Fréttatíminn - 04.07.2014, Side 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Rit-
stjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is.
Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri:
Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Á Á bóluárunum fyrir hrun fluttist fólk hingað til starfa í miklum mæli. Margir hafa fest rætur, aðrir hafa snúið aftur heim, eins og gengur. Eftir efnahagshrunið snerist dæmið við. Atvinnuleysi, sem hafði nánast ekkert verið, mældist um 1 pró-
sent í janúar, fór yfir 9 prósent snemma árs 2009
og náði hámarki árið 2010. Margir atvinnulausir
– og þeir sem misst höfðu eigur sínar – sáu á þeim
tíma ekki aðra lausn en að leita vinnu ytra. Nor-
egur var áfangastaður flestra.
Fólksflóttinn var vissulega
áhyggjuefni, ekki síst að missa
ungt og vel menntað fólk til annarra
landa, fólk sem tímabundið fann
ekkert við sitt hæfi. Nú, fimm og
hálfu ári eftir hrun, hefur staðan
breyst, atvinnuhorfur eru betri og
atvinnuleysi þar af leiðandi minna.
Vonir um efnisleg lífsgæði hér á
landi eru því góðar – þótt þjóðin sé
enn að fást við afleiðingar efnahags-
hrunsins – og atvinnulíf- og fjár-
málakerfi enn um hríð bundið á klafa hafta.
Nýjustu tölur sýna að atvinnuleysi hefur ekki
verið minna frá hruni. Skráð atvinnuleysi í maí
var 3,6 prósent en að meðaltali voru 6.293 skráðir
atvinnulausir í mánuðinum og hafði fækkað um
508 að meðaltali eða um hálft prósentustig milli
mánaða. Tæpur fjórðungur atvinnulausra hefur
verið án atvinnu skemur en þrjá mánuði og tæpur
helmingur skemur en sex mánuði. Í samantekt
Alþýðusambands Íslands kemur fram að almennt
megi búast við jákvæðri þróun á næstu mánuðum
og minnkandi atvinnuleysi yfir sumartímann.
„Umsvif í hagkerfinu koma til með að fara vaxandi
þar sem mikil íbúðafjárfesting og stór verkefni
atvinnuveganna munu ýta undir fjölgun starfa,“
segir þar.
Aðrar mælingar sýna stöðu fólks hér í sam-
anburði við önnur lönd. Hagstofa Íslands birti í
vikunni töflu um skort á efnislegum lífsgæðum
í einstökum Evrópuríkjum. Þar er staða Íslands
eftir atvikum góð. Betur að vígi standa Sviss,
Svíþjóð, Noregur, Lúxemborg og Holland – en
Ísland er í sjötta sæti, ofar en Danmörk, Finnland,
Austurríki, Belgía og Frakkland, svo næstu lönd
séu talin – og mun ofar en Bretland og Evrusvæð-
ið metið sem heild. Þá eru ótalin löndin sem verst
eru sett, í Suður-Evrópu en ekki síst í austurhluta
álfunnar en neðst á listanum eru Litháen, Króatía,
Ungverjaland, Lettland, Rúmenía og Búlgaría.
Árið 2013 bjuggu 6,7% Íslendinga við skort á
efnislegum lífsgæðum en til samanburðar voru
4,5% í sömu stöðu í Noregi (miðað við tölur frá
2012) en 7,5% í Danmörku, 8,9% í Finnlandi og
16,2% á Evrusvæðinu. Í marghráðu Grikklandi var
hlutfallið 33,7% en 61,6% í Búlgaríu þar sem efnis-
leg lífsgæði voru minnst meðal Evrópulanda.
Skortur á efnislegum lífsgæðum var hverf-
andi hér á landi í aðdraganda hrunsins, fór niður
í 2,5% árið 2008. Hlutfallið var þó ekki hærra
árin 2010-2013 en verið hafði árabilið fyrir hrun,
2004-2007. Í heildina tekið búum við Íslendingar
því við bærileg efnisleg lífsgæði í samanburði
við aðrar Evrópuþjóðir – og vonir standa til að
staða okkar batni komi ekkert óvænt upp á enda
eigum við ekki að sætta okkur við neitt annað en
bestu stöðu. Staða einstakra hópa samfélagsins
er þó mun verri en meðaltalstölur segja til um. Í
fyrra skorti 25,2% heimila einhleypra með börn
efnisleg lífsgæði. Hlutfallið meðal einhleypra og
barnlausra var 11,7%. Þá var hlutfallið hátt meðal
atvinnulausra, 21,5% og öryrkja, 24,6%. Það er
óviðunandi. Hlutfallið var hins vegar 4,1% meðal
fólks í fullu starfi.
Þessar tölur sýna svart á hvítu mikilvægi öflugs
atvinnulífs, að fyrirtækin fái að blómstra svo þau
geti veitt fólki vinnu. Með þeim hætti má ýta frá
böli atvinnuleysis og stuðla að almennum efnis-
legum lífsgæðum. Þar hafa aðgerðir stjórnvalda
mikið að segja sem og skynsamlegir kjarasamn-
ingar.
Evrópskur samanburður efnislegra lífsgæða
Mikilvægi öflugs atvinnulífs
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Vikan í tölum
1.600
1.
20
0
.0
0
0
.0
0
0
183.000.000
89 67
mínútur lék aron Jó-
hannsson með lands-
liði Bandaríkjanna á
Hm í knattspyrnu.
prósent hækkun var
á mánaðargreiðslu
fyrir öryggishnappa
sem eldri borgarar
nota gjarnan.
króna hagnaður varð af rekstri fjármálafyrirtækisins Gam
management, betur þekkt sem Gamma, í fyrra. Það er rúmum
fjörutíu milljónum minni hagnaður en árið 2012.
erlendir gestir mæta
á tónlistarhátíðina all
tomorrow’s Parties
sem haldin verður
í Keflavík í næstu
viku. Portishead er
eitt af aðalnúmerum
hátíðarinnar. kr
ón
a
gr
ei
ði
r
R
ea
l
So
ci
ed
ad
fy
ri
r
a
lf
re
ð
Fi
nn
-
bo
ga
so
n
se
m
li
ði
ð
ke
yp
ti
fr
á
H
ee
re
nv
ee
n
í H
ol
la
nd
i.
Prófaðu reiknivélina á www.on.is og sjáðu hvað ísskápurinn,
frystikistan og önnur eldhústæki nota mikið rafmagn.
Við erum heppin að náttúran skuli sjá okkur fyrir meira en nóg
af orku til að létta okkur lífið svo um munar. Forsenda þess
að við getum farið vel með auðlindirnar og lækkað kostnað
er að vita hvað er í gangi og hversu mikla orku raftækin nota
að staðaldri. Á on.is er handhæg reiknivél sem auðveldar þér
að sundurliða orkunotkun heimilisins og meta kostnaðinn í
heild og við einstaka þætti.
Orka náttúrunnar framleiðir
og selur rafmagn til allra
landsmanna á samkeppnishæfu
verði. Við viljum nýta auðlindir
af ábyrgð og nærgætni og bæta
lífsgæðin í nútíð og framtíð.
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
HVAÐ FER MIKIL ORKA Í AÐ HALDA MJÓLKINNI KALDRI?
12 viðhorf Helgin 4.-6. júlí 2014