Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 04.07.2014, Blaðsíða 30
É g var í námi í Kaupmanna-höfn í fjögur ár og bjó þar samtals í níu ár svo ég þekki það vel að búa í Danmörku. Mér var boðin þessi staða og langaði að prófa, ég lærði kvikmyndagerð við þennan skóla svo þeir áttu ekki í erfiðleikum með að ná í mig,“ segir Dagur Kári Pétursson. Það hljóta að vera viðbrigði að fara úr starfi kvikmyndagerðar- mannsins, sem getur verið mjög óreglulegt hvað tíma varðar og slíkt, yfir í það að sinna skrifstofu- starfi í háskóla. Hvernig lagðist það í þig að verða yfirkennari í Den danske Filmskole? „Það voru mikil viðbrigði. Í raun- inni í fyrsta sinn síðan ég var í ung- lingavinnunni að ég er með fastar tekjur og þarf að skila skattkorti. Á einu ári sem kennari hef ég lært meira en ég gerði á fjórum árum sem nemandi, svo þetta er mjög lærdómsríkt. Það er góð tilfinn- ing að fara aftur á byrjunarreit og komast að því hvar maður byrjaði og af hverju.“ Dagur flutti út með unnustu sinni og tveimur börnum þeirra, en Dagur á níu ára stúlku af fyrra sam- bandi og á stefnuskránni er að hún flytji út til Danmerkur í haust. Endurræsti heilastöðvarnar Dagur hefur ekki gert kvikmynd í fimm ár síðan hann gerði A Good Heart. Hann gerði þá mynd til þess að hasla sér völl á Ameríkumarkaði og gríðarleg vinna og tími sem fóru í þá framleiðslu. „Það tók svolítið á að gera þá mynd. Áður en ég gerði hana var ég fjögur ár í biðstöðu. Ég hélt alltaf að ég væri að fara af stað, en síðan komu alltaf smá frestanir sem enduðu í fjórum árum. Það tekur allt miklu lengri tíma þegar maður er að feta sig í þessu Hollywood- systemi. Hefði ég vitað í byrjun að þetta hefði tekið svona langan tíma, þá hefði ég gert eitthvað annað í millitíðinni. Svo þetta var erfiður tími. Myndin var líka erfið í vinnslu Í fyrsta sinn síðan í unglingavinnunni sem ég skila skattkorti Dagur Kári Pétursson kvikmyndaleikstjóri hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu undanfarin ár. Hann gerði síðast myndina A Good Heart árið 2009 og fyrir ári söðlaði hann um og flutti til Kaupmannahafnar. Þar gerðist hann yfirkennari leikstjóradeildar Den danske Filmskole. Dagur er þó að vinna að nýrri mynd og er hún á eftirvinnslustigi. Dagur Kári missti áhugann á kvikmyndagerð, en fékk hann þó aftur. og ég upplifði ákveðið „burn-out“ í kjölfarið og ætlaði að snúa mér bara að einhverju öðru. Ég ákvað að fara í Listaháskólann og skráði mig í tónsmíðadeildina og var þar í tvo mánuði.“ Náðirðu að toppa á þessum tveim mánuðum eða kom eitthvað upp á? „Það sem var matreitt þarna á þessum tveimur mánuðum var ein- hvernveginn allt það sem maður á ekki að vita um tónlist, að mér fannst. En það var mjög hollt. Heila- stöðvar sem voru búnar að vera í dvala síðan í menntaskóla fóru aftur í gang og vöknuðu til lífsins. Tónlist- arnámið þarna vakti aftur þá löngun mína til þess að gera kvikmyndir og ég skrifaði handritið að myndinni sem ég er að gera núna.“ Langaði að vinna með Gussa Myndin sem Dagur er með í smíðum núna heitir Fúsi. Myndin er á íslensku, skotin á Íslandi, nánar tiltekið í Reykjavík og á Keflavíkur- flugvelli. „Ég var staddur á flugvellinum í Keflavík að bíða eftir flugi og var að horfa á þessa litlu dótabíla sem not- aðir eru til þess að ferma og afferma flugvélar og ég varð fyrir hugljóm- un. Ég fékk heila bíómynd í hugann á einu bretti, sem hefur aldrei komið fyrir mig áður. Þessi dótaheimur blandaðist saman við áhuga minn á að vinna með Gussa.“ Þar á Dagur við Gunnar Jónsson sem kallaður er Gussi og margir þekkja fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Fóst- bræður. „Það var svona ást við fyrstu sýn hjá mér og ég áttaði mig strax á því að þarna væri náttúrutalent á ferð- inni og mig langaði mjög mikið að vinna með honum. Skrifa fyrir hann hlutverk sem væri ekki grín, heldur dramatískt aðalhlutverk.