Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Qupperneq 44

Fréttatíminn - 04.07.2014, Qupperneq 44
F ajita, búrrito og tacó eru þrír bútar af sömu tortíunni en fjórða hliðin er sparihliðin. Quesedilla er einhvers konar blanda af fajita og grillaðri ostasamloku. Gerðirnar eru óteljandi og hvort sem það eru kjúklinga-, nautakjöts-, svína-, grænmetis- eða bara ostapönnu- kökur er eina reglan að bera fram með sósu til að dýfa herlegheitunum í. Heima- löguð salsasósa eða einhverskonar dýfa með sýrðum rjóma eru klassískar. En þar sem þetta er heimalagað og matarlöggan ekki á leiðinni er allt í lagi að rúlla beint í bérnaiese, ef vill. Pönnsurnar Stundum er betra að búa aldrei neitt til frá grunni því þá hættir það sem fæst tilbúið úti í búð að heilla. Heimalagaðar tortíur eru einmitt þannig matur. Það tekur um klukkutíma að búa til þessar tex-mexí- kósku hveitipönnsur og er hverrar mínútu virði. Fyrir þessa venjulegu fimm manna fjölskyldu er nóg að blanda smá salti og örlitlu lyfitdufti saman við tvo og hálfan bolla af hveiti. Mylja svo feiti, tæpan desilítra af stofuheitri grænmetisfeiti, svínafeiti eða jafn vel smjörlíki, saman við þannig að úr verði gróf „möl“. Bæta volgu vatni saman við svo úr verði slétt bolla sem helst vel saman án þess að vera klístruð. Löðra deigbolluna í feiti. Geyma í skál með plastfilmu yfir í hálftíma. Þá er að rúlla í langa pulsu og skera í bita. Þessi uppskrift ætti að duga í 12 meðalstórar pönnsur. Fletja pönnukökur úr bitunum. Best að hafa þær ekki of stórar, í mesta lagi fimmtán sentimetra í þvermál. Þær mega ekki vera of þykkar en það þarf heldur ekkert að geta lesið dagblað í gegn heldur. Steikja á pönnu, helst gamaldags pottjárnspönnu eins og þessum íslensku pönnukökupönnum sem til eru á flestum heimilum. Líka hægt að grilla og þá tekur þetta enga stund. Nokkrar sekúnd- ur á hvorri hlið. Setja svo undir hreint viskustykki til að halda þeim volgum og mjúkum. Kjúklinga-qeuesadillas á grillinu Grilla kjúkling með þeirri aðferð sem grill- meistaranum finnst hvað best. Letihaugar og þeir sem eiga ekki grill kaupa sinn tilbúinn úti í búð. Skemmtileg aðferð og leið til að einfalda heilgrillun á kjúkling er að klippa hrygginn burtu með matreiðslu- skærum og fletja kjúklinginn út. Snúa hon- um við og skera varlega með bringubeininu og toga það svo út. Eins má toga út beinið sem er á milli leggjanna. Löðra kjúklinginn í bragðlítilli matarolíu eins og canola eða venjulegri ólífuolíu. Krydda með blöndu af pipar, papriku, reyktri papriku, chilli- dufti, kóríander-, hvítlauks- og laukdufti. Salta svo rausnarlega og skutla út á heitt grillið. Grilla við miðlungs hita þangað til að lærin eru orðin 72 gráður að innan. Það er auðvelt að brenna kjúkling. Því er gott að snúa nokkrum sinnum og passa að grillið sé ekki of heitt. Gott að þyngja kjúklinginn niður með múrsteini vöfðum í álpappír eða þungri pottjárnspönnu. Líka bara svo fjandi töff að elda með múrsteini. Geyma kjúklinginn þangað til að hann kólnar aðeins og rífa hann svo af bein- unum. Á meðan á því stendur er um að gera að grilla allt það grænmeti sem hugurinn girnist, papriku, maískorn, rauðlauk, kúr- bít og eggaldin. Snilldin við quesadillas er að það eina sem þarf að vera á pönnsulok- unni er ostur. Annað er bara bónus. Samsetningin Ná í volga toríu og hlaða á hana osti, Gott að blanda ókryddlegnum fetaosti og einhverjum góðum bráðosti, t.d. mozzarella eða cheddar ef fólk vill eitthvað bragðmeira. Hlaða svo kjúklingi og grænmeti að vild og loka svo með annari tortillu. Skella svo út á miðlungs heitt grill. Þetta tekur enga stund og þeir sem treysta sér geta snúið herlegheitunum en það þarf ekki. Passa að búa ekki til hrökk- brauð með því að hafa kökurnar of lengi yfir eldinum. Skera svo í þríhyrninga og dýfa. Tvídýfingar eru leyfðar af því að hver og einn á að hafa sína eigin dýfuskál. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is 44 matur & vín Helgin 4.-6. júlí 2014 Tex-mex ostapönnsuloka Avacadó er ómissandi þáttur í quesadillas-upp- lifuninni. Mauka smá út í sýrðan rjóma eða guacamole. Það er ekkert mál að gera guacamole. Fyrsta skref er að fallega þroskað hass avacado. Þetta hrjúfa sem verður fjólublátt þegar það þroskast. Saxa rauðlauk, smá chilipipar og tómata. Muna að taka kjarnan og fræin frá. Gróf- stappa avacadóið, skvetta límónusafa yfir og toppa með kóríander eða fjalla- steinselju og smá salti. Búmm! Besta guacamole í heimi. Guacamole Skera nokkra tómata í fjóra hluta og taka kjarnan og mest af fræjunum frá. Grilla heilan hvítlaukshaus í álpappír í 30-40 mínútur eða þangað til að hann verður allur mjúkur. Grilla þá tómatana, rauðlauks- og paprikusneiðar. Bara rétt til að fá smá svartar rendur. Mauka með smá reyktri papriku, salti og pipar. Skera að- eins framan af hvít- lauknum og sprauta jukkinu yfir eftir smekk. Toppa með söxuðu kóríander, smá límónuberki og safa úr hálfri límónu eða svo. Skemmtilegt að prófa að grilla límónuna líka áður en safinn er kreistur. Grilluð tómatSalSa Bakið klippt úr hænuunganum. Gott að nota eitthvað þungt til að þrýsta kjúklingnum niður, t.d. múrstein. Þægilegt að setja kökurnar saman á grillinu til að flýta fyrir bráðnun. Föstudagspizzan Eftirréttarpizzan er bökuð úr Kornax brauðhveitinu H V êT A ÊH ò S I /S êA ÊÐ Ê0 9 Ð 0 8 4 6 Tilboð C M Y CM MY CY CMY K 09-0846_AB_drykkir_Tilbod.2x10.pdf 1 20.5.2009 17:29
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.