Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Page 50

Fréttatíminn - 04.07.2014, Page 50
Helgin 4.-6. júlí 2014 Það verður margt um að vera á K100 um helgina þegar stöðin verður með beinar útsendingar frá höfuðstað Norðurlands, Akureyri. Á föstudag ætla útvarpsmennirnir kampakátu Siggi K100 á Akureyri um helgina! Gunnars og Siggi Þorbergs að skella sér í keilu og þá býður K100 öllum keilugestum 20% afslátt. Á laugardagskvöldið verður flott K100 partý á Pósthús- barnum þar sem Siggi Gunnars ætlar að halda uppi stuðinu og plötusnúðast fram eftir nóttu. Fyrstu gestirnir fá sér- stakan glaðning. Stjörnufréttir eru í boði SkjáSeinS U pptökum á íslensku þáttunum Minute to Win It er lokið. Þættirnir, sem framleiddir eru af SkjáEinum í samstarfi við N1 og Saga- Film, verða tíu talsins og hefjast sýningar í september. Ingólfur Þórarinsson, jafnan nefndur Ingó veðurguð, stýrir þátt- unum og segir hann að stemningin í upptökuverinu hafi verið rafmögnuð með stútfullum sal af hvetjandi áhorfendum og kappsömum kepp- endum. „Upptökurnar gengu rosa- lega vel og voru allir keppendur og fólk í sal frábært,“ segir Ingó. „Ég hélt svo svakalega mikið með kepp- endum að ég var stundum að fara yfirum af spenningi.“ Segist hann hafa lært heilmikið á að stýra þátt sem þessum og er handviss um að hægt sé að lofa frábærri og spennandi fjölskyldu- skemmtun með Minute to Win It – Ísland á SkjáEinum í haust. Sumargjöf vikunnar hjá SkjáEinum er að þessu sinni The Counsellor sem skartar stórleikurum á borð við Michael Fassbender, Penélope Cruz, Cameron Diaz og Brad Pitt í aðalhlut- verkum. Myndin kom út á Íslandi í fyrra og fjallar um virtan lögmann sem telur sér óhætt að fikta aðeins við fíkniefnaviðskipti án þess að sogast inn í hættulegan heim eiturlyfjahrings. Það kemur hins vegar á daginn að lögmaðurinn hefur ekki hugmynd um hversu flæktur hann raunverulega er í hringiðu glæpona og klíkustarfsemi og vandræðin fara að elta hann uppi. Einvala lið leikara Leikandi Legokallar í SkjáBíó Hin frábæra teiknimynd The Lego Movie kemur í SkjáBíó um helgina en myndin fékk mikið lof frá ungum sem öldnum þegar hún kom út fyrr á þessu ári. Myndin er ekki bara vel gerð, heldur er hún einnig þrælfyndin, vel talsett og síðast en ekki síst, með verulega hjartnæm skilaboð. Rigning eða rok, sumar eða sól, þá er The Lego Movie tilvalin fyrir bíókvöld fjölskyldunnar. stemning með kappsömum keppendum Brúðargjafir í Hrím Laugavegi 32 - S:553-2002 Mán-lau 10:00-18:00 Sun 13:00-17:00 Leitið upplýsinga á auglýsingadeild Fréttatímans í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is Fréttatímanum er dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri auk lausadreifingar um land allt. Dreifing með Fréttatímanum á bæklingum og fylgiblöðum er hagkvæmur kostur. Ert þú að huga að dreifingu? 50 stjörnufréttir

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.