Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Page 26

Fréttatíminn - 04.07.2014, Page 26
Læknarnir mín- ir, Guðmundur og Jón R., fréttu af fæðingunni þar sem þeir voru á vakt, og komu í lækna- sloppunum yfir á Kvennadeild og báðu um að fá sjá Önnuson. Hjúkrunar- fræðingnum brá svolítið að sjá tvo lækna mætta og spurði hvort eitthvað væri að barninu. „Nei, nei, við erum nú bara svona pínu af- arnir!“ Þ etta var ótrúleg lífs- reynsla,” segir Anna Christina Rosenberg um upplifunina í hlíðum Tiger Leaping Gorge. Við sváfum við rætur fjallsins, fengum morgunverð hjá gamalli konu og byrj- uðum að klífa klukkan sjö að morgni til að ná á fyrstu stöð fyrir myrkur. Þetta er svipað því að klífa Grand Canyon nema að þarna er allt grænt og í hrísökrum. Þegar við höfðum klifið um 2000 metra, komum upp á fyrstu stöð þar sem reist voru hús fyrir klifurfólk og þar fengum við að skola af okkur, borðuðum og sofn- uðum á svipstundu. Þarna var svefn- inn alsæla! Þessir fyrstu 2000 metrar þykja erfiðastir því þeir „vegir“ eru svo hlykkjóttir og því reyndist ferðin eftir þá einföld, upp í 4000 metra. Ég held ég muni aldrei sjá aðra eins fegurð aftur.“ En til Kína var Anna Christina ekki eingöngu komin til að fara í fjallaklif- ur, heldur var hún þar í námi og bjó í tvö ár í borginni Kunming í Yunnan héraði í Suð-Vestur Kína. Með henni hluta tímans var Börkur Thór, sonur hennar, þá 12 ára. Anna Christina fór á undan syninum til að finna íbúð til leigu og hafa allt tilbúið þegar hann kæmi. Hún var fljót að kynnast fólki, jafnt Kínverjum sem erlendum há- skólanemum, og líklega varð það henni til lífs að það kvöld sem hún ætlaði að elda í fyrsta skipti á fínu eldavélinni í íbúðinni, var hún að tala við einn vinanna í símann. Reykt á sjúkrastofunni og matreitt á prímus „Það varð þessi gríðarlega gas- sprenging í vélinni, ég þeyttist út í horn og eldhúsið skíðlogaði,“ segir hún. „Þessi vinur minn var fljótur að hringja á slökkvilið og sjúkrabíl þeg- ar hann heyrði sprenginguna gegn- um símann. Ég var með krónískan höfuðverk í hálfan mánuð eftir þetta, ég hafði fengið gaseitrun og æðar í nefinu höfðu sprungið. Ég mætti hálfum mánuði of seint í skólann þar sem ég ætlaði að nema kínversku og var búin að vera í viku í skólanum þegar botnlanginn í mér sprakk næstum. Þetta virtist því ekki mjög gæfusöm byrjun á lífinu í Kína, en ég sé það núna að það var bara betra að taka allan pakkann strax, því ég átti eftir að upplifa svo margt með Berki, syni mínum, þegar hann kom. Þar sem enginn tími gafst til að fara með mig á alþjóða sjúkrahús, var ég send á spítala í Kunming. Læknirinn hafði aldrei gert aðgerð á Vesturlandabúa fyrr svo það þurfti að borga honum undir borðið. Fyrst var ég sett á pínulitla sjúkrastofu. Þar voru fjögur rúm og hjúkrunar- fræðingarnir gerðu ekkert nema það væri læknisfræðilega tengt svo sjúklingarnir þurftu að hafa ein- hvern úr fjölskyldunni til að vera hjá sér, gefa þeim vatn og mat. Það voru allir með einhverja fjölskyldumeð- limi með sér og úti í einu horninu sat maður með prímus að elda og fjórir aðrir að reykja sígarettur. Þetta var eins og í bíómynd, allt alveg ofboðs- lega skítugt og blóðblettir hér og þar. Þegar ég kom úr svæfingunni voru þrír vinir mínir úr skólanum komnir og þegar við komum að stofunni sem ég hafði verið á, er okkur sagt að við eigum að fara í aðra byggingu. Mér var skellt á hjólaborð og vinir mínir þurftu að rúlla mér yfir í moldarstæði og rúmið hossaðist svo mikið að ég æpti af verkjum. Þegar við vorum komin inn í hinn hluta spítalans segir Kínverjinn að við eigum að fara upp á þriðju hæð. Strákarnir spurðu hvar lyftan væri. „Engin lyfta, engin lyfta, þið hjálpa að bera.