Fréttatíminn - 04.07.2014, Qupperneq 14
Lífrænt
Hvar, hvernig og hversu dýrt?
Akursel
sólheimAr
hæðArendi
engi
nlFÍ
BjArkArás
móðir jörð
skAFtholt
BúlAnd
BergsstAðir
hnjúkAr
krossAr
mæliFellsá
Brekkulækur
Ytri-FAgridAlur
miðhrAun
VArmAlækur
neðri-háls
hVestuVeitA
dýrFiskur
lífræn
vottun
Vottunarmerki túns er
notað við merkingar líf-
rænna afurða og merkið
er trygging neytandans
fyrir því að varan sé
framleidd samkvæmt
alþjóðlegum stöðlum.
Vottunarstofan tún sem
sér um allt gæðaeftirlit.
Vistvæn
vottun
Þeir sem stunda vistvæna
ræktun mega, ólíkt líf-
rænum ræktendum, nota
tilbúinn áburð, fyrirbyggj-
andi lyf og varnarefni, en
innan tiltekinna marka.
gæðaeftirlit og vottun er í
umsjá búnaðarsambanda.
Verðdæmi:
mjólk
Lífrænt frá BioBú: 250 kr./ l.
Til samanburðar:
MS Nýmjólk: 159 kr./ l.
hrein jógúrt
Lífræn frá BioBú: 95 kr.
Til samanburðar:
MS: 91 kr.
egg, 6 stk.
Lífræn frá Sólheimum: 350 kr.
Til samanburðar:
Vistvæn brúnegg: 598 kr.
Landnámshænuegg: 648 kr.
Stjörnuegg: 329 kr.
Agúrkur
Lífrænar frá Akri: 998 kr./ kg.
Til samanburðar:
Garðyrkjumiðstöðin Gufuhlíð:
420 kr./ kg.
kirsu berja-
tómatar
Lífrænir frá Sólheimum:
1.778 kr./ kg.
Til samanburðar:
Brún Flúðum: 1.192 kr./kg.
lambalæri
Lífrænt frá Brekkulæk:
2.622 kr./kg.
Til samanburðar:
Ókryddað lambalæri úr kjöt-
borði Krónunnar, 1.flokkur:
1.498 kr./kg.
nautahakk
Lífrænt frá Skaftfelli:
2547 kr./kg.
Til samanburðar:
100% ungnautahakk úr kjöt-
borði Krónunnar: 1.698 kr./kg.
SVína-og
kjúklingakjöt
á Íslandi er engin fram-
leiðsla, hvorki á lífrænu
svínakjöti né kjúklingi.
Hvað er lífrænt bú?
lífrænn búskapur felur í sér að afurðir eru framleiddar í sátt við dýr og umhverfi. Við jarðrækt
eru engin erfðabreytt efni, enginn tilbúinn áburður né eiturefni notuð við framleiðsluna.
Einungis lífræn efni eru notuð til varnar sjúkdómum og skordýrum. Það sama á við þegar kemur
að beitilöndum og fóðrun dýra sem alin eru til kjötframleiðslu en þau verða að vera getin,
fædd og alin upp við lífræn skilyrði. Allur húsakostur verður að lúta ákveðnum gæðaeftirliti og
dýrin verða að fá að njóta útivistar hvern dag, ef veður leyfir. Lögð er áhersla á að fyrirbyggja
sjúkdóma og efla mótstöðuafl dýranna með góðri umönnun og réttri fóðrun í stað þess að
treysta á lyf og venjubundnar lækningar. Vottunarstofa getur leyft bólusetningar og notkun
annara lyfja í samráði við dýralækni, aðeins ef náttúrulega aðferðir koma ekki að gagni.
mjólk og
nautakjöt
bio-bú sér um alla
framleiðslu á lífrænum
mjólkurafurðum. mjólkin
kemur frá neðri-Hálsi,
skaftholti og búlandi.
Þau býli sem afla líf-
rænnar mjólkur selja
líka lífrænt nautakjöt
en magnið er það
takmarkað og eftir-
spurnin það mikil að það
kemst næstum aldrei í
hillur verslana.
lambakjöt
Tíu býli á landinu fram-
leiða lífrænt lambakjöt.
til að fá lífræna vottun
má til að mynda enginn
tilbúinn áburður vera
notaður á túnin og ánum
aldrei hafa verið gefið
kemískt fóður. Þar að
auki þarf slátrunin að
fara fram í sláturhúsi
saH afurða ehf. á
Blönduósi sem er eina
sláturhús landsins sem
hefur vottun til móttöku
á lífrænu sauðfé.
egg
sólheimar í grímsnesi
er eina búið sem fram-
leiðir lífræn egg. Þar
að auki eru nokkur býli
með landnámshænuegg
sem eru undan hænum
sem fara daglega út.
meirihluti eggja á Íslandi
kemur úr verksmiðjubú-
skap. hluti þeirra eru
vistvæn og komu undan
„frjálsum“ hænum en sú
aðferðafræði tilheyrir
verksmiðjubúskap þar
sem hænunum er aldrei
hleypt út.
grænmeti, korn
og kryddjurtir
ræktendur lífræns
grænmetis, korns
og kryddjurta eru níu
talsins en að auki eru
ellefu býli skráð sem
safna viltum jurtum og
sjávargróðri.
Neytendur verða sífellt betur meðvitaðir um það sem þeir setja ofan í sig. Val okkar sem neytendur hefur áhrif á umhverfið og aðbúnað dýra.
Lífrænn búskapur hefur aukist í seinni tíð á Íslandi, ekki síst vegna aukinnar eftirspurnar, en hann felur í sér að afurðir séu framleiddar í sátt við dýr og umhverfi.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
www.siggaogtimo.is
Verð kr 144.000.- parið
14 fréttaskýring helgin 4.-6. júlí 2014