Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Síða 21

Fréttatíminn - 04.07.2014, Síða 21
höfum örugglega hvatt marga til þess en það er margt sem hjálpar. Hrunið, áhugi fólks á hreyfingu, útivist, sparnaðarhugsun og græn vitund. Hjólreiðar sameina þetta allt og enn fleiri tileinka sér þenn- an ferðamáta, og lífsstíl. Hjólreiðar eru vissulega lífsstíll. Við höfum svo komið með hjólin og boðið upp á marga möguleika í þeim. Það var ekki hjólreiðarmenning hér þeg- ar ég flutti til landsins. Þeir sem hjóluðu voru álitnir skrýtnir, og kannski einhverjir sem telja hjól- reiðamenn skrýtna enn í dag. Við erum bara svo miklu fleiri en áður. Svo er þetta orðið svolítið töff og kúl og það hjálpar til. Núna eru til hjól fyrir allar gerðir fólks, ekki bara þá sem eru á fjallahjólum, eins og var hér áður.“ Viðurkenning fyrir íþróttina Nýlega var stofnað Hjólreiðasamband Íslands innan vébanda ÍSÍ og er Da- vid nýkjörinn formaður sambandsins. „Það er frábært fyrir íþróttina að komast undir ákveðinn hatt. Ég leiddi nefndina sem fékk þessu fram- gengt og við höfum barist lengi fyrir þessu. Íþróttin þurfti þessa viður- kenningu og þeir hjólreiðamenn sem taka þessu hvað alvarlegast.“ Hvað þýðir þetta fyrir íþróttina? „Þetta þýðir það að við erum núna orðin hluti af alþjóðsamtökum hjól- reiðamanna og getum farið að keppa í íþróttinni á erlendum vettvangi. Áður var það ekki hægt sökum þess að vera ekki partur af alþjóðahreyf- ingunni. Það er ekki hægt að keppa á mótum erlendis án þess að vera með númer frá Íþróttahreyfingunni, þetta er stórt skref. Markmiðin okkar eru nokkur en aðallega það að fá fleiri til þess að hjóla, og þá sérstaklega ungu kyn- slóðina. Fá ungt fólk til þess að líta á hjólreiðar ekki bara sem ferðamáta heldur líka íþrótt sem hægt er að æfa eins og fótbolta eða sund. Ísland býður hreinlega upp á það, hér er svo auðvelt að hjóla hvort sem það eru fjallahjólreiðar eða langar vega- lengdir. Það mun taka tíma en það er verðugt markmið.“ Hleypur ekki mikið í dag „Ég keppti mikið í 1500 og 3000 metra hlaupum og lengra. Ég hleyp ekki mikið í dag en ætla í hálf mara- þonið í ágúst en þar við situr í raun- inni. Ég hef ekki mikinn tíma þessa dagana. Búðin gengur vel og ég var að eignast mitt annað barn núna í maí.“ Reiðhjólaverslunin Kría er á Grandagarði 7 í Reykjavík og David er þar ásamt starfsfólki sínu og að- stoðar fólk við allt sem viðkemur hjól- um, hvort sem það eru byrjendur eða lengra komnir. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Orkuforðinn okkar Vatnsaflsstöðvar nota fallþunga vatns til að knýja hverfla sem vinna rafmagn. Úrkomu og leysingavatni af jöklum landsins er safnað í uppistöðulón, sem flest eru á hálendinu. Miðlunarlónin eru góð geymsla fyrir raforku og gera kleift að vinna rafmagn jafnt og þétt allt árið. Hálslón er vatnsmesta lón landsins. Þegar lónið fyllist síðsumars er vatni veitt um yfirfall sem steypist í um 100 metra háum fossi, Hverfanda, niður í Hafrahvammagljúfur. Verið velkomin í heimsókn í sumar! Kárahnjúkastífla: Leiðsögumaður tekur á móti gestum alla miðvikudaga og laugardaga kl. 14-17. Búrfellsstöð: Gagnvirk orkusýning er opin alla daga kl. 10-17. Vindmyllur á Hafinu: Starfsfólk tekur á móti gestum alla laugardaga í júlí kl. 13-17. Kröflustöð: Jarðvarmasýning er opin alla daga kl. 10-17. www.landsvirkjun.is/heimsoknir *Vatnsmagn í miðlunarlónum er mælt í gígalítrum (milljörðum lítra). Krókslón - 140 Gl. Hágöngulón - 320 Gl. Blöndulón - 412 Gl. Þórisvatn - 1400 Gl. Hálslón - 2100 Gl. Sultartangalón 109 Gl. • Kelduárlón 60 Gl. • Hrauneyjalón 33 Gl. • Sporðöldulón 25 Gl. • Gilsárlón 20 Gl. • Bjarnalón 5 Gl. • Ufsar– og Vatnsfellslón 3 Gl. Ný 7 kg þvottavél með íslensku stjórnborði. Hámarksvinduhraði: 1400 sn./mín. Orkuflokkur A+++. Tromlan („waveDrum”) fer einstaklega vel með þvottinn. 15 mín. hraðþvottakerfi. Við hönnun vélarinnar hefur verið leitast við að gera hana mjög stöðuga og hljóðláta („antiVibration Design”). Við leggjum áherslu á hágæða vörur og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði. Kynningarverð: 119.900 kr. stgr. Þvottavél, WM 14K267DN www.sminor.is Hraðkerfi 15 7 kg Tekur mest anti-vibration Design Orkuflokkur Ný Siemens þvottavél - með öllum þeim eiginleikum sem menn þurfa í dagsins önn. Fljótandi þvottaefni frá Ariel fylgir með öllum Siemens þvottavélum.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.