“ Þeir báru mig upp þrjár hæðir en borðið komst ekki gegnum dyragættir svo það þurfti að leggja mig á lak á gólfinu, vefja mér inn eins og pakka og rúlla mér þannig gegnum dyragættir. Allir saumarnir sprungu og það gleymdist að setja þvaglegg. Aumingja yngsti strákurinn, vinur minn, var alveg í áfalli, hann hafði aldrei séð annað eins. Ég lærði fyrstu nóttina að þarna tæmir starfsfólk ekki þvagpoka sjúklinga. Ég skreið fram á eitthvert almenningssalerni, sem var bara hola ofan í jörðina og tæmdi þvagpokann. Nokkrum vikum eftir þetta fékk ég matareitrun og var send á alþjóðlegt sjúkrahús og það var eins og að tékka inn á fimm stjörnu hótel. Risastórt herbergi með sjónvarpi og öllu, séð um allt og hugsað afar vel um sjúklingana og þar fékk ég sko matseðil til að velja af hvað ég vildi borða!.“ Átti ekki að geta orðið ólétt Þar sem hún stóð í um 4000 metra hæð, efst í hlíðum gljúfursins Tiger Leaping Gorge í Kína og horfði yfir landið, hafði hún aldrei séð neitt fegurra. Allt var sveipað grænum lit og hrísökrum svo langt sem augað eygði. Tiger Leaping Gorge er eitt af dýpstu gljúfrum veraldar en hefur þann kost um- fram Grand Canyon í Bandaríkjunum, að staðurinn er ósnortinn af túrisma. Anna Christina Rosenberg náði upp á topp án vandkvæða, enda hefur hún klifið erfiðari hjalla. Sem unglingur stríddi hún við bráðahvítblæði og missti tvo kæra vini sem lágu með henni á spítalanum. Í skoðun eftir krabbameins- meðferðina fannst nýtt æxli – sem reynist við nánari skoðun vera barn en það var talið útilokað að Anna Christina gæti átt barn. Börkur Thór, sonur Önnu, er nú tæplega 18 ára. Í Kína slapp hún lífs úr gassprengingu og lifði líka af botnlangauppskurð á skítugu sjúkrahúsi þar sem allir saumar sprungu. En sjúkrasaga Önnu í Kína var síður en svo búin. Hún datt illa og brákaði kinnbein, en þessar veikindasögur mega sín lítils í samanburði við gleðina að vera í Kína. „Ég á bara góðar minningarnar frá Kínadvölinni,“ segir hún. „Börkur son- ur minn og ég vorum dugleg að pakka niður í bakpoka, hoppa upp í rútu og út einhvers staðar þar sem okkur leist vel á okkur. Við eignuðumst fljótt okkar eftirlætis þorp sem heitir Dali. Þar er allt gamalt, engar nýbyggingar. Þetta er staður sem mig dreymir um að heimsækja aftur. Á ótrúlega mörgum stöðum var fegurðin ólýsanleg og ég eignaðist svo frábæra vini. Það gerðist svo margt stórkostlegt á þessum stutta tíma. Ég kynntist Kínverjum, Kóreubúum og fólki frá Víet Nam auk erlendu nemanna sem voru þarna í námi. Ég lærði kínversku þannig að ég get bjargað mér að tala málið ef ég þarf, lærði að skrautskrifa kínverskt letur og allt um temenninguna. Kennari við landbúnaðarháskóla í Kunming Börkur sonur Önnu sat ekki auðum höndum. Auk þess sem hann þeyttist um allt á vespu, 12 ára gamall, gerði hann sér lítið fyrir og stofnaði fyrir- tæki sem bauð útlendingum að fara út að ganga með hundana þeirra. Það var einmitt á einni slíkri göngu sem hann settist niður á kaffihúsi og fór að spjalla við breskan mann sem þar sat. Sá sagði Berki að hann kenndi ensku við landbúnaðarháskólann, en vantaði í raun annan kennara. Börkur var ekki lengi að bjóða fram aðstoð mömmu sinnar: „Mamma mín er örugglega til í þetta. Hér er símanúmerið hennar, þú hringir bara.“ Og þannig varð Anna Christina orðin enskukennari við land- búnaðarháskóla! Engin jólagjöf En frá Kína yfir í bernskuna. Anna Christina fæddist í Danmörku og bjó þar í sex ár. Þaðan flutti fjölskyldan til Grænlands í tvö ár en þá fluttu hún og mamma hennar aftur til Danmerkur Framhald á næstu opnu Anna Christina Rosenberg með syni sínum Berki Thór. Ljósmyndir/Hari 26 viðtal Helgin 4.-6. júlí 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.