Fréttatíminn - 04.07.2014, Qupperneq 46
46 matur & vín Helgin 4.-6. júlí 2014
Dásamleg pavlóva með karamellusósu
Instagram
verðlaunaleikur
Áhugi fólks á matargerð hefur aukist
mikið undanfarin misseri. Samhliða því
hefur færst mikið í aukana að fólk myndi
matinn sinn og birti á samskiptaforritinu
Instagram.
Nú er hafinn skemmtilegur Instagram
myndaleikur Gott í matinn. Allar myndir
birtast á Facebook síðu Gott í matinn.
Eina sem þarf að gera er að taka mynd
af mat sem inniheldur Gott í matinn
vörur, birta á Instagram og merkja
#gottimatinn.
Dómnefnd sem skipuð er þekktum mat-
gæðingum velur flottustu matarmyndina
og er glæsilegt Weber grill í verðlaun auk
fjölda glæsilegra matarkarfa.
Pavlóva er nefnd eftir
rússnesku ballettdans-
meynni Önnu Pavlovu
en bæði Austurríki og
Nýja-Sjáland eigna sér
heiðurinn af kökunni.
Sagan segir að kakan
hafi fyrst verið gerð
í öðru hvoru þessara
landa upp úr 1920 í
einum af heimsóknum
rússneska ballettsins.
Þessi dísæta og dásam-
lega marengskaka
er stökk að utan og
mjúk að innan og ekki
spillir karamellusósan
fyrir í þessari útgáfu
af kökunni sem Jónína
Lárusdóttir, matar-
bloggari með meiru,
deilir hér með okkur.
Botninn
4 eggjahvítur
200 gr. sykur
1 tsk. borðedik
½ tsk. kartöflumjöl
Vanillurjómi
2,5 dl. rjómi
1,5 tsk. sykur
½ tsk. vanilludropar
Karamellusósa
1 dl. rjómi
0,5 dl. sykur
0,5 dl. ljóst síróp
50 gr. smjör
Ávextir til skrauts.
Aðferð:
Stífþeytið eggjahvíturnar.
Bætið sykrinum saman við og
stífþeytið aftur. Blandið ediki og
kartöflumjöli varlega saman við
með sleif.
Setjið bökunarpappír á plötu
og teiknið hring sem er 20
cm. að þvermáli. Dreifið úr
eggjahvítunum með sleif.
Bakist í 1 klst. og 15 mín. við 130
gráður.
Þeytið rjómann og bætið vanill-
unni við.
Smyrjið karamellunni á botninn,
rjóminn settur ofan á, því næst
ávextirnir og karamella sett yfir
til skrauts.
Karamellusósa
Setjið í pott 25 gr. af smjöri, allan
sykurinn og síróp. Hrærið vel og
látið suðu koma varlega upp.
Látið malla í potti í u.þ.b. 7 mín.
og hrærið reglulega í pottinum.
Þegar karamellan er farin að
dökkna, takið þá af hellunni og
bætið restinni af smjörinu út í
og hrærið. Kælið aðeins áður en
hún er sett ofan á pavlóvuna.
Þessi sósa er einnig himnesk
með ís.