir góðan markað fyrir beitukóng
og eru það helst Kínverjar sem kaupa hann og
verðið sé gott. „Við vonumst til að ná allavega
30 tonnum af beitukóngi þetta tímabilið en allt
umfram það væri frábært,“ segir hann. Beitu-
kóngur er utan kvótakerfisins og vonast Brynj-
ólfur til að fleiri í Stykkishólmi fari að stunda
þessar veiðar. „Við notum tindabikkju í beitu en
hún er ódýr um þessar mundir. Beitukóngur er
utan kvótakerfisins og væri ég til í að sjá fleiri
heimamenn nýta sér þessa auðlind, hefja veið-
ar og færa á ný meira líf í höfnina,“ segir Brynj-
ólfur Harðarson.
jsb/ Ljósm. Sumarliði
Göngur og réttir hafa undanfarnar vikur staðið yfir í
sveitum landsins. Hér er kíkt inn í Þverárrétt í Eyja- og
Miklaholtshreppi. Þar líkt og víða annarsstaðar
hefur votviðri einkennt veðráttuna að undanförnu.
Sjá réttamyndir héðan og þaðan á bls. 18-19.
Ljósm. iss.
Lúsina burt!