“ Svo þessi mynd er dramatísk mynd? „Já með kómedíu ívafi, ég var beðinn um að flokka þetta og þá koma upp hugtök eins og dramedy, en fyrir mér er þetta meira Coma,“ segir Dagur kíminn. Þetta er mikil karakter stúdía. Gussi leikur rúmlega fertugan mann sem hefur alltaf búið hjá móður sinni. Vinnur á Keflavíkurflugvelli og hefur aldrei stigið almennilega úr bernskunni. Herbergið hans er ennþá eins og það var þegar hann var 12 ára og hans áhugamál eru mikið þar sem bernskan og fullorðinsárin skarast. Leikur sér með hernaðar- spil og fjarstýrða bíla. Honum líður mjög vel í þessari sápukúlu sem hann hefur skapað sér en svo kemur sá tími þar sem hann þarf að taka ákveðið þroskaskref og sagan snýst um það og þær kringumstæður. Gunnar hefur væntanlega verið til í að takast á við þetta hlutverk? „Já hann fékk handritið örugg- lega svona ári áður en við fórum í tökur og hann spurði ekki einnar spurningar um innihaldið. Svo fórum við bara í tökur og hann var alltaf bara bestur í fyrstu töku og við þurftum aldrei að ræða það sem mætti betur fara. Hann hafði enga þörf fyrir staðfestingu, sem er óvenjulegt við leikara. Við höfðum kannski þekkst í tvö ár og saman- lagt talað saman í 10-12 mínútur og mér fannst það mjög frelsandi. Ég upplifði það líka sem mikið traust og virðingu sem var algerlega gagn- kvæmt. Mjög ánægjulegt samstarf, sem ég vona að honum hafi fundist líka.“ Vill breyta kennslumynstrinu Dagur Kári hefur alltaf unnið tónlistina við myndir sínar sjálfur. Í samstarfi við félaga sinn til margra ára, Orra Jónsson. En í sameiningu hafa þeir nefnt sig Slowblow. „Við erum að vinna að músík- inni núna og ætlum að klára það í sumar. Mig hefur alltaf langað til þess að gera meira af músík og það var ætlunin þegar ég fór í þetta tón- smíðanám að helga mig tónsmíðum. En það er erfitt að búa sér til rými fyrir það en okkur hefur einhvern- veginn tekist að halda úti einhvers- konar kvikmyndatónlistardeild innan hljómsveitarinnar. Við gáfum út plötu síðast árið 2004, en síðan höfum við eingöngu gert músík við kvikmyndir. Gerðum tónlist við Brim Baltasars fyrir utan allar mínar myndir.“ Ætlar Dagur Kári að ílengjast í Danmörku? „Ég geri bara árssamning í senn. Núna er ég nýbúinn með fyrsta árið og var að framlengja um annað ár. Ég gæti verið þarna eins lengi og ég vil, en ég vil halda þessu opnu eftir hvert ár. Mig langar svolítið að breyta því mynstri sem hefur verið í þessum skóla. Það hafa verið ráðnir inn kennarar og yfirleitt stoppað stutt og þá er byrjað upp á nýtt. Nýj- ar námsskrár og kennsluaðferðir. Mig langar að breyta þessu. Búa til plan fyrir skólann sem er það heild- stætt að þó að einhver kennari hætti, þá sé hægt að ráða inn nýjan án þess að finna upp hjólið aftur og aftur. Svo það sé líka einfalt fyrir kennara sem hefur verið þarna áður að koma aftur inn, þó svo að hann fari í frí í einhvern tíma.“ Fyrsta íslenska myndin í áratug „Það er ekki alveg komið á hreint hvenær myndin verður frumsýnd. Hún verður fullkláruð í haust, en frumsýningardagur veltur svolítið á kvikmyndahátíðum. Okkur langar að finna henni góða hátíð sem við getum notað sem nokkurskonar skotpall. Það er svona í mótun. Þetta er í fyrsta sinn sem ég geri mynd á íslensku síðan ég gerði Nóa albínóa en það eru komin tíu ár síðan ég gerði hana. Það er ánægju- legt að gera mynd á íslensku og sér- staklega með Íslendingum. Gott að vinna með íslenskum leikurum og íslensku fagfólki. Fær aldrei heimþrá „Það er gott að vera í Danmörku, þó svo að það sé eitt ákveðið vandamál við Danmörku, sem eru Danirnir. En ég þekki það vel og það vantar þá stöð í heilann á mér að upplifa heimþrá. Ég bjó í Köben í níu ár og saknaði aldrei Íslands. Þegar ég var svo á Íslandi saknaði ég aldrei Dan- merkur, svo mér finnst alltaf bara gott að vera þar sem ég er.“ Dagur kári pÉtursson Kvikmyndir Old Spice – stuttmynd 1999 Lost Weekend – stuttmynd 2000 Villiljós – 2001 Nói Albínói – 2003 Voksne Mennesker – 2005 The Good Heart – 2009 Fúsi – 2014/15 Plötur Slowblow Quicksilver Tuna – 1994 Fousque – 1996 Nói Albínói – 2004 Slowblow – 2004 Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Lj ós m yn d/ H ar i GOLD PLATED SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164 THE FSR EPIC - THE ONLY FULL-SUSPENSION XC BIKE TO WIN OLYMPIC GOLD AND MULTIPLE WORLD CHAMPIONSHIP GOLD MEDALS GOLD STANDARD REDEFINED. SPECIALIZED.COM 30 viðtal Helgin 4.-6. júlí 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.