Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.10.2014, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 31.10.2014, Blaðsíða 4
Demantshringur 0.70ct Verð 680.000.- LINNETSSTÍG 2 | 565 4854 Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardag 11:00 - 14:00 Það þótti ekki boð- legt að bjóða þeim upp á heimili sem er bara her- bergi í sam- býli veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Hvöss A-átt og rigning en slyddA eðA snjókomA n-til. HöfuðborgArsvæðið: Rigning með köflum. A-læg átt, HvAssviðri nv-til AnnArs HægAri. ÚrkomA með köflum. HöfuðborgArsvæðið: Skýjað en úRkomulítið. nA-átt og snjókomA n- og A-lAnds og kólnAndi veður. HöfuðborgArsvæðið: léttiR til. lægðagangur og kólnandi veður Öflug lægð er nú suður af landinu og veldur hún hvassviðri eða stormi, en ber einnig með sér tiltölulega hlýtt loft. Í dag er því útlit fyrir hvassa austanátt með rigningu um landið sunnanvert og á láglendi norð- antil en snjókomu eða slyddu til fjalla. Það lægir talsvert í nótt, en þó verður áfram hvasst og NV- lands. Á morgun dregur úr úrkomu en áframhaldandi snjókoma eða slydda fyrir norðan. Á sunnudag tekur við norðaustanátt með kólnandi veðri og snjókomu norðan og austanlands. 6 3 2 4 7 4 1 2 3 5 3 0 0 1 4 elín björk jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is  velFerð Bætt þjónusta við heimilislausar konur Heimili sem starfrækt hefur verið fyrir heimilislausar konur að Skeggjagötu 1 hefur verið flutt að Hringbraut 121. Þjónustan er þar með bætt við heimilislausar konur sem fá einstaklingsíbúðir í stað herbergja. Um er að ræða úrræði á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fyrir konur sem margar hverjar glíma bæði við geðræn vandamál og vímuefnafíkn. v elferðarsvið Reykjavíkurborgar hef-ur bætt þjónustu við heimilislausar konur með því að færa búsetuúr- ræði fyrir þær í stærra húsnæði. „Þarna er áfram pláss fyrir 5 konur en í stað þess að þær búi í herbergjum fá þær ein- staklingsíbúðir,“ segir Sigtrygg- ur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborg- ar- og Hlíða, sem hefur yfirum- sjón með úrræðum fyrir heim- ilislausa í borginni. „Það þótti ekki boðlegt að bjóða þeim upp á heimili sem er bara herbergi í sambýli,“ segir hann. Síðustu ár hefur velferðar- svið rekið heimili fyrir konur sem margar eru tvígreindar, það er eiga bæði við geðsjúk- dóma að etja og vímuefnavanda, að Skeggjagötu 1 þar sem fimm konum hefur verið boðið upp á herbergi. Sú starfsemi hefur nú verið flutt að Hringbraut 121, í portinu bak við JL-húsið, þar sem fimm íbúðir eru í boði en þar er starfsmaður á vakt allan sólarhringinn sem veitir konunum stuðn- ing. „Markmið með úrræðinu er að útvega þeim hópi heimilislausra kvenna húsnæði, sem hefur gengið erfiðlega að veita búsetu annars staðar,“ segir Sigtryggur. Sigtryggur segir að konur sem þarna komi til með að búa þurfi ekki aðeins að undirrita húsaleigusamning heldur einn- ig búsetusamning þar sem þær gengast undir ákveðnar reglur varðandi gesta- komur og umgengni. Tvær af þeim fimm konum sem bjuggu á Skeggjagötu hafa flutt á Hringbrautina en eftir á að úthluta hinum íbúðunum. Hjá Félagsbústöðum fengust þær upplýsingar að ekki hafa verið teknar ákvarðanir um framtíð húsnæðisins að Skeggjagötu en mögulega verður það selt. Á mánudag urðu einnig þau tímamót í þjónustu við heim- ilislausa að Gistiskýlið, neyðar- næturskýli fyrir heimilislausa karlmenn, flutti í stærra hús- næði við Lindargötu 28. Gistis- kýlið hafði verið starfrækt við Þingholtsstræði í 45 ár en á síðustu árum jókst þörf fyrir stærra húsnæði þegar vísa þurftu frá mönnum vegna plássleysis og tímabundið var sett upp viðbótargisting við Vatnsstíg. „Við höfðum ekki heimild til að taka við fleiri en 20 á Þingholtsstrætinu sem er friðað timburhús. Á Lindargötunni er starfsemin í steinhúsi sem er mun rýmra og þar verður engum vísað frá,“ segir Sigtryggur. erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Heimilislausar konur fá íbúðir vestur í bæ Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar- og Hlíða, sem hefur yfirumsjón með úrræðum fyrir heimilis- lausa í borginni. Heimilislausum konum var áður boðið upp á búsetuúrræði í herbergjum við Skeggjagötu en þeim býðst nú að leigja einstak- lingsíbúðir við Hringbraut 121. Starfsmaður er þar á vakt allan sólarhringinn. Mynd/Hari 1.000 skurðaðgerðir gætu fallið niður á Land spít al anum ef lækn ar þar fella niður störf eins og þeir hafa boðað fram til 11. des em ber. 12.929 milljarða króna eiga erlendir að- ilar innan íslenska hagkerfisins. Það nemur nærri sjöfaldri landsfram- leiðslu. Kominn í undanúrslit í Austur- ríki Þórsteinn Ingi Einarsson, 18 ára kokkur sem búsettur er í Salzburg, er kominn í undanúrslit í raun- veruleikaþættinum Die große Chance sem sýndur er á stærstu sjónvarpsstöðinni í Austurríki. Und- anúrslitin eru í kvöld, föstudagskvöld. Þórsteinn söng Wrecking Ball með Miley Cyrus í átta manna úrslitunum um liðna helgi. Verðlaunaféð nemur 100 þúsund evrum. Óli Palli sendur í frí Útvarpsþátturinn Rokkland á Rás 2 hefur verið settur í frí fram í mars. Þetta er gert til að rýma til fyrir þætt- inum Árið er. Ólafur Páll Gunnarsson hefur stjórnað Rokklandi samfleytt í 19 ár. Hrossin verðlaunuð í Stokk- hólmi Bene dikt Erl ings son, leik stjóri og hand rits höf und ur, og Friðrik Þór Friðriks son fram leiðandi tóku á móti Kvik mynda verðlaun um Norður- landaráðs 2014 fyr ir mynd ina Hross í oss í Stokk hólmi á miðvikudagskvöld. Verðlaunin nema um sjö milljónum króna.  vikan sem var Stjórn ar formaður Fjár mála eft ir lits ins, Halla Sigrún Hjart- ar dótt ir, lætur af störfum um áramót þegar skipun hennar rennur út. Halla Sigrún hagnaðist um 830 millj ón ir króna þegar gengið var frá sölu á Skelj ungi og fær eyska olíu fé- lag inu P/F Magn í lok árs 2013. Hættir hjá Fjármálaeftirlitinu 4 fréttir Helgin 31. október-2. nóvember 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.