Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Qupperneq 36

Fréttatíminn - 04.07.2014, Qupperneq 36
Marktækur í mánuð É Ég get ómögulega sagt að við hjónakorn­ in deilum saman áhuganum á fótbolt­ anum þessa dagana. Þótt ég horfi tiltölu­ lega lítið á íþróttir í sjónvarpi hvunndags og fari ekki á fótboltaleiki hér heima hef ég límst við skjáinn vegna heimsmeist­ aramótsins í Brasilíu. Ég hef enga tölu á þeim leikjum sem ég hef horft á, ýmist alla eða hluta, en mun ef að líkum lætur halda þessu glápi áfram þar til mótinu lýkur undir miðjan þennan mánuð. Ég á mér ekkert sérstakt uppáhalds­ lið en hrífst af fótafiminni almennt og vil sem flestar glæsispyrnur, magnaða mark­ vörslu – en umfram allt sem flest mörk. Út á það gengur leikurinn, að skora hjá andstæðingunum. Á heimsmeistaramóti er knattspyrnukúnstin komin í æðra veldi, einkum þegar líður á mótið og eftir standa hinir útvöldu. Þá er allt er undir og ýmist stjórnlaus gleði eða þjóðarsorg í leikslok. Það sást í riðlakeppninni þegar stórþjóðir á borð við ríkjandi heimsmeist­ ara Spánar voru sendar heim, svo ekki sé minnst á Ítali, Englendinga, Rússa og Portúgala. Rússar trylltust, það að von­ um, þegar sýnt þótti að geisla hafði verið beint að markverði þeirra rétt fyrir mark það sem Alsíringar skoruðu. Sú reiði er skiljanleg enda gjörðin úr áhorfendastúk­ unni skepnuskapur. Skárra er þegar dómarar gera mistök, sleppa ýmist vítaspyrnum eða dæma þær ranglega á menn. Slíkt er hluti leiksins, eins og það að reka mann og annan út af fyrir misalvarleg brot. Óþarfi er svo að minnast á bit Úrúgvæans Suárezar, jafn­ vel ég var bit þegar ég horfði á þetta í beinni útsendingu. Sá situr nú í skamm­ arkróknum – en getur huggað sig við það að hafa fengið móttökur sem þjóðhetja þegar heim kom. Landar hans skilja ekk­ ert í meðferðinni á stjörnunni og amma hans segir hann hafa verið rekinn heim sem hund. Minn betri helmingur situr ekki með mér í sófanum meðan á knattspyrnuleikj­ unum stendur – eða liggur öllu heldur því ég kem mér haganlega fyrir í upphafi leiks í láréttri stillingu með kodda undir höfðinu. Ég þarf ekki að sitja því ég geri ekki ráð fyrir að verða eins spenntur og stundum á handboltalandsleikjum „strákanna okkar“ þegar maður á það til að stökkva í loft upp á lokasekúndunum. Nú ligg ég bara og nýt listarinnar. Stöku sinnum kemur að vísu fyrir að ég hrópa upp þegar glæstustu mörkin eru skoruð – eða markvörður svífur stanga á milli. Það er nefnilega allt í lagi að hrópa hátt útafliggjandi, svo lengi sem maður hefur vit á því að halda þeirri stöðu. Annars er hætta á tognun. Mín ágæta kona lætur þetta gláp eftir mér þótt hún skilji lítt í áhuganum. Henni finnst öll þessi lið eins, hlaupandi sveinar út um allan völl á eftir tuðru í átakanlegu tilgangsleysi. Afraksturinn sé lítill, eitt til þrjú mörk eftir 90 mínútna hamagang. Á mismunandi afstöðu okkar er gagn­ kvæmur skilningur. Endranær ræður hún fjarstýringunni og er svo snögg að skipta um stöð ef þar glittir í íþróttakappa að auga mitt nemur það varla. Ég læt gott heita. Frúin er hrifnari af bíómyndum og þáttum ýmis konar, einhverju sem veitir bærilega afslöppun eftir langan vinnu­ dag. Þessa dagana, á meðan fótboltaorgían stendur yfir, fer hún út að ganga eða í sund meðan á kvöldleiknum stendur. Þegar hún kemur heim eftir útivistina bregst það varla að ég er enn ferkantaður fyrir framan tækið, hlustandi á spekinga fara yfir leikinn og horfandi á mörkin aftur og aftur frá ýmsum sjónarhornum. Þá má vera að hún stynji létt og spyrji hvenær þessum ósköpum linni. Komi ég seint heim úr vinnunni er fyrsta verkið að kveikja á sjónvarpstæki í eldhúsinu og fylgjast með boltanum þar. Það er líklega óhollt og hætta á að í manni standi ef mikið gengur á við annað hvort markið. Af tillitssemi við eigin­ konu mína hef ég tækið lágt stillt. Hvað sem á dynur er engin hætta á að í henni standi. Hún lítur ekki einu sinni upp þótt skorað sé, eða vítaspyrna í undirbúningi. Einhverra hluta vegna stendur henni ná­ kvæmlega á sama um það sport sem er að setja heimsbyggðina á annan endann. Það mætti segja mér að hún hafi aldrei heyrt á Suárez minnst né þann ítalska sem hneig niður í markteignum með víg­ tannamarkið í öxlinni. Eini knattspyrnu­ maðurinn sem ég veit að hún þekkir, að minnsta kosti af afspurn, er argentínska stórstirnið Messi. Ekki vegna þess að hún hafi séð hann á skjánum eða lesið um hann í blöðunum heldur vegna þess að sonarsonur okkar, sem æfir fótbolta með HK, heldur upp á kappann og við leit­ uðum að Messi­treyju handa stráknum í utanlandsferð. Þá þykist ég vita að hún viti að Manchester United sé til. Ekki að hún hafi fallið í stafi yfir velgengni félags­ ins, heldur vegna búningakaupa á börn. Enn eru tíu dagar eða svo eftir af stórmótinu í Brasilíu. Að því loknu kemst væntanlega skikk á heimilishald fólks. Sá grunur læðist nefnilega að mér að eigin­ kona mín sé ekki ein um þetta áhugaleysi á tuðrusparkinu. Það met ég af þátttöku dætra og tengdadætra okkar í kvöld­ göngunum og sundferðunum undanfarið. Vera kann að á heimilum þeirra liggi líka karlar með ferköntuð augu. Gefist frúin upp áður en mótinu lýkur – og vilji endurheimta fjarstýringuna – á ég samt leik í stöðunni. Í bílskúrnum er ég sem sé með gamalt sjónvarp. Fjarstýr­ ingu þess ræð ég einn. Í lengstu lög vona ég þó að ekki reyni á gláp þar því stærðin á túbuskjánum stenst engan samanburð við heimilissjónvarpið – og þar er heldur enginn sófi. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON VIKAN 25.06.14 - 01.07.14 1 2 5 6 7 8 109 43 Iceland Small World - lítil Sigurgeir Sigurjónsson Iceland Small World - stór Sigurgeir Sigurjónsson Piparkökuhúsið Carin Gerhardsen I was there Kristján Ingi Einarsson Af jörðu - íslensk torfhús Hjörleifur Stefánsson Niceland Kristján Ingi Einarsson Vegahandbókin 2014 Steindór Steindórsson Amma biður að heilsa Fredrik Backman Bragð af ást Dorothy Koomson Skrifað í stjörnurnar John Green 36 viðhorf Helgin 4.-6. júlí 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.