Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 04.07.2014, Blaðsíða 56
H ugmyndafræðin bakvið Skuggamyndir frá Býs-ans er að spila þjóðlög frá þessu svæði Balkanskagans lög frá Búlgaríu, Makedóníu, Grikklandi og Tyrklandi. „Ég var búinn að vera viðriðinn ýmiskonar þjóðlaga- og heimstón- listarverkefni allt frá árinu 2001 á meðan ég var búsettur í Kaup- mannahöfn. Eftir heimkomuna 2006 var ég alltaf á höttunum eftir einhverjum sem myndi vilja taka þátt í að byggja upp heimstónlist- arsenu hér á landi og þegar Ásgeir sýndi þannig samstarfi áhuga sló ég til,“ segir Haukur Gröndal. Aðrir meðlimir sveitarinnar eru þeir Erik Qvik slagverksleikari og Þorgrímur Jónsson bassaleikari. Þorgrímur er þó mikið erlendis í sumar við tónlistarflutning og er bassaleikarinn Róbert Þórhallsson staðgengill hans. Þessi plata er frábrugðin þeirri fyrri að því leyti að hún er tekin upp á lengra tímabili. „Við tókum sex upptökurispur á átta mánuðum og tókum hana upp á Íslandi, í Istanbul í Tyrklandi, New Jersey í Bandaríkjunum og í Plovdiv í Póllandi. Þessi plata er töluvert frábrugðin hinni plötunni en hún er mun fjölbreyttari og lög- in eru frá mun fleiri löndum en á fyrri plötunni. Á þessari plötu má heyra sterk tyrknesk, grísk og ser- bnesk áhrif,“ segir Ásgeir Á plötunni eru nokkrir erlendir gestir sem eru þekkt nöfn í þess- um heimi tónlistar. „Búlgararnir Borislav Zgurovski og Todor Vasilev eru góðir vinir okkar en báðir léku inn á geisla- disk Hauks sem kom út árið 2008 undir nafninu „Narodna Muzika“. Borislav hefur margoft sótt Ísland heim og við höfum verið svo lán- samir að Todor hefur komið til okk- ar einu sinni. Slagverksleikararnir Cem Misirlioglu og Claudio Spieler eru hljóðfæraleikarar sem Haukur kynntist í gegnum samvinnuverk- efni með systur sinni, Ragnheiði Gröndal söngkonu, en báðir hafa þeir margoft sótt Ísland heim. Sam- starf við aðra gesti á plötunni, eins og túbuleikararann Jonatan Ahlbom og Kanoun virtúósinn Göksel Kart- al, er nýrra af nálinni og aldrei að vita hvað gerist í framhaldinu.“ „Núna fram undan er mjög mik- ið að gerast, við erum að fara í tón- leikaferðalag um Norðurland sem hófst á Græna hattinum 2. júlí svo vorum við á Siglufirði í gær, 3. júlí, verðum á Mývatni í kvöld, 4. júlí og með ball á Þjóðlagahátíð Siglu- fjarðar á morgun, laugardags- kvöldið 5. júlí. Á sunnudaginn, 6. júlí, verða svo útgáfutónleikar okk- ar í Björtuloftum í Hörpu klukkan 21,“ segir Ásgeir og viðtökurnar hafa verið alveg frábærar. „Svo er margt annað fram undan í sumar, tónleikar á veitingastaðn- um Meze á menningarnótt, tón- leikaferð um Austurland í október og tónleikaferð erlendis sem er í vinnslu. Þessi tónlist er alltaf að verða vinsælli og vinsælli.“ Hljómsveitin er með heimasíð- una www.byzantinesilhouette.com og svo að sjálfsögðu á Facebook undir Skuggamyndir frá Býsans. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is  TónlisT skuggamyndir frá Býsans með sína aðra plöTu Balkanmúsík á Íslandi Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans gaf út á dögunum sína aðra plötu sem nefnist Night without moon. Skuggamyndir voru stofnaðar árið 2010 af þeim Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara og Hauki Gröndal klarínettuleikara í framhaldi af hljómsveit sem hét Narodna musika sem lék búlgarska þjóðlagatónlist. Hljóm- sveitin verður á ferðalagi um Norðurland um helgina og heldur útgáfutónleika í Hörpu á sunnudag. Hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans var að gefa út sína aðra plötu og heldur útgáfutónleika í Hörpu á sunnudagskvöld. Ljósmynd/Hari 100% Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi Akureyri Sími 533 2220 www.lindesign.is Sendum frítt úr vefverslun Gjöfin sem gleður ár eftir ár Dúnmjúkar brúðargjafir Pima bómull50 tegundir íslenskra rúmfata til brúðargjafa Kíktu á brúðargjafatilboðin í verslunum í Reykjavík, Akureyri & lindesign.is Einstök mýkt 56 menning Helgin 4.-6. júlí 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.