Fréttatíminn - 04.07.2014, Blaðsíða 8
Um 110.600 erlendir ferðamenn
fóru frá landinu í júní síðast-
liðnum samkvæmt talningum
Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar eða um 20.700 fleiri
en í júní í fyrra. Aukningin nemur
23,1% milli ára. Vart þarf að taka
fram að aldrei hafa jafn margir
ferðamenn verið hér í júní og nú,
segir á síðu Ferðamálastofu.
„Bandaríkjamenn voru líkt og
í maí fjölmennastir eða 19,2% af
heildarfjölda ferðamanna í júní
en næstfjölmennastir voru Þjóð-
verjar eða 15,6% af heild. Þar á
eftir komu Bretar (8,6%), Frakkar
(6,4%) og Norðmenn (5,7%).
Samtals voru 10 fjölmennustu
þjóðernin með 74% af heildarfjölda
ferðamanna. Af einstaka þjóðern-
um fjölgaði Bandaríkjamönnum,
Bretum, Kandamönnum, Þjóð-
verjum og Kínverjum mest á milli
ára. Þessar fimm þjóðir báru að
stórum hluta uppi aukninguna
í júní milli ára eða um 54% af
heildaraukningu.“
Ferðamenn voru ríflega þrisvar
sinnum fleiri í maí í ár en þeir
mældust í sama mánuði árið 2002.
Það sem af er ári hafa 401.772
erlendir ferðamenn farið frá
landinu eða um 90 þúsund fleiri
en á sama tímabili í fyrra. Um
er að ræða 29% aukningu ferða-
manna milli ára frá áramótum
í samanburði við sama tímabil í
fyrra.
Um 41 þúsund Íslendingar
fóru utan í júní síðastliðnum, um
4.900 fleiri en í júní árið 2013.
Frá áramótum hafa 184.820 Ís-
lendingar farið utan eða 8,5%
fleiri en á sama tímabili árið
2013 en þá fóru 170.267 utan. -jh
Fjöldi Kínverja árið 2013 var áætlaður
1.390.510.630
Kínverjar eru
19,3% jarðarbúa.
Kínverjum Fjölgaði
um 2,7% árið 2013.
ársFjölgun nam 36.510.630 manns.
Kínverjar eru 145 á hvern FerKílómetra lands í Kína.
Kínverjar eru um
130.000.000
Fleiri en indverjar.
Ferðir enn einn metmánuðurinn í Ferðaþjónustu
Um 110 þúsund erlendir ferðamenn í júní
nýliðinn júní var metmánuður í ferðaþjónustunni.
Viðskipti FríVerslunarsamningur íslands og kína
Sóknarfæri íslenskra
fyrirtækja í Kína
núverandi og fyrrverandi utanríkisráðherrar sammála um gildi fríverslunarsamnings við Kína. ís-
land fyrst ríkja í evrópu sem gerir slíkan samning við Kínverja sem eru nær 20 prósent jarðarbúa.
F ríverslunarsamning-ur Íslands og Kína tók gildi síðastliðinn
þriðjudag, 1. júlí, en Ísland
var fyrst ríkja Evrópu til að
undirrita fríverslunarsamn-
ing við Kína. „Felur samn-
ingurinn í sér sóknarfæri
fyrir Íslendinga og íslensk
fyrirtæki og samstarfs-
möguleika við þá þjóð sem
er í hvað örustum vexti.
Millistétt Kínverja er talin
vera stærri en sem nemur
heildarfjölda Bandaríkja-
manna og nærri því að taka
fram úr þeim sem stærsta
hagkerfi heims,“ sagði
Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra í grein í
Fréttablaðinu sama dag.
„Samningurinn um
fríverslun við Kína er
mikilvægasti samningur-
inn sem Ísland hefur gert
sl. 20 ár. Við þurfum að
nota forskotið sem hann
veitir – og nota það hratt,“
sagði Össur Skarphéðins-
son, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, í grein í sama
blaði og bætti við: „Næsta
skref gagnvart Kína ætti að
verða beint flug þaðan til
Íslands og gera Ísland að
miðstöð kínverskra túrista
og kaupsýslumanna sem
vilja ferðast til Evrópu og
Ameríku. Það yrði gríðar-
leg lyftistöng fyrir íslensk
flugfélög – og íslenska
ferðaþjónustu.“
Gunnar Bragi Sveins-
gunnar bragi sveinsson utanríkisáðherra ásamt Wang Yi, utanríkisráðherra Kína.
son utanríkisráðherra fundaði
síðastliðinn föstudag með
Wang Yi, utanríkisráðherra
Kína. „Ráðherrarnir ræddu
samskipti ríkjanna almennt og
sérstaklega um þann merka
áfanga sem gildistaka fríversl-
unarsamnings ríkjanna væri.
Ráðherrarnir sammæltust um,“
að því er fram kemur á síðu
utanríkisráðuneytisins, „að
auka samráð og samstarf í mál-
efnum norðurslóða, nýtingu
auðlinda í sátt og samlyndi
við náttúruna og þau tækifæri
sem mögulega væru að opnast
vegna nýrra siglingaleiða. Sagði
kínverski utanríkisráðherrann
samband Íslands og Kína ein-
stakt. Viðskipti ríkjanna hefðu
aukist þrátt fyrir efnahagslega
lægð síðustu ára. Þá sagði hann
fríverslunarsamninginn frekari
möguleika og tækifæri fyrir
vöxt.“
Gunnar Bragi ræddi einnig
við Gao Hucheng, viðskipta-
ráðherra Kína, og ávarpaði
viðskiptaþing íslenskra og kín-
verskra fyrirtækja, sem Íslands-
stofa, í samvinnu við CAWA,
samtök kínverskra heildsölu-
markaða fyrir matvæli, stóð
fyrir. Sagði Gunnar Bragi mikil-
vægt að skoða hvernig auka
mætti útflutning til Kína á ís-
lenskum afurðum og yrði heim-
sókn viðskiptasendinefndar og
þingið með kínverskum fyrir-
tækjum vonandi til þess.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
utanríkisráðherra fundaði einnig með gao gucheng,
viðskiptaráðherra Kína. Ljósmyndir/Utanríkisráðuneytið
Kína
Sumar 17 17. - 24. ágúst
Ljósadýrð í Búdapest
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Ljósadýrð á Dóná í Búdapest, einni fallegustu borg Evrópu er
stórkostleg upplifun. Hápunktur ferðarinnar er krýningarhátíð
heilags Stefáns, dýrðin endar í Passau, sem talin er standa á
einu hinna sjö fegurstu borgarstæða í heimi.
Verð: 186.200 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Pavel Manásek
fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420
HEIMILISTÆKJADAGAR
Í
20% AFSLÁTTUR
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Vönduð vinna
Stofnað 1952
Mikið úrval af
fylgihlutum
Steinsmiðjan Mosaik
Legsteinar
8 fréttir helgin 4.-6. júlí 